Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð Umhverfisnefndar

35. fundur

Fundur haldinn Í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu mánudaginn

09. desember 2002 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.



Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Sigurlaug Gissurardóttir, Björk Pálsdóttir,

Ármann Guðmundsson í fjarfundabúnaði, Björn Arnarson og starfsmenn nefndarinnar Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson.





Fjárhagsáætlun 2003 – opin svæði.

Nefndinni var kynnt fjárhagsáætlun 2003 fyrir opin svæði og liðinn

Staðardagskrá 21.

Egill kinnti grein úr Eystrahorni frá 27. júlí s.l. eftir Sigrúnu Benediktsdóttur, "Að vinna - eða vinna ekki", sem fjallaði um unglingavinnuna síðastliðið sumar. Rætt var um starf unglingavinnunar á þessu og næsta ári og Valur kynnti væntanlegt fyrirkomulag skólans. Nefndin leggur áherslu á að betri árangur náist við vinnuskólann á næsta ári þannig að þeir fjármunir sem fara í þennan lið á fjárhagsáætlun verði betur varið en áður.



Umhverfisverðlaun 2002.

Rætt var um með hvaða hætti standa mætti að veitingu umhverfisverðlauna. Kanna þarf betur hvernig fyrirkomulag vegna umhverfisverðlauna í sambærilegum sveitarfélögum er háttað. Samþykkt var að auglýsa eftir tilnefningu um umhverfisverðlaun fyrir árið 2002 meðal almennings.



Styrkveitingar fyrir árið 2003.

Þar sem formlegri vinnu við fjárhagsáætlun er ekki lokið þá er þessum lið frestað.



Ágangur álfta.

Umhverfisnefnd Hornafjarðar er sammála um að ítrekar bókun sína frá 28. maí 1999, um að Umhverfisráðherra beiti sér fyrir, að fram fari rannsókn á álftastofni á Suðausturlandi. Jafnframt verði lagt mat á það tjón, sem fuglinn veldur bændum, er hann leggst á tún og kornakra.



Greinagerð:

Mikill fjöldi álfta, jafnt geldfuglar sem varpfuglar, er á Suðausturlandi og virðist aukast ef marka má af sífellt fleiri fuglum sem koma upp ungum ár hvert. Fuglinn kemur í apríl og tínir þá nýsáð fræ upp úr kornökrum, en flytur sig síðan á tún og dæmi eru um að þau eða hlutar þeirra eru sem nýslegin, þegar komið er að slætti.

Einnig hefur álftin valdið verulegum vandræðum, þar sem hún er nálægt lambfé að vori. Álftin hverfur síðan í úthaga yfir hásumarið, en um miðjan ágúst byrjar fuglinn aftur að leggjast á ræktuð lönd, ýmist há eða grænfóður, sem ætluð eru til fóðuröflunar eða haustbeitar fyrir sauðfé og kýr eða að hann sest að í kornökrum, þar sem hann étur kornið af axinu og treður niður.

Umhverfisnefnd er kunnugt um að ráðuneytið óskaði umsagnar Ráðgjafanefndar um villt dýr, sem mælti með að þessi rannsókn fari fram, en málið liggur hins vegar óafgreitt í ráðuneytinu.

Afrit verði sent Landbúnaðarráðuneyti, Ráðgjafarnefnd um villt dýr, Bændasamtökum Íslands, Búnaðarsambandi Austur Skaftfellinga og Umhverfisstofnun.



Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs.

Farið var yfir helstu nýungar í frumvarpinu, s.s. vöktun urðunarstaðar, kostnað og kostnaðarskiptingu, meðhöndlun lífræns úrgangs o.fl.

Nefndin gerir ekki athugasemdir við frumvarpið en bendir á að það muni hafa íþyngjandi áhrif fyrir sveitarfélagið í framtíðinni og beinir því til bæjarráðs að vinna þurfi markvisst að minnkun úrgangs.



Önnur mál

Fimm aðilar lýstu yfir áhuga á að taka þátt í umhverfisverkefninu vistvernd í verki. Þar af var einn aðili sem sagðist ekki geta tekið þátt ef verkefnið væri yfir sumartímann.
Nefndin er sammála um að taka þátt í verkefninu og óskar eftir því við bæjarráð að veitt verði fjármagn vegna þess.



Valur greindi frá viðtali við Náttúruvernd ríkisins vegna skiltis í fólkvanginum í Óslandi og að síminn beri ábyrgð á loftnetsmöstrum á sama stað.



Egill benti á nauðsyn þess að kort með örnöfnum í sveitarfélaginu þyrftu að vera sýnilegri. Nefndin vill beina því til bæjarráðs að lokið verði við vinnu örnefnakorts í Öræfum.

Einnig taldi Egill að finna þyrfti betra land fyrir kartöflugarða í framtíðinni.



Björn taldi að ef ekki ætti að halda við veginum upp á Bergárdalsheiði þá væri rétt að loka honum. Mikil brögð eru á aksri utan vegslóðans.





Fundi slitið kl. 19:20

Egill Jónasson

Sigurlaug Gissurardóttir

Björk Pálsdóttir

Ármann Guðmundsson (Í fjarfundarbúnaði í Öræfum)

Björn Arnarson





Helgi Már Pálsson

Valur Sveinsson




Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica