Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 27
27. fundur
27. fundur Skóla,íþrótta og tómstundanefndar
haldinn 17. október í ráðhúsi og hófst hann kl.16:30.
Fundinn sátu:
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Ásgeir Ásgeirsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir aðalmaður
Gunnar Sigurjónsson 1. varamaður
Pálína Þorsteinsdóttir starfsmaður fræðslu- og félagssviðs
Þórgunnur Torfadóttir starfsmaður fræðslu- og félagssviðs
Herdís Tryggvadóttir fulltrúi starfsmanna
Ragnhildur Jónsdóttir starfsmaður fræðslu- og félagssviðs
Fundargerð ritaði: Ragnhildur Jónsdóttir , Fræðslustjóri .
Dagskrá:
|
1209007F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 25 |
||
|
Engar athugasemdir. |
||
|
|
||
|
2. |
1210009F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 26 |
|
|
Engar athugasemdir. |
||
|
|
||
|
3. |
201210027 - Starfsáætlun grunnskólans í Hofgarði |
|
|
Pálína Þorsteinsdóttir gerði grein fyrir starfsáætlun grunnskólans í Hofgarði. Í Hofgarði eru 10 nemendur í yngri og eldri deild og innan deilda er samkennsla þvert á aldur. Þar er haldið upp á dag íslenskrar tungu 16. nóv. og áður en farið er í jólafrí er samvera með foreldrum. Einnig er haldið þorrablót þar sem foreldrar skiptast á um að sjá um matinn og er öllum Öræfingum boðið á blótið. Á vorönninni er boðið í kaffi á feðra- afa- og bræðradegi og mæðra, ömmu og systradegi og árshátíð er í mars. Sjálfsmat skólans er komið í ákveðið ferli. Umræður spunnust um símenntun starfsmanna þar sem fundarmenn voru sammála um að sjálfsagt væri að starfsfólk Grsk. í Hofgarði ætti kost á að sækja námskeið sem haldin eru í GH. Í samvinnu við foreldra var sótt um undanþágu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá því að starfrækja nemendaverndar- og skólaráð vegna mannfæðar. Veitti ráðuneytið þá undanþágu. Skólinn er ekki með heimasíðu en málið er í samningsferli. |
||
|
|
||
|
4. |
201210028 - Hagir og líðan ungmenna á Hornafirði 2012 |
|
|
Undir þessum lið sátu Pálína Þorsteinsd. og Þórgunnur Torfadóttir skólastjórar, Hanný Ösp Pétursdóttir fulltrúi foreldra og Herdís Tryggvadóttir fulltrúi kennara. Ragnhildur fór yfir niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10. bekk í febrúar 2012 af Rannsókn og greiningu. Fundarmenn voru sammála um að mjög margt jákvætt væri að gerast hjá unglingunum okkar en talsverðar umræður spunnust um þær breytingar sem verða á vímuefnaneyslu eftir grunnskóla. Samþykkt að skrifa grein um niðustöðurnar í staðarmiðlana og setja tengil inn á glærurnar. Einnig að kynna þetta fyrir nemendum á unglingastigi í grunnskólanum. |
||
|
|
||
|
5. |
201210029 - Forvarnarstefna sveitarfélagsins |
|
|
Undir þessum lið sátu Pálína Þorsteinsd. og Þórgunnur Torfadóttir skólastjórar. Arna las erindi frá grasrótarhóp um forvarnir. Matthildur vísaði í starf hópsins og þá skoðun að forvarnarstefna sveitarfélagsins væri orðin úrelt. Fundarmenn voru sammála um að bregðast við þessu erindi grasrótarhópsins og fara í þá vinnu að endurskoða þessa stefnu. Þórgunnur lýsti vinnu sem unnin er í GH og er liður í forvörnum.
|
||
|
|
||
|
6. |
201210031 - Þrykkjan, klúbbastarf |
|
|
Á fundinum var kynnt greinargerð um stöðu klúbbastarfs í Þrykkjunnni og kom þar í ljós að fjármagn vantar í klúbbastarf. Málinu vísað til Bæjarráðs. |
||
|
|
||
|
7. |
201210035 - Ungmennaráð, tilnefning |
|
|
Starfsmanni falið að finna fulltrúa |
||
|
|
||
|
8. |
201210030 - Málefni nemenda mmeð sérþarfir Stefna sveitarstjórnar |
|
|
Í tengslum við eftirfylgni með úttekt á GH kemur fram að ábótavant er að stefnu sveitarféalgsins vantar í málefnum nemenda með sérþarfir. Ekki er nóg að hafa þessa stefnu einungis í GH. Starfsmanni falið að vinna að málinu. |
||
|
|
||
|
9. |
201108002 - Landsmót unglinga 2013 á Hornafirði |
|
|
Matthildur Ásmundardóttir formaður Landsmótsnefndar gerði grein fyrir hvernig undirbúningur fyrir landsmótið gengur. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45


