Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 51
51. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn 18. apríl 2005 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Þóra V Jónsdóttir, Rannveig Einarsdóttir, Björk Páldóttir, Björn Arnarson og starfsmenn nefndarinnar, Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson.
- Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Frestað á síðasta fundi. Helgi Már lagði fram gögn vegna svæðisáætlunar. Farið var yfir þau og verða breytingar sendar á tölvupósti. Umræður urðu um markmiðssetninguna.
Helgi Már benti jafnframt á að víðast hvar á landinu væri þessi vinna skammt á veg komin. Enginn hefur t.d. skilað gögnum á Austurlandi.
- Ráðstefna um Staðardagskrá 21.
Áttunda Ráðstefnan um Staðardagskrá 21 veður haldin í Kópavogi, föstudaginn 29. apríl næstkomandi. Nefndin mun senda fulltrúa á fundinn.
- Landbrot í Óslandi.
Starfsmaður mun reka á eftir málinu í Umhverfisstofnun.
- Dagur umhverfisins.
Dagur umhverfisins verður haldinn í sjöunda sinn þann 25. apríl næstkomandi.
Ferðafélag A-Skaft. mun tileinka ferð Ferðafélagsins laugadaginn 23. apríl næstkomandi degi umhverfissins.
- Önnur mál
Í framhaldi af landbrotsumræðum benti formaður á að Jökulsá í Lóni væri farin að ögna veginum inn með Stafafellsfjöllum og inní Austurskóga.
Nefndin telur að við eftirtalin svæði sé að skapast hætta vegna landbrots
Austan- og sunnanvegar við Reyðará í Lóni.
Vestan við Kolgrímu, bæði fyrir ofan og neðan veg.
Hólsá, vesturbakki við Hreiðarshólma.
Vafalaust eru margir fleiri staðir þar landbrots gætir en nefndarmönnum er ekki kunnugt um t.d. í Öræfum.
Mikilvægt er að sveitarfélagið beiti sér fyrir að aukið fjármagn fáist í fyrirhleðslur.
Björn benti á mikla sinu í Óslandi.
Rannveig benti á að samræma þurfi gönguleiðir í þéttbýlinu þannig að auðveldara sé að komast á milli þeirra staða þar sem gangstígar eru komnir. Eins taldi hún að byggja eigi stígakerfið þannig upp að það myndi hring meðfram ströndinni.
Björk spurðist fyrir um fernusöfnun og hvort magn væri meira eða minna en þegar gámarnir voru fyrst settir upp.
Fundi slitið kl. 19:00


