Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
24. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 22. ágúst 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Torfi Friðfinnsson, Snæfríður Svavarsdóttir, Harpa Þorgeirsdóttir, Jóhann Morávek, Gunnar Ingi Valgeirsson og Ragnhildur Jónsdóttir.
Ásgerður setti fund og bauð nýjan fræðslustjóra velkomin til starfa. Síðan hringdi hún í Stefán Ólafsson fráfarandi framkvæmdastjóra.
Í upphafi fundar var hringt í Stefán Ólafsson fráfarandi framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs. Þökkuðu nefndarmenn og Stefán hvert öðru fyrir samstarfið á liðnum árum.
Samþykkt að bæta við nýjum lið á dagskrá, 6. Liður; gjaldsskrá sundlaugar.
1. Fundargerð 23. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skólaakstur 2012-2013
Ragnhildur lagði fram og fór yfir yfirlit yfir skólaakstur fyrir skólaárið 1012-2013.
3. Leikskólar, skóladagatal
Harpa og Snæfríður komu inn undir þessum lið. Snæfríður fór yfir og útskýrði skóladagatal leikskólanna 2012-2013. Var skóladagatalið samþykkt samhljóða. Fyrirséð er að hægt verði að taka inn öll börn sem sótt hefur verið um vist fyrir á Lönguhólum. Fyrir sumarfrí vantaði starfsfólk þar, en nú hafa borist sex umsóknir og er verið að vinna í því að ráða mannskap. Torfi lagði fram fyrirspurn um ástæður þess að leikskólarnir loki kl. 16:15 á daginn í stað kl. 17:15. Snæfríður og Harpa útskýrðu ástæður þess, m.a. að mjög fá börn 2-3 samtals nýttu þennan tíma síðasta vetur og erfitt var að manna hann. Ásgerður sagði að ef myndaðist þörf fyrir þennan vistunartíma myndu þessar reglur verða endurskoðaðar. Harpa og Snæfríður fóru síðan yfir innri breytingar.
4. Endurskoðun á reglum um leikskóla samkvæmt samþykkt á 23. fundi
Talsverðar umræður voru um leikskólareglurnar. Samþykkt að gefa sér meiri tíma til að gera breytingar á þeim og leggja þær fyrir á næsta fundi.
5. Tónskóli A-Skaft., skóladagatal og staða ráðninga
Jóhann kom inn undir þessum lið. Hann fór yfir og útskýrði skóladagatal tónskólans sem hann taldi að félli vel að skóladagatali grunnskólans og var skóladagatalið samþykkt samhljóða. Þrjár umsóknir bárust um kennslu við tónskólann ; frá Rússlandi, Kína og Brasilíu og var Brasilíumaðurinn ráðinn. Þó verður bið á að hann komist til starfa vegna þýðingarmála hjá Útlendingastofnun. Þegar kennsluþörf liggur fyrir fer beiðni um viðbótarkennslumagn til afgreiðslu hjá bæjarráði.
6. Gjaldskrá sundlaugar og útleiga á húsnæði
Gunnar Ingi kom inn undir þessum lið. Hann lagði til að gjaldskrá sundlaugar verði breytt til samræmis við aðrar sundlaugar á landinu. Ræddar voru leiðir til að auka tekjur sundlaugarinnar. Ákveðið að Gunnar Ingi sendi tillögur sínar á nefndarmenn. Gunnar gerði að umtalsefni samning um leigugjald á fasteignun bæjarins, þar vantar gjaldskrá yfir færanlega sviðið og lagfæra þarf orðalag í gjaldskrá fyrir íþróttahúsið á Höfn. Einnig spunnust umræður um hvort bjóða eigi upp á útleigu sundlaugarinnar. Enn kemur fyrir þótt sjaldgæft sé, að fólk klifri yfir grindverk og stelist í laugina. Samþykkt að kæra slíkt athæfi til lögreglu.
7. Framkvæmdir við skóla sveitarfélagsins
Ragnhildur sagði frá breytingum í Heppuskóla sem lokið er og frá breytingum í Vöruhúsi KASK frá Jöklasýningu yfir í rými fyrir myndlistarkennslu, tómstundir ungmenna og aðra skapandi starfsemi.
8. Önnur mál
Lagt til að framvegis verði fundagögn send til nefndarmanna í rafrænu formi. Þeir sem það velja geta áfram fengið þau send í pappírsformi.
Að loknum fundi var farið í vettvangsferð í Heppuskóla.
Fundi slitið kl. 19:05.


