Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 62
62. fundur
16. október 2006 kl. 16:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður nefndarinnar, Þóra V. Jónsdóttir, Valdimar Einarsson og Stephen Róbert Johnson
Einnig starfsmenn, Össur Imsland
1. Samþykkt um katta og hundahald.
Nefndin vann drög af samþykktum um katta- og hundahald. Starfsmanni falið að senda samþykktirnar til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Austurlands, Kjartani Hreinssyni, héraðsdýralæknis og Sigurðar Guðjónssonar meindýraeyðis.
Þóra yfirgaf fundinn eftir vinnu við kattasamþykkt.
2. Mengun á Stokksnesi
Umhverfisnefnd Hornafjarðar lýtur mjög alvarlegum augum fréttir af mikilli mengun á Stokksnesi sem verið hafa í fjölmiðlum að undarförnu og skorar á ríkisvaldið að setja í forgang vinnu við aðgerðaráætlun um úrbætur í mengunarvörnum og hreinsun á Stokksnesi og vísar í því sambandi til fjármagns til mengunarvarna í nýgerðum varnarsamningi.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að aflað verði nánari upplýsinga um málið.
3. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 19:35


