Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 49
49. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn
14. febrúar 2005 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Þóra V Jónsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og starfsmaður nefndarinnar, Helgi Már Pálsson.
1. Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs
Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar fimmtudaginn 13. janúar s.l var ofangreint málefni á dagskrá og var því vísað til umfjöllunar í umhverfisnefnd. Samþykkt er að umhverfisnefnd haldi utan um vinnu við gerð svæðisáætlunar.
Farið var yfir úrdrátt bæjarverkfræðings um málið, samantekt á kostnaði við sorphirðu og urðun frá 1997-2003 og landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2004-2016 gefin út af umhverfisstofnun.
Samþykkt var að vinna saman á netinu með hugmyndir og texta eftir framlagðri vinnuáætlun og áætlað að hittast aftur 28. febrúar n.k.
2. Önnur mál
Egill ræddi um ákvörðun umhverfisráðherra um niðurfellingu á veiðibanni til skotveiða á rjúpu. Málinu frestað til næsta fundar.
Fundi slitið kl. 18:30
Egill Jónasson Helgi Már Pálsson
Þóra V Jónsdóttir
Rannveig Einarsdóttir


