Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 61
61. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar fimmtudaginn 28. september 2006 kl. 16:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður nefndarinnar, Þóra V. Jónsdóttir, Erna Gísladóttir, Valdimar Einarsson og Stephen Róbert Johnson
Einnig starfsmenn, Helgi Már Pálsson og Össur Imsland
1. Efnisnámur. Erindi frá bæjarráði
Bæjarráð vísar hinn 7. september, sl. til nefndarinnar erindinu ósk um framkvæmdaleyfi fyrir nýtingu á námum í landi Horns. Námurnar sem um ræðir eru í Almannaskarði, við Sellæk, í Klifum, í Gulu-Skriðu, í Hálsenda og á Austurfjörum.
Umsækjandi er Ómar Antonsson, Horni.
Kynntar voru umsagnir Umhverfisstofunnar og Heilbrigðiseftirlits.
Nefndin vill bíða eftir umsögn Skipulagsstofnunnar áður en hún tekur afstöðu til málsins.
2. Grjótnám við Falljökulkvísl. Erindi frá bæjarráði.
Bæjarráð vísar hinn 7. september, sl. til nefndarinnar bréfi frá Vegagerðinni dagsettu 4. september s.l. þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi fyrir vinnslu á grjótnámu við Falljökulskvísl eins og henni er lýst í fylgigögnum með umsókninni.
Umsækjandi er Helgi Jóhannesson f.h. Vegagerðarinnar.
Í ljósi þess hversu mikilvægt er að hemja jökulár í farvegi sínum þannig að lámarka megi landbrot af þess völdum leggst umhverfisnefnd ekki gegn því að opnuð verði ný náma að Fjalljökulshvísl. Þar sem um framtíðar námu er að ræða telur nefndin mikilvægt að svæðið verði kannað nánar og val á vegstæði endurskoðað.
3. Skýrsla votlendisnefndar. Erindi frá bæjarráði.
Bæjarráð vísar hinn 12. september, sl. til nefndarinnar bréfi frá Landbúnaðarráðuneytinu dagsettu 28. ágúst varðandi skýrslu frá nefnd um endurheimt votlendis. Skýrslan er aðgengileg á slóðinni
http://www.landbunadarraduneyti.is/utgefid-efni
Til kynningar
4. Samþykkt um hunda og kattahald.
Tillögur frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands af samþykktum um hunda og kattahald.
Nefndarmenn beri saman tillögur frá Haust og samþykkt sveitarfélagsins frá 31. maí 2000 og komi athugasemdum á framfærum til starfsmanns fyrir næsta fund.
5. Samþykkt um fráveitur.
Samþykktir um fráveitur og losun og hreinsun rotþróa.
Helgi fór yfir samþykktirnar. Nefndarmenn kynna sér samþykktirnar og komi athugasemdum til starfsmanna fyrir næsta fund.
6. Önnur mál
Kynntir voru minnispunktar frá TogU og gróf kostnaðaráætlun frá Funa ehf. varðandi möguleika og kostnað við grófa flokkun á úrgangi í dreifbýli.
Þóra vék af fundinum
Nefndin hvetur bæjarráð til að gera ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlanagerð 2007.
Lagðir fram minnispunktar varðandi lausnir til að hefta fok á úrgangi á urðunarsvæði í Lóni.
Nefndin leggur til að gerð verði tilraun með ca. 150m af færanlegri skjólgirðingu til að hefta fok á svæðinu, einnig að hafist verði handa við skjólbeltarækt á urðunarsvæðinu strax í vor í sama tilgangi.
Lögð fram drög að samstarfssamningi um verkefnið Söfnum og styðjum - fernur eiga sér framhaldslíf.
Nefndin fagnar framkomnum drögum og hvetur til þess að skrifað verði undir þegar í stað.
Stephen spurðist fyrir um mengun á Stokksnesi í tilefni fréttar í Rúv í gær. Nefndin óskar eftir að málið verði skoðað.
Fundi slitið kl. 18.40


