Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25

25. fundur

Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 19. september 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir og Ragnhildur Jónsdóttir.          
Vilhjálmur Magnússon sat fund undir lið 2.
Þórgunnur Torfadóttir sat fund undir liðum 3-7.  

1. Fundargerð 24. fundar.  
Engar athugasemdir gerðar. 

 

2. Kynning á starfsemi Þrykkjunnar og nýjum tómstundafulltrúa.
 Vilhjálmur Magnússon nýr tómstundafulltrúi lagði fram og fór yfir greinargerð um flutning Þrykkjunnar yfir í Vöruhús og starfið framundan. Fram kom að margt af húsmunum, tækjum og tólum er úr sér gengið og ónýtt. Hann sagði frá heimsókn sem hann fór í Pakkhúsið á Selfossi sem er ungmennahús til að kynna sér starfsemina þar og læra. Þrykkjan hóf starf í Vöruhúsi 3. september, búið er að kjósa í Þrykkjuráð og fara á Fjarðaball með 9. og 10. bekk sem fór mjög vel fram og þótti skemmtilegt. Þrykkjan er komin á Facebook, búið er að stofna tvo klúbba annan sem tengist Samaust, söngvakeppni og hinn tengist Stíl, hönnunarkeppni. Unnið er að því að skipuleggja meira klúbbastarf. Húsnæðið er enn hrátt og hugmyndin er að skreyta og mála í samræmi við hugmyndir þeirra sem sækja Þrykkjuna. Vilhjálmur kynnti skýrslu um skapandi samfélag, ákveðið að Ragnhildur sendi nefndarmönnum hana. Rætt um að Vilhjálmur kalli fljótlega saman ungmennaráð.

 

3. Starfsáætlun grsk. Hornafjarðar 
Þórgunnur Torfadóttir fór yfir starfsáætlun skólans sem er bæði í handbók skólans og á
heimasíðunni. Skólanefnd samþykkir starfsáætlun GH.
Þórgunnur sagði frá heimsókn sem skólinn fékk frá Verkfræðideild Háskóla Íslands til að
kynnast starfinu sem unnið hefur verið undanfarin ár í Legóhópum skólans. Hún kynnti
einnig þá nýbreytni að nú í fyrsta skipti verði allir nemendur í 7. bekk í Legó-vinnunni.

 

4. Skilgreining á skóladögum í grunnskólum
Fram kom að nemendadagar eru 176 auk fjögurra staflaðra daga,  sjá nánar skóladagatal GH.   Ákveðið að kanna viðhorf foreldra til skipulags á skóladagatali Grunnskóla Hornafjarðar á foreldradegi í nóvember.

5. Verklagsreglur um viðbrögð við verulegum frávikum nemenda og ábyrgð og skyldum í grunnskóla.
Fram kom að þessar reglur eru ekki verklagsreglur við almennum agabrotum í skólanum heldur reglur við mjög alvarlegum agabrotum og lögbrotum s.s. fíkniefna- neyslu eða sölu eða alvarlegu ofbeldi. Þessar verklagsreglur þjóna bæði þeim tilgangi að nemandi fái réttláta málsmeðferð og verndar starfsmenn skóla. Fram kom að viðbótarerindi var sent frá skólamálafulltrúa Sambands Íslenskra Sveitarfélaga kl. 14:20 í dag svo enginn fundarmanna hafði haft tíma til að lesa það erindi. Því er afgreiðslu frestað.

 

6. Tillaga um áskrift að Skólavoginni. 
Fram kom að það að hafa aðgang að skólavoginni auðveldi samanburð við aðra skóla og sveitarfélög. Þannig sparast ómældur tími við upplýsingaöflun. Skólanefnd samþykkir einróma að leggja til að Sveitarfélagið gerist áskrifandi að Skólavoginni.

 

7. Bréf mennta- og menningamálaráðuneytisins um eftirfylgni með úttekt á grsk. Hornafjarðar.
Fram kom að þann 21. Mars 2012 var kynnt  mat á framgangi umbótaáætlunarinnar og það sett á heimasíðu skólans.  Ákveðið að senda það mat til ráðuneytisins sem og slóð inn á þessar upplýsingar. Fram kom að sveitarstjórn þarf að marka stefnu i málefnum nemenda með sérþarfir.  Fræðslustjóra var falið að svara ráðuneytinu og hefja undirbúning að stefnumörkun í  málefnum nemenda með sérþarfir.

Umræður spunnust um lengda viðveru. Fram kom að 37 börn eru þar daglega. Umræður voru um skipulag starfsins með börnunum og virkni starfsmanna í skapandi leik með þeim. Fram kom að starfsmaður sem ber ábyrgð á daglegu starfi í lengdu viðverunni fær takmarkaðan undirbúningstíma sem stafar af því að hann er einnig starfsmaður skólans eins og aðrir starfsmenn í lengdu viðverunni.


8. Breyting á reglum leikskólanna í samræmi við breytta opnunartíma.
Búið er að setja nýjan opnunartíma inn reglurnar. Ítrekað að það komi fram á umsóknareyðublaði leikskólanna að ef fram kemur aukinn þörf um lengri opnunartíma verði opnunartími endurskoðaður.

9. Gjaldskrár til kynningar
Gjaldskrá fyrir fæði í Kátakoti stendur undir sér. Samþykkt að hækka ávaxtabitann í GH um 10 krónur í janúar.

10. Gjaldskrá sundlaugar og tillögur forstöðumanns.
Skóla- íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að gjaldskrá verði aðlöguð í samræmi við sambærilegar laugar en leggur áherslu á  að reglum  um börn, öryrkja og ellilífeyrisþega verði ekki breytt.


11. Stefna sveitarfélagsins í æskulýðs-íþrótta og tómstundamálum.
Skóla- íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að koma saman til vinnufundar um stefnumótunina 3. Október kl. 16:00 í Nýheimum.


12. Önnur mál  
a) Bréf frá HAUST, varðar öryggi á sundstöðum
Kynnt var bréf frá Heilbrigðiseftirlit Austurlands dags. 6. Sept. 2012. Skóla- íþrótta- og tómstundanefnd leggur áherslu á að farið sé eftir settum reglum um öryggi á sundstöðum.

b) Sáttagerð
Gerð var grein fyrir sáttargerð vegna ráðningar deildarstjóra hjá Grunnskóla Hornafjarðar. Skólanefnd hvetur Sveitarfélagið til að fara eftir settum reglum um ráðningu starfsmanna. 

c) Greiðslur vegna fæðis grunnskólabarna úr Öræfum í heimavistun á Höfn
Kynnt og samþykkt tillaga að fyrirkomulagi greiðslna.
d) Námstefna á Akureyri 12. október kynnt.
e) Matthildur kynnti dagskrá um eineltismál sem „Æskulýðsvettvangurinn“ stendur fyrir þann 22. Okt. Í Nýheimum.
f) Farið var í vettvangsferð í Vöruhús.

 

Fundi slitið kl. 19:50

 


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica