Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
30. fundur
30. fundur skóla, íþrótta og tómstundanefndar haldinn í ráðhúsi, 23. janúar 2013 og hófst hann kl.16:30.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Ásgeir Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir 1. varamaður
Torfi Friðfinnsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ragnhildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs.
Dagskrá:
|
1212006F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 29 |
||
|
Fundargerðin samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
2. |
201211051 - Báran knatthús |
|
|
Gunnar Ingi sat fundinn undir þessum lið. Nefndin fagnar Bárunni, hinni höfðinglegu gjöf Skinneyjar Þinganess til íbúa sveitarfélagsins. Síðan voru teknar fyrir spurningar frá áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarráði, Árna Rúnari Þorvaldssyni um rekstur Bárunnar. Gunnar Ingi lagði fram stundarskrá Bárunnar. Skýrt er að hann ber ábyrgð á umsjón og rekstri Bárunnar sem forstöðumaður íþróttamannvirkja. Fram kom að Gunnar hefur óskað eftir tilboðum í rafrænt myndarvélar- og eftirlitskerfi. Umræður spunnust um hvort vefmyndavél í Bárunni ætti að vera opin og aðgengileg fyrir alla. Inni í þessu útboði er einnig rafrænn opnunar- og lokunarbúnaður á hurðum og til að kveikja og slökkva ljósin. Umsjónarmaður íþróttamannvirkja lítur daglega eftir Bárunni. Nýtingin fer eftir aðsókn og fólk er hvatt til að hafa samband við Gunnar til þess að fá yfirlit yfir lausa tíma. Ákveðið að húsið verði opið frá kl. 6 á morgnana til 23 á kvöldin virka daga og frá kl. 8-20 um helgar og aðgangur er ókeypis. Gefa verður starfseminni reynslutíma og endurmeta reglur og eftirlit. |
||
|
|
||
|
3. |
201301082 - Sjálfsmat Grunnskóla Hornafjarðar |
|
|
Undir þessum lið sátu S.Guðbjörg Garðarsdóttir, Hulda Laxdal og Herdís Tryggvadóttir. Hulda fór yfir niðurstöður kannanna um líðan og skólastarf sem foreldrar, starfsfólk skóla og nemendur 5.-10. bekkjar tóku. Hún sýndi einnig samanburð yfir 3 sl. ár. Rætt var um jákvæðar og neikvæðar niðurstöður og úrræði til að bæta skólastarf. Hulda greindi einnig frá því að starfsfólk grunnskólans sé að vinna umbótaáætlun í takt við niðurstöður. |
||
|
|
||
|
4. |
201301083 - Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda samkvæmt lögum um grunnskóla |
|
|
Farið var yfir gátlista og merkt við það sem nefndarmenn voru vissir um |
||
|
|
||
|
5. |
201301078 - Þjónusta annarra sveitarfélaga við börn í dreifbýli |
|
|
Lagt var fram minnisblað sem unnið var eftir símakönnun fræðslustjóra við nokkur sveitarfélög. Ekki vannst tími til að hafa samband við nema þrjú sveitarfélög og var fræðslustjóra falið að hafa samband við stóru sveitarfélögin og bæta við minnisblaðið. Rætt var um mismunandi sveigjanleika í þjónustu leikskóla, kosti og galla. |
||
|
|
||
|
6. |
201301087 - Forvarnir |
|
|
Fræðslustjóri dreifði sýnishornum um stefnu valdra sveitarfélaga og fundarmenn ræddu framsetningu og fl. Samþykkt að vinna aðgerðaráætlun samhliða vinnu um forvarnarstefnuna, samþykkt að halda íbúafund um heilsusamlegan lífsstíl og forvarnir og setja stefnuna fram með þeim áherslum en ekki einblína á neyslu. Horfa á heilbrigðan lífsstil frá getnaði til grafar. Fram kom tillaga um að halda fundinn þann 28. febrúar sem er fimmtudagur, fá liðstyrk frá landlæknisembættinu og nýta hann til að hitta nemendur skólanna föstudaginn 1.mars. Samþykkt að vera í sambandi við grasrótarhóp um forvarnir varðandi skipulag og undirbúning íbúaþingsins. Einnig var samþykkt að virkja sérstaklega ungmennaráð og áhugasamt fólk úr ýmsum áttum. Umræður sköpuðust um forvarnir almennt og Arna lagði fram eftirfarandi bókun sem hvatningu til íbúa í skammdeginu. "Þar sem veður hefur verið ansi milt undanfarið hafa börn verið dugleg að hjóla og ganga í og úr skóla og er það af hinu góða. Þar sem ennþá er ansi dimmt á morgnana og mikið myrkur sem fylgir þessu veðurfari vill Skóla- íþrótta- og tómstundanefnd beina þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna barna að börnin séu með endurskinsmerki á fötum og ljós á hjólum. Of mikið er um að hjólreiða- og göngufólk sjáist illa í myrkrinu og skapar það mikla slysahættu. Sömu tilmælum vill nefndin beina til forsvarsmanna Umf. Sindra, að hlaupahópar á þeirra vegum séu klæddir í endurskinsvesti." Var bókunin samþykkt samhljóða og fræðslustjóra falið að senda hana í staðarmiðlana. |
||
|
|
||
|
7. |
201301103 - Mánagarður |
|
|
Skýrt er að Gunnar Ingi ber ábyrgð á umsjón og rekstri Mánagarðs sem forstöðumaður íþróttamannvirkja. Hann tekur við umsóknum um afnot af húsinu og sinnir eftirliti. Sigrún Kapitóla lagði fram eftirfarandi bókun að hálfu sjálfstæðisflokksins. "Núna um nokkurra ára skeið hefur ekki verið starfandi húsvörður í Mánagarði og hefur umgengni um húsið farið mjög versnandi. Aðkoman að húsinu hefur verið mjög misjöfn. Þannig eru dæmi um að fólk sem leigt hefur aðstöðuna komi í húsið þegar það er mjög kalt, skítugt, skaflar fyrir dyrum, húsbúnaður í ólagi og svo mætti áfram telja. Húsið skiptir samfélagið miklu máli og er vel staðsett t.d. fyrir tónleika, leiksýningar og ráðstefnur en það rúmar slíka viðburði vel, auk þess hefur húsið staðið til boða einstaklingum fyrir viðburði og veislur. Félagasamtök í Nesjum og einstaklingar (m.a. UMF Máni, þorrablótsnefnd, Kvenf.Vaka ofl.) hafa lagt mikla vinnu í uppbyggingu hússins og fé í kaup á ýmsum húsbúnaði og gert það til að efla félagsheimilið og notagildi þess. Því miður hefur þó borið á því að sá búnaður hverfi úr húsinu. Nýlega lagði sveitarfélagið fjármuni í lagfæringar á eldhúsi og var það gert mun aðgengilegra og keypt þar inn ný uppþvottavél, sem eykur enn frekar á notagildið. Aðstaðan í húsinu er þó þannig að erfitt er fyrir ókunnuga að ganga um húsið. Nú nýlega varð slys þegar einstaklingur datt og hlaut beinbrot við að kveikja ljós, en það er ekki auðgert fyrir óvana enda töluvert brölt og óaðgengilegt þar sem slysið varð. Ég tel að það sé full þörf á aukinni húsvörslu í Mánagarði svo þetta félagsheimili okkar nýtist sem best, sé öruggt og aðgengilegt. Skilgreina þarf betur hver ber ábyrgð á húsinu, útleigu þess og umhirðu. Og taka tillit til þess þegar kemur að skipulagningu tíma starfsmanna." Fram kom hjá Gunnari Inga að húsið er ekki mikið nýtt. Manneskja er á launum í fjórar klst. á viku við að þrífa og auk þess sinnir Gunnar óreglulegu eftirliti.Búiðer að loka gatinu sem skapaði slysahættu í húsinu og olli slysi í desember. Ákveðið að Gunnar hitti kvenfélagskonur í Nesjum sem nýta Mánagarð mest til að fara yfir það sem miður er og gera úrbætur. Einnig ákveðið að hann geri áhættumat í samvinnu við þar til bæra aðila.
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.19:30


