Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
29. fundur
29. fundur skóla, íþrótta og tómstundanefndar haldinn í ráðhúsi, 19. desember 2012 og hófst hann kl.16:30.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Ásgeir Ásgeirsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður
Ragnhildur Jónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Ragnhildur Jónsdóttir , Fræðslustjóri .
Dagskrá:
|
1211007F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 28 |
||
|
Fram kom ábending um villu í útreikningum vegna gjaldskrárútreikninga fyrir fæðiskostnað. Starfsmanni falið að fara yfir málið með fjármálasviði. Fundargerð síðasta fundar að öðru leiti samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1212007F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 6 |
|
|
Vilhjálmur Magnússon sat undir þessum lið, sagði frá umræðum í ungmennaráði, meðal annars um ungmennahús til hvers og hvað ætti að vera í því. Vilhjálmur sagðist hafa fengið upplýsingar frá öðrum sveitarfélögum um verkefni sem ráðin hafa unnið og í mörgum sveitarfélögum eru þau að vinna "alvöru" verkefni t.d. halda bæjarstjórnarfund unga fólksins, læra á stjórnsýslu o.fl. Vilhjálmur lagði fram gögn þessa efnis. Ákveðið var að hann sendi þessi gögn á nefndina og færi í gegnum þau með ungmennaráði sem setti fram hugmyndir að verkefnum fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu. |
||
|
|
||
|
3. |
201212038 - Úttektir á leikskólum |
|
|
Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir og Guðbjörg Guðlaugsdóttir sátu undir þessum lið. Margrét lýsti sig fylgjandi því að sækja um að taka þátt. Ákveðið að sækja um til Námsmatsstofnunar fyrir báða leikskóla sveitarfélagsins. |
||
|
|
||
|
4. |
201212037 - Leikskólaganga barna úti í sveitum |
|
|
Fram kom að tvö erindi foreldra úr dreifbýli, hafa borist nefndinni þar sem óskað er eftir vistun barna 1- 3 daga í viku á leikskóla. Reglur leikskólanna í dag kveða á um að "allt leikskólastarf miðist við samfellda viðveru barns í leikskóla alla virka daga vikunnar". Ákveðið að endurskoða núgildandi reglur út frá framkomnum óskum. Starfsmanni falið að svara erindunum. |
||
|
|
||
|
5. |
201212041 - Reglur um skólaakstur - drög |
|
|
Laufey Guðmundsdóttir bílstjóri, Þórgunnur Torfadóttir og S. Guðbjörg Garðarsdóttir sátu undir þessum lið. Umræður spunnust um öryggisbelti í skólabílum og voru allir á einu máli um að í bílunum ættu að vera þriggja punkta belti og höfuðpúðar. Fram kom að þessi skilyrði eru ekki sett í lögum og reglum og voru ekki sett fram í útboðum. Samþykkt að setja þessi skilyrði næst þegar skólaakstur verður boðinn út. Reglurnar voru samþykktar með innsendum breytingatillögum. Laufey lagði fram fyrirspurn um ábyrgð akstursaðila um akstur slasaðs barns eða fatlaðs sem þarf að vera í hjólastól til lengri eða skemmri tíma. Ákveðið að starfsmaður grafist fyrir um málið hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga og ræði við starfsmenn hjá málefnum fatlaðra. |
||
|
|
||
|
6. |
201212039 - Aðgerðaáætlun v. stefnu í íþrótta,- æskulýðs- og tómstundamálum |
|
|
Fundarmenn fóru yfir drög að aðgerðaáætlun. Umræður spunnust um tímasetningu tilnefningar íþróttamanns ársins og úthlutun styrkja úr afrekssjóði. Fundarmenn sammála um að semja þurfi um það við USÚ og Sindra en leggja áherslu á að það sé gert þegar bæjarbúar fagna einhverjum viðburði. Samþykkt að hvetja félagasamtök til að kynna starfsemi sína fyrir ungu fólki ennfremur að hvetja til samvinnu við Austurbrú um að bjóða upp á námskeið að undangenginni þarfagreiningu meðal ungs fólks. Að öðru leiti voru drög að aðgerðaáætlun samþykkt. |
||
|
|
||
|
7. |
201210037 - Styrkir til foreldrastarfs í skólum |
|
|
Samþykkt að úthluta styrkjum með sama hætti og áður. Starfsmanni falið að ganga frá málinu. |
||
|
|
||
|
8. |
201009025 - Talþjálfun barna í sveitafélaginu |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
9. |
201211028 - Áfengisauglýsingar á íþróttasvæðum |
|
|
Skóla,- íþrótta- og tómstundanefnd tekur undir með foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum um að hvetja íþróttafélög til þess að auglýsa ekki áfengi á íþróttasvæðuim sínum. Nefndin hvetur íþróttafélög í sveitarfélaginu um að taka meðvitaða ákvörðun um að auglýsa ekki áfengi. |
||
|
|
||
|
10. |
201212043 - Einstaklingsmál |
|
|
Þórgunnur sat undir þessum lið. Bókað í trúnaðarbók. |
||
|
|
||


