Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð Umhverfisnefndar
27. fundur
Fundur haldinn Í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu mánudaginn
11. febrúar 2002, kl. 17:00.
Mætt voru: Eyjólfur Guðmundsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Björn Arnarson, Gísli S. Jónsson, Ásdís Marteinsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Haldóra Ingólfsdóttir, Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson
Úthlutun styrkja.
Nefndin samþykkti að veita Landgræðslugélagi Öræfinga 200.000kr styrk. Jafnframt styrkúthlutuninni er óskað eftir nánari upplýsingum um hvernig á að ráðstafa styrknum og hverning honum var varið á síðasta ári. Félag fuglaáhugamanna í Hornafirði fær 100.000kr styrk til áframhaldandi reksturs félagsins. Björn sat hjá við afgreiðslu seinni umsóknarinnar. Nefndin leggur til að afgangurinn af styrktarfé þessa árs verði notað til að klára uppsetningu á á skylti/korti í Óslandi
Fráveitumál í sveitarfélaginu (dreifbýli og þéttbýli).
Helgi kynnti tillögur þriggja verkfræðistofa um lausnir á fráveitumálum sveitarfélagsins. Þær mæla allar með rennslis -og mengunnarmælingum. Allir mæla með að fyrirtæki hreinsi frárennsli að einhverju leiti sjálf. Fjarhitun kynnti 4 tillögur í þéttbýli með einni eða tveimur hreinsistöðvum þar sem kostnaður er á bilinu 350-400milljónir og rekstrarkostnaður 10-12miljónir. Frárennsli í nesjakverfi yrði með rotþró og siturlögn og er kostnaður áætlaður 15milljónir. Kostnaður við annarstaðar í dreyfbýli er áætlaður 30miljónir.
Línuhönnun kynnir eina tillögu í þéttbýli með einni hreinsistöð og er kostnaður áætlaður 145miljónir og rekstrarkostnaður 10miljónir. Engar sérstakar tillögur voru gerðar fyrir dreyfbýlið en boðið að vinna það nánar síðar.
Hönnun kynnir eina tillögu í þéttbýli með einni hreinsistöð. Þeir reikna með að frárennsli frá fyrirtækjum verði leitt út við Standey og hreinsað að mestu leiti hjá fyrirtækjum áður en það fer inná bæjarkerfið. Kostnaður er áætlaður 170miljónir og rekstrarkostnaður 9miljónir. Lagt er til að sameiginlegt útboð verði notað við lausnir á fráveitumálum í dreifbýli.
Allar stofurnar reikna með að hönnunarkostnaður verði á bilinu 7-11%
Kostnaður við rennslis -og mengunnarmælingar og úrvinnsla sýnanna er uþb. 2miljónir. Nefndin telur að semja eigi við Línuhönnum um rennslis -og mengunarmælingar.
Brotajárnsöfunun í dreifbýli.
Valur kynnti stöðu mála á brotajárnsöfnun í dreifbýli. Nefndin telur mjög mikilvægt að hreinsun í dreifbýli verði kláruð á þessu ári.
Staðardagskrá 21.
Liður 1 holræsi og fráveitumál er kominn vel á stað.
Liður 2 úrgangur frá heimilum og fyrirtækjum var að mestu leiti kynntur í dreyfibréfi sem kom út í byrjun mánaðarins.
Liður 3 náttúrumengun. Ekki hefur verið gerð mæling á loftmengun en mæling á sjávarmengun er fyrirhuguð.
Lið 3.2 samkeppni um slagorð fyrir sveitarfélagið verði auglýst og kynnt á sama tíma og næsti hreynsunardagur verður haldinn.
Nefndin leggur til að svipað fyrirkomulag og á síðasta ári verði á hreynsidögum bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Liður 4 gæði neysluvatns. Vatnsverndarsvæði hafa að hluta til verði skilgreind með nýju aðalskipulagi. Ekki hefur verið unnið að innra eftirliti á vatnsveitu Hafnar. Ekki hefur verið haft samband við þá aðila í dreifbýli sem höfðu lýst yfir áhuga á samvinnu í þessu máli.
Kynnt var minnisblað frá Alta ehf. þar sem fyrirtækið býður þjónustu sína við staðardagskrár verkefnið. starfsmaður Alta ehf. á Höfn er Elín S. Harðardóttir
Nefndin er sammála því að kaupa þjónustu Alta ehf. í jarðgerðarverkefninu þ.e með námskeiði og leiðbeingingum um jarðgerð. Frekari umfjöllun um minnisblaðið er frestað til næsta fundar.
Nefndin er ánægð með dreifibréf sem gefið var út í byrjun mánaðarins.
Önnur mál.
Ósk Rósaberg um stækkun á námu í Fjárhúsavík um 2000m3 var samþykkt en nefndin telur að það þurfi að finna framtíðarlausn á grjótnámi í nágrenni þéttbýlis.
Fundi slitið kl. 19:20
Eyjólfur Guðmundsson Björn Arnarson
Aðalsteinn Aðalsteinsson Sigurlaug Gissurardóttir
Ásdís Marteinsdóttir Halldóra Ingólfsdóttir
Gísli S. Jónsson
Helgi Már Pálsson
Valur Sveinsson


