Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 52
52. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn
6. júní 2005 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Rannveig Einarsdóttir, Björk Páldóttir, Eyjólfur Guðmundsson og starfsmenn nefndarinnar, Hjalti Þór Vignisson, Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson.
- Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Helgi kynnti tillögur Fljótsdalshéraðs um samvinnu sveitarfélaga á Austurlandi um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Nefndin leggur til að verkefnið verði áfram unnið af tækni- og umhverfissviði sveitarfélagsin.
Helgi fór af fundinum.
- Refa og minkaveiðar
Hjalti kynnti bréf umhverfisstofnunar um endurgreiðslur vegna refa- og minkaveiða ásamt kostnaðaráætlun vegna veiðanna miðað við greiðslur eins og þær eru hjá sveitarfélaginu í dag og miðað við verðskrá sem ríkið hefur.
Nefndin telur að nýta eigi þá peninga sem ætlaðir eru í málaflokkinn í minkaveiði og ránnsóknir á stofnstærð og skaðsemi refs og minks. Mikilvægt er að safna saman þeirri þekkingu sem til er á svæðinu um stofnstærð og skaðsemi minks. Leita ætti eftir utanaðkomandi styrkjum til að standa straum að kostnaði vegna upplýsingaröflunarinnar/rannsóknanna.
- Green Globe 21.
Hjalti kynnti Green Globe 21 verkefnið sem er eina vottunarkerfið fyrir samfélög.
Nefndin hvetur til að næsta skref í undirbúningi fyrir verkefnið verði tekið og sveitarfélagið haldi áfram undibúningi með þeim sveitarfélögum sem óskað hafa eftir samstarfi um Green Globe 21 verkefnið. Þá telur nefndin mikilvægt að kanna kosti byggðarsamlags áður en endanleg ákvörðun verði tekin.
Hjalti fór af fundinum.
- Önnur mál
Egill spurðist fyrir um tankinn á austurfjörum og hvort hann eigi að vera þarna áfram.
Nefndin leggur til að tankurinn verði fjarlægður við fyrsta tækifæri.
Egill benti á að náma við Volasel væri farin að fara í skriðufótinn sem er ekki í samræmi við þær upplýsingar sem nefndin fékk þegar óskað var eftir að taka efni á þessum stað.
Nefndin lýsir megnri óánægu með að náman sé komin í skriðufótinn.
Egill benti á að rusl væri farið að sjást við þjóðveginn við urðunarstaðinn í Lóni.
Fundi slitið kl. 18.25


