Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 60
60. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar laugardaginn 09. september 2006 kl. 10:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður nefndarinnar, Þóra V. Jónsdóttir og Erna Gísladóttir. Einnig starfsmenn, Össur Imsland, Borgþór Freysteinsson.
Hjalti Þór Vignisson fór með nefndinni í vettvangsferð.
1. Vettvangsferð um Lón, Nes og Höfn
Í upphafi fundar fór nefndi í vettvangsferð. Byrjað var á að skoða urðunarsvæði í landi Syðri Fjarðar, rætt var við urðunarverktaka á staðnum. Þaðan var keyrt útá austurfjörur og malarnámur í landi Horns skoðaðar. Keyrt var að Sauðanesi og Fjárhúsavík skoðuð frá því sjónarhorni.
Því næst var haldið að Ártúni og tækjakostur sorphirðuverktakans Funa skoðaður og rætt við starfsmenn Funa.
Einnig voru skoðuð vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
Það var álit nefndarmanna að ferðin hafi verið árangursrík og skilað tilætluðum árangri þó mæting nefndarmanna hefði gjarnan mátt vera betri.
2. Sorpmál ? horft til framtíðar
Umhverfisnefnd hvetur til þess að unnið verði markvisst að minnka úrgang sem fer til urðunar með því að setja sér raunhæf markmið. Nefndin leggur til að þegar verði hafist handa við að safna fernum, sem fyrsta skref að þeim áfanga.
Nefndin leggur til að kannaðir verði möguleikar á að endurvinna lífrænan úrgang t.d með kaupum á jarðgerðarvél í samvinnu sveitarfélagsins og fyrirtækja í sveitarfélaginu. Nefndin bendir á að fá Frumkvöðlasetrið til að leiða þá vinnu.
Kannaðir verði möguleikar og kostnaður á útfærslu við grófa flokkun á úrgangi í dreifbýli.
Umhverfisnefnd hvetur til að lokið verði við gerð framkvæmdaáætlunar vegna svæðisáætlunar um meðferð sorps.
3. Önnur mál
Þorvarður Árnason forstöðumaður Háskólaseturs, kynnti starfsemi setursins og möguleika á aðkomu þess að ýmsum verkefnum meðal annars umhverfistengdum málum.
Fundi slitið kl. 15.00


