Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð Umhverfisnefndar
30. fundur
Fundur haldinn í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu mánudaginn 08. júlí 2002 kl. 17:10 í fundarsal Ráðhúss Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Ármann Karl Guðmundsson, Eyjólfur Guðmundsson og starfsmaður nefndarinnar Helgi Már Pálsson.
Umræður um starf nefndarinnar á kjórtímabilinu.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og fór yfir helstu mál sem nefndin tæki sér fyrir hendur á kjörtímabilinu. Þar eru mál eins og fráveitumál, sorpmál, umgengni í þéttbýli og dreifbýli, verkefnið Fegurri sveitir, eyðilbýli í niðurnýslu, malarnámur, eyðing refa og minnka, friðun fugla og ágangur vatna. Jafnframt óskað hann eftir hugmyndum nefndarmanna um starfið.
Eyjólfur ræddi um fyrri störf nefndarinnar og hlutverk hennar sem náttúruverndarnefndar og stjórnun fólkvangsins í Óslandi og kallaði eftir stefnumörkun nýs meirihluta um málaflokkinn.
Egill óskaði eftir að unnið væri að árangursmati í SD21.
Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 17:50
Egill Jónasson
Ármann Karl Guðmundsson
Eyjólfur Guðmundsson
Helgi Már Pálsson


