Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 63
63. fundur
11. desember 2006 kl. 16:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður nefndarinnar, Valdimar Einarsson, Stephen Róbert Johnson, Erna Gísladóttir og Björn Arnarsson.
Einnig starfsmenn, Össur Imsland, Helgi Már Pálsson
1. Svæðisáætlun um meðferð sorps
Helgi Már Pálsson fór yfir svæðis- og framkvæmdaáætlun um meðferð sorps fyrir Sveitarfélagið. Áætlunin verður lögð á ftp-svæði nefndarinnar og nefndarmenn hvattir til að lesa hana yfir og koma ábendingum eða athugasemdum til starfsmanna.
2. Efnistaka í landi Horns ? svar Skipulagsstofnunar
Tekið fyrir svarbréf Skipulagsstofnunar dags: 08.11.06 vegna fyrirspurnar um hvort efnistaka í landi Horns í Sveitarfélaginu Hornafirði falli undir lög um mat á umhverfisáhrifum.
Umhverfisnefnd hvetur til þess að áður en til ákvörðunar um framkvæmdaleyfi kemur, verði unnið umhverfismat sem taki til samlegðaráhrifa af tilgreindum námum, metin þörf fyrir hverja og eina sem og unnin áætlun um efnistöku og frágang að henni lokinni.
3. Fundur Umhverfisstofnunnar og Náttúruverndarnefnda.
Starfsmaður og formaður gerðu grein fyrir Ársfundi Umhverfisstofnunar og Náttúruverndarnefnda sem þau sátu fh. Sveitarfélagsins í Hafnarfirði þann 10. nóvember síðastliðinn.
4. Skógræktarfélags Íslands, bréf 25. október 2006, ályktun frá aðalfundi.
Nefndin hvetur til þess að jafnhliða því að skilgreindar verða nýjar lóðir í sveitarfélaginu verði þessa gætt að aðgengi að útivistarsvæðum skerðist ekki og unnið að því að þau myndi sem mest eina heild svo að þéttbýlið geti þróast með gildi útivistar, lýðheilsu og umhverfisverndar að leiðarljósi.
5. Fjárhagsáætlun 2007.
Starfsmaður fór yfir hvaða fjármagni gert er ráð fyrir að verja til uppbyggingu og viðhalds opinna svæða ofl. umhverfistengdu á næsta ári.
6. Önnur mál
Starfsmönnum þakkað fyrir samstarfið.
Fundi slitið kl. 19:55


