Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð Umhverfisnefndar 37

37. fundur

Fundur haldinn Í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu miðvikudaginn
11. júní 2003 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Rannveig Einarsdóttir, Olga Friðjónsdóttir, Björk Pálsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson og starfsmenn nefndarinnar Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson.


1. Drög að náttúruverndaráætlun, umsögn.
Valur kynnti fyrstu drög að náttúruverndaráætlun frá starfshópi í Umhverfisráðuneytinu.
Nefndin telur að allt of skammur tími vegna svo viðamikils verkefnis sé ætlaður sveitarfélögum til umsagnar og harmar það að endanleg náttúruverndaráætlun skuli ekki koma til umsagnar sveitarfélaga áður en henni er vísað til þingsályktunar nú í haust. Einnig að ekki skuli vera haft samráð við hagsmunaaðila ( landeigendur ) eins og segir í meðfylgjandi bréfi.
Umhverfisnefndin gerir ekki athugasemdir við tillögurnar svo fremi sem landnýting verði með óbreyttum hætti. Umhverfisnefndin áskilur sér samt sem áður rétt til að gera athugasemdir við tillögurnar á síðari stigum málsins.
Að öðru leyti skal bent á eftirfarandi ;
Ekki er samræming milli teikningar og lýsinga, t.d. mörk friðlands í Lóni.
Á sæðinu, fjalllendi við Hoffellsjökul eru í dag skipulögð svæði fyrir skógrækt og þinglýstir skógræktarsamningar, auk þess sem að á gildandi aðalskipulagi eru opnar námur.
Misræmi er í gögnum hvað varðar Steinadal, þar sem hann hefur verndartillöguna, búsvæði í töflu 18. Tillögur um friðlýsingu svæðis á Austurlandi ( s. 77 ), en í viðauka VI - Tillögur á Austurlandi, sagður friðland. Ekki er talið að svæðinu stafi ógn af aukningu á frístundabyggð þar sem ekki eru uppi áform um þessháttar framkvæmdir, heldur stafi svæðin frekar ógn af lúpínu þar.
Á svæðinu Breiðamerkursandur - Kvíármýrakambur, er bent á í kafla um röskun, ógnir úrbætur : Efnistaka, grjótnám. Rétt er að benda á að á gildandi aðalskipulagi eru fjórar námur, þ.a. ein grjótnáma ( Breiðárlón )
Á svæðinu Skeiðarársandur er rétt að geta þess að ferðaþjónusta er stunduð á Skeiðarársandi, hestaferðir.


2. Beitilönd í nágrenni Hafnar og í Nesjum.
Rætt var um beitilönd á og í nágrenni Hafnar og ofan við Nesjahverfi í "landi" Austurhóls.
Nefndin er sammála um að hófleg beit verði leifð á Ytri Ægissíðu, en hindri þó ekki aðgengi fólks á göngustígum. Einnig verði leyfð hófleg beit í Nesjum í landi Austurhóls.

3. Vegabætur/varnargarður á Kollumúlaveg í Lóni.
Erindi frá bæjarráði vegna framkvæmdaleyfis við Kollumúlaveg. Dreift var umsögn Einars Þórarinssonar, eftirlitsráðgjafa Umhverfisstofnunar á Austurlandi, ódagsett ( barst á tölvupósti í morgun ).
Nefndin tekur undir athugasemdir Einars í hans umsögn vegna efasemda hans um gæði klapparinnar og byrjunarframkvæmdum verði hagað með þeim hætti sem þar kemur fram og fellst á að framkvæmdarleyfi verði veitt að því tilskyldu.
Einnig er því beint til vegagerðarinnar að þeir skilgreini aðrar grjótnámur í sveitarfélaginu þar sem nú standi yfir endurskoðun á gildandi aðalskipulagi til að forðast smákropp nokkrum dögum fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir.

4. Önnur mál.
Rætt var um fernu- og blaðagáma við verslanir. Til stendur að bæta þessa aðstöðu. Um tilraun hefur verið að ræða og úrbætur eru væntanlegar.

Helgi Már kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir vegna göngubrúara í Lóni.

Helgi Már sagðri frá fundi með fráveitunefnd fyrr í dag og kynnti lauslega forhönnunarskýrslu sem unnin hefur verið af Línuhönnun.
Fjallað verður um þessa skýrslu á næsta fundi.


Fundi slitið kl. 19:30

Egill Jónasson
Eyjólfur Guðmundsson
Rannveig Einarsdóttir
Björk Pálsdóttir
Olga Friðjónsdóttir

Helgi Már Pálsson
Valur Sveinsson


Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica