Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 18. apríl 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Herdís Tryggvadóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Ingi Valgeirsson og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 20. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Ósk Grunnskóla Hornafjarðar um meiri stuðning við ferðir nemenda
Ósk skólans var einnig til umræðu á 20. fundi nefndarinnar. Frá þeim tíma hafa borist upplýsingar frá tveimur sveitarfélögum um framlag þeirra vegna ferða nemenda á vegum grunnskóla. Einnig greint frá styrk félagsmálaráðs úr forvarnasjóði vegna ferða 9. bekkinga að Laugum í Sælingsdal og 7. bekkinga að Reykjum í Hrútafirði. Hulda lagði áherslu á mikilvægi þessara ferða fyrir nemendur þar sem þeir hittu m.a. jafnaldra sína af öðrum stöðum á landinu. Einnig rætt um skíðaferðir 6. og 8. bekkinga í Oddsskarð og kynnisferð 8. bekkjar í Verkmenntaskóla Austurlands sem farin er samhliða skíðaferðinni. Einnig veltu fundarmenn fyrir sér mögulegum samskiptum við skóla sem nær eru, svo sem á Klaustri og á Djúpavogi í stað þessara löngu ferðalega vestur og norður í land. Fram kom að fulltrúar foreldra í skólaráði grunnskólans óska eftir því að skíðaferðir 6. og 8. bekkjar og ferðir 7. og 9. bekkjar að Reykjum og Laugum verði farnar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur ekki til að aukið verði við framlög vegna ferðalaga nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar á þessu ári. Leggur nefndin jafnframt til að þessi framlög verði tekin til endurskoðunar með fjárhagsáætlunargerð ársins 2013.
3. Forvarnamál
Greint frá upplýsingum frá Rannsóknum og greiningu sem um alllangt skeið hefur séð um kannanir á lífi ungs fólks á Íslandi, svo sem högum, líðan, neysluvenjum o.fl.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að fengnar verði nýjustu upplýsingar úr könnunum Rannsókna og greiningar um vímuefnanotkun ungmenna á Hornafirði.
Ásgerður gerði að umtalsefni námskeiðið „hugsað um barn“,þar sem nemendur fá innsýn í kröfur foreldrahlutverksins í gegnum upplifun“
(Hulda, Herdís og Stefanía Lóa viku af fundi eftir þennan lið.)
4. Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum 17:00
(Árni Rúnar og Gunnar Ingi komu inn á fundinn.)
Farið yfir gögn sem liggja fyrir eftir stefnumótunarfund sem haldinn var í Nýheimum laugardaginn 24. mars sl. Einnig farið yfir önnur gögn sem fyrir liggja vegna stefnumótunarvinnunnar.
Starfsmönnum stefnumótunarvinnunnar falið að vinna fyrstu drög að stefnu.
5. Önnur mál
Engin fram borin.
Fundi slitið kl. 18:25


