Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22

22. fundur

 

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 16. maí 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

 

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Harpa Þorgeirsdóttir, Ingibjörg Sveinsdóttir,  Stefanía Lóa Þórðardóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Magnhildur Gísladóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson og Stefán Ólafsson.          

 

Samþykkt að bæta við nýjum lið á dagskrá, 8. liður, skóladagatal.

1.      Fundargerð 21. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 

2.      Málefni leikskólanna

Skólatíminn 16 – 17. Fram kom að þessi skólatími er ekki í boði á Lönguhólum á þessu skólaári, ekki hefur tekist að manna hann. Í Krakkakoti eru núna 2 börn á þessum tíma. Sótt hefur verið um skólavist fyrir eitt barn á þessum tíma af þeim hópi sem er að innritast í fyrsta skipti í leikskóla. Í ljósi þess að mjög fáir sækjast eftir þessum tíma, hann feli í sér mikinn kostnað og erfitt hefur verið að manna hann samþykkir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að skólatíminn 16 -17 verði ekki í boði frá og með skólaárinu 2012 - 2013. Tveir nefndarmenn sátu hjá við afgreiðslu málsins. 

Kynning á námsferðum leikskólastarfsmanna. Tólf starfsmenn Krakkakots heimsóttu þrjá leikskóla í Malmö í Svíþjóð og kynntu sér leikskólastarfið. Aðspurð sagði Snæfríður að þessi heimsókn muni eflaust skila sér í leikskólastarfinu auk þess sem ferðin hafi verið hin ánægjulegasta.

Starfsmenn Lönguhóla heimsóttu leikskólana Aðalþing í Kópavogi og Rauðhól í Reykjavík. Í kjölfar þess hefur aldursskipting verði aukin í leikskólanum frá því sem nú er, kaffitímar starfsfólks breytast og salurinn nýttur sem matsalur fyrir tvær deildir. 

Leikskólastjórar gerðu grein fyrir samstarfi á milli leikskólanna og innra starfi þeirra.

Samstarf leikskóla og grunnskóla. Börn á lokaári leikskóla heimsækja grunnskólann  fimm sinnum yfir veturinn. Nemendur 1. bekkjar grunnskólans koma í eina heimsókn í  „gamla“ leikskólann sinn. Matta taldi að samstarf skólastiganna megi aukast í báðar áttir.

Rædd var stoðþjónusta í leikskólum og stuðningur við leikskólabörn, staða mála og hvað megi bæta á þessu sviði skólastarfsins. Samþykkt að unnið verði sambærilegt skjal vegna stoðþjónustu leikskóla og unnið var í Grunnskóla Hornafjarðar á þessu skólaári.

Leikskólastjórar ræddu samstarf  leikskóla og foreldra. Vilja auka virkni foreldraráðanna og foreldra almennt í leikskólastarfi.

Rætt var um mönnun leikskólanna og viðbrögð við auglýsingum eftir starfsfólki.

(Margrét, Snæfríður, Harpa og Ingibjörg sátu fundinn undir þessum lið.)

                                                                             

3.      Tónskóli A-Skaft., fjöldi kennslustunda 2012 - 2013                       

Farið yfir upplýsingar um fjölda kennslustunda og um leið þróun nemendafjölda á grunnskólastigi, sem er meirihluti nemenda skólans. Í vetur hafa verið kenndar 128 vikustundir, flestar voru þær 2008, samtals 153,5.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að heildarkennslustundafjöldi á viku í Tónskóla A-Skaft.- forskóli, einstaklingskennsla, tónfræði og hljómsveitaræfingar - verði 128 skólaárið 2012 – 2013.

 

4.      Túlkun (álit) mennta- og menningarmálaráðuneytis á skiptingu skóladaga í grunnskólum

(Hulda, Magnhildur og Stefanía Lóa komu inn á fundinn.)

Í áliti mennta- og menningarmálaráðuneytisins, vegna fyrirspurnar sem ráðuneytinu barst um skóladaga og útfærslu á þeim, kemur m.a. eftirfarandi fram: Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 skal starfstími nemenda í grunnskóla á hverju skólaári vera að lágmarki níu mánuðir og skóladagar nemenda eigi færri en 180 ... en í gildandi lögum er kveðið á um 170 kennsludaga nemenda að lágmarki á ári.  ... Ráðuneytið lítur svo á að skólum sé ekki heimilt miðað við 180 skóladaga að flokka fleiri en 10 skóladaga á hverju skólaári undir aðra skóladaga þar sem um mögulega skerta viðveru nemenda er að ræða, t.d. vegna skemmtana, foreldraviðtala eða prófa. ... 1. Ekki er heimilt að tvítelja skóladaga (staflaðir dagar).... 2. Ekki er heimilt að telja sem kennsludaga þá daga þar sem nemendur mæta eingöngu í skólann til að taka próf og fara svo strax að loknu prófi heim. ... 3. Ekki er heimilt að telja sem skóladaga samkomur á vegum skólans um helgar, t.d. vorhátíðir, íþróttahátíðir eða afmælishátíðir nema tryggt sé að allir starfsmenn skólans og nemendur taki þátt í skólastarfinu á umræddum dögum og að slíkt fyrirkomulag hafi verið samþykkt í starfsáætlun skólans. ... 4. Heimilt er að flokka vettvangsferðir og ferðalög sem kennsludaga að því tilskildu að nemendur séu skyldaðir til þátttöku og lengd ferðar sé a.m.k. sambærileg og samkvæmt stundaskrá á almennum kennsludegi.“

Fram hefur komið í Formannsfréttum Skólastjórafélags Íslands að félagið muni bregðast við þessu álit ráðuneytisins og mótmæla því.

                                                          

5.      Verklagsreglur vegna reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum

Gerð grein fyrir leiðbeiningum og verklagsreglum vegna reglugerðar um ábyrgð og skyldur  aðila skólasamfélagsins (nr. 1040 frá 2011). Einnig greint frá starfsemi fagráðs vegna eineltismála í grunnskóla og verklagsreglum fagráðsins. Ásgerður sagðist fagna því að þessar verklagsreglur séu fram komnar. Hulda tók undir orð Ásgerðar. Þá voru kynntar verklagsreglur Árborgar um viðbrögð við verulegum frávikum nemenda frá ábyrgð og skyldum grunnskóla sem samþykktar voru í mars 2012. Starfsmanni falið að hefja vinnu við verklagsreglur.

 

6.      Rekstur grunnskóla, ákvörðun um fjölda kennslustunda

Gerð grein fyrir þróun kostnaðar í grunnskólum sveitarfélagsins tímabilið 2007 – 2011. Fram kom m.a. að kostnaður á nemanda í Grunnskóla Hornafjarðar árið 2011er kr. 1.176.627 og hefur hefur lækkað um kr. 100.475 á föstu verðlagi frá 2007. Þróun rekstrarkostnaðar í Grunnskóla Hornafjarðar er í samræmi við fækkun nemenda við skólann. Kostnaður á nemanda í Grunnskólanum í Hofgarði árið 2011er kr. 2.903.241 og hefur lækkað um kr. 317.217 á föstu verðlagi frá 2007. Nemendur í Hofgarði eru á þessu tímabili 8 – 12 en í Grunnskóla Hornafjarðar 284 – 330.  (Kostnaður við skólaakstur og mötuneytiskaup af verktökum eru ekki inni í þessum tölum.)

Árlegur kostnaður við skólaakstur í sveitarfélaginu, reiknaður á föstu verðlagi, hefur lækkað úr kr. 55.335.142 í kr. 27.070.721. Munar þar mestu um skólaakstur á milli Hafnar og Nesjaskóla sem lauk vorið 2009.

Hulda sagði það sína skoðun að í rekstrinum hafi verið skorið nokkuð inn að beini í rekstri Grunnskóla Hornafjarðar. Óskaði hún eftir að gefið verði aðeins meira til baka en hagrætt hefur verið í skólanum undanfarin ár. Hins vegar sagðist Hulda sátt við 30 kennslustunda fjölgun frá síðasta skólaári.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að tekið verði mið af fjölda nemenda (bekkjardeilda) við úthlutun kennslustunda til Grunnskóla Hornafjarðar. Þeim fækkaði um 30 vikulegar kennslustundir á yfirstandandi skólaári frá skólaárinu á undan vegna fækkunar nemenda. Vegna fjölgunar nemenda og bekkjardeilda á næsta skólaári er lagt til að vikulegum kennslustundum verði fjölgað um 30, verði 867. Ekki er lögð til breyting á fjölda kennslustunda í Grunnskólanum í Hofgarði.

 

 

7.      Vistun nemenda úr Öræfum sem eru í Grunnskóla Hornafjarðar

Á þessu skólaári er einn nemandi úr Öræfum í Grunnskóla Hornafjarðar og býr hann í heimahúsi á Höfn. Gert er ráð fyrir að nemendur úr Öræfum verði 3 á næsta skólaári. Stefán gerði grein fyrir viðtölum sínum við foreldra grunnskólabarna í Öræfum sem sækja munu Grunnskóla Hornafjarðar. Fram kom að uppi eru skiptar skoðanir um vistun, sumir vilja koma á fót heimavist en aðrir nýta gistingu í heimahúsum.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að nemendur úr Öræfum, sem sækja Grunnskóla Hornafjarðar, verði í heimahúsi á næsta skólaári.  

 

8.      Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar

Lagt fram skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar og var það samþykkt samhljóma.

 

9.      Könnun á vímuefnanotkun nemenda í 8. – 10. bekk

Stefán             gerði grein fyrir samskiptum sínum við starfsmann Rannsókna og greiningar og kostnaði við að fá upplýsingar um vímuefnanotkun þessa aldurshóps í sveitarfélaginu frá fyrirtækinu. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að fengnar verði upplýsingar frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnanotkun nemenda. Vísað til starfsmanns að finna lausn á á fjármögnun verkefnisins.  (Hulda, Magnhildur og Stefanía Lóa viku af fundi.)

               

10.  Félagsmiðstöð, lengd viðvera og ráðning tómstundafulltrúa

(Árni Rúnar kom inn á fundinn.)

Farið yfir minnisblað um félagsmiðstöð, dags. 27. apríl 2012.        

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að auglýst verði staða tómstundafulltrúa í samræmi við minnisblaðið.

 

11.  Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum

Farið yfir drög að stefnumótun. Lagt til að drögin verði kynnt í bæjarráði. Í kjölfarið komi nefndin saman til vinnufundar um stefnumótunina.

 

12.  Önnur mál  

Matthildur gerði að umtalsefni ferðakostnað vegna íþróttakeppna. Benti hún m.a. á  umræðu og áskoranir sem fram komu í Austurglugganum um að bæjaryfirvöld taki sig saman og þrýsti á stjórnvöld að styðja við íþróttafélög á landsbyggðinni vegna þátttöku þeirra í keppnum. Starfsmanni falið að afla upplýsinga um ferðakostnað íþróttamanna á Hornafirði.

 

13.  Einstaklingsmál

Fært í trúnaðarbók.

 

Fundi slitið kl. 19:55  


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica