Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 48
48. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn 10. janúar 2005 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Björk Pálsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson og starfsmaður nefndarinnar, Valur Sveinsson.
- Umhverfisverðlaun 2004
Ein tilnefning til umhverfisverðlauna barst nefndinni. Valgerður Sigurðardóttir, Hafnarbraut 47 var tilnefnd fyrir snyrtilegan garð.
Nefndin tilnefndi eftirfarandi enstaklinga.
Elínu Sigríði Harðardóttur fyrir langt og farsælt starf að umhverfismálum.
Ábúendur í Akurnesi eru tilnefndir fyrir snyrtilegt býli.
Ábúendur í Dynjanda eru tilnefndir fyrir snyrtilegt býli.
2. Önnur mál
Yfirfara þarf skilti með merktum gönguleiðum sem sett voru upp á Höfn og nágrenni.
Minnst var á aukið landbrot í Óslandi.
Fundi slitið kl. 17:45


