Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 47
47. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn
13. desember 2004 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Þóra V Jónsdóttir, Björk Pálsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og starfsmenn nefndarinnar, Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson.
- Ósk um að malarnámur verði teknar inní aðalskipulag.
Nefndin setur sig ekki á móti opnun námu í Almannaskarði en er alfarið á móti opnun hinnar námunnar. Nefndin telur einnig að flýta eigi lokun Friðsældar ef önnur náma verður opnuð í námunda við hana.
Einnig kom fram fyrirspurn um hver myndi fylgjast með því að ekki sé tekið meira úr námunni en ráð sé gert fyrir.
- Fjárhagsáætlun fyrir opin svæði 2005
Nefndin gerir ekki athugsemdir við fjárhgsáætlunina.
- Fráveitumál.
Helgi kynnti umsögn Heilbrigðsiseftirlits Austurlands um forhönnunarskýrslu um fráveitu á Höfn og í Nesjum. Einnig var farið yfir stöðu mála og framkvæmda við fráveitu á vestursvæði.
- Önnur mál
Ákveðið var að auglaýsa eftir tillögum til umhverfisverðlauna.
Björk taldi að huga þurfi að annarri staðsetningu fyrir litboltafélagið.
Nefndin telur að stöðugt þurfi að minna á umgengni á fyrirtækja- og bújörðum.


