Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 53
53. fundur
Fundur haldinn í umhverfisnefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 15. nóvember 2005 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður, Rannveig Einarsdóttir, Þóra V Jónsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson og starfsmenn nefndarinnar, Helgi Már Pálsson og Össur Imsland.
Í uppahafi fundar minntust fundarmenn fyrrverandi formanns Egil Jónassonar
1. Umhverfisþing
Formaður umhverfisnefndar sækir ársfund náttúruverndarnefnd sveitarfélaga og Umhverfisstofnunar og nefndarmaður sækir Umhverfisþing.
2. Green Golbe 21
Nefndin hvetur til að sveitarfélagið verði þátttakandi í verkefninu, en vil jafnframt minna á að þegar hefur farið fram mikil undirbúningsvinna eins og staðadagskrá 21 sem lækkað getur kostnað sveitarfélagsins .
Einnig bendir nefndin á að hugsanlega er skynsamlegra fyrir verkefnið að í stað launakostaðs sérfræðings verði um aðkeypta vinnu að ræða.
3. Svæðisáætlun um meðferð sorps
Nefndin telur mikilvægt að unnið verði að því að gjaldtaka fyrir sorpurðun verði í samræmi við umfang og áframhaldandi markvissri endurvinnslu á sorpi svo sem eins og rúlluplasti og umbúðum.
Haldið verði áfram við framkvæmdaáætlun um meðferð sorps.
4. Fráveita – næstu skref og breytingar á lögum
Nefndin telur mikilvægt að núgildandi framkvæmdaáætlun verði endurskoðuð og framkvæmdum lokið fyrir árslok 2008 og í tengslum við fjárhagsáætlun næsta árs verði gert ráð fyrir næsta áfanga.
Nefndin leggur áherslu á að þessum málaflokki sé vel sinnt vegna ímyndar svæðisins hvað varðar matvælavinnslu og ferðaþjónustu.
5. Önnur mál
Fundi slitið kl. 19.00


