Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 59
59. fundur
Fundur haldinn í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn 10. júlí 2006 kl. 16:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður nefndarinnar, Þóra V. Jónsdóttir, Erna Gísladóttir, Valdimar Einarsson, Miralem Haseta einnig starfsmenn, Hjalti Þór Vignisson, Helgi Már Pálsson og Össur Imsland.
1. Hlutverk, stafssvið og starfsáætlun umhverfisnefndar
Formaður bauð fundarmenn velkomna og fór yfir hlutverk og starfsvið nefndarinnar, en þeir sem skipaðir hafa verið í nefndina eru ;
Aðalmenn: Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra V. Jónsdóttir, Erna Gísladóttir, Stephen Róbert Johnson, Valdemar Einarsson
Varamenn: Þórey Bjarnadóttir, Björn Arnarson, Sævar Kr. Jónsson, Miralem Haseta, Einar Karlsson.
Ákveðið var að fundartími umhverfisnefndar verði annan mánudag hvers mánaðar klukkan 16:00
Vettvangsferð umhverfisnefndar um þéttbýlið, Nes og Lón var ákveðin þann 9. sept og stefnt á aðra staði í sveitarfélaginu á vordögum.
2. Refa- og minkaveiðar
Hjalti Þór Vignisson fór yfir refa- og minkaveiðar og hvernig greiðslum er háttað til veiðimanna. Veiðimenn sveitarfélagsins telja að dýrum í sveitarfélaginu séu að fjölga.
Umhverfisnefnd leggur til að leitað verði eftir fjármagni við gerð fjárhagsáætlunar til rannsókna á stofnstærð refa og minka í sveitarfélaginu og áhrif þeirra á fuglalíf. Nefndin bendir á að þegar er hafin samskonar rannsókn í Skaftafelli.
3. Ósk um umsögn á makaskiptum á landi innan Flateyjarjarða
Umhverfisnefnd hvetur til þess að við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði frá upphafi allt land Heinabergsjarðarinnar sem liggur ca. 200-500 metra norðan byggðalínu innan þjóðgarðs þó þannig að hefðbundnar nytjar haldist.
Hvað varðar umsögn um makaskipti innan Flateyjarjarða telur nefndin það ekki innan síns stafssviðs og umrætt land utan þess svæðis sem hugmyndir eru um að falli til Þjóðgarðs. Nefndin hvetur Landbúnaðarráðuneytið til að kynna sér til hlítar staðhætti og eignarhald umrædds lands áður en ákvarðanir eru teknar.
4. Önnur mál
Formaður spurðist fyrir um samning við Sagaplast um endurvinnanlegan úrgang. Einnig var spurt um sorpbrennslu. Málið tekið upp í haust.
Fundi slitið kl. 17.40


