Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20

20. fundur

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 21. mars 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Magnhildur Gísladóttir,  Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hulda Laxdal Hauksdóttir og Stefán Ólafsson.          

 

1.      Fundargerð 19. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 

2.      Stefna Grunnskóla Hornafjarðar í sérkennslumálum

Farið yfir tillögur að stefnu Grunnskóla Hornafjarðar, stoðþjónusta – skipulag, markmið og leiðir, framhaldsumræða frá 19. fundi nefndarinnar.

Stefnan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

 

3.      Umbótaáætlun Grunnskóla Hornafjarðar

Hulda fór yfir stöðu umbóta í Grunnskóla Hornafjarðar í kjölfar úttektar á skólamálum, sbr. umbótaáætlun, dags. 29. mars 2011. Útskýrði hún hvað unnið hafi verið á vegum skólans frá því að umbótaáætlunin var lögð fram og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

 

4.      Samningur vegna skólamáltíða í Grunnskóla Hornafjarðar, vísað til nefndarinnar af bæjarráði

Samkvæmt útboðsskilmálum er heimilt að framlengja samning um skólamáltíðir um tvö ár. Verktaki hefur lýst yfir vilja sínum að halda áfram með verkið næstu tvö skólaár. Bæjarráð vísaði málinu til umfjöllunar hjá skólastjórum, í skólaráði og skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Skólastjórnendur leggja áherslu á ákveðnar breytingar á matseðli. Þær breytingar munu leiða til meiri kostnaðar samkvæmt upplýsingum verktaka.

Skóla-,íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að samið verði við verktaka til tveggja næstu ára á sama grunni og samið var um í framhaldi af útboði á skólamáltíðum fyrir Grunnskóla Hornafjarðar árið 2009.

 

5.      Ósk Grunnskóla Hornafjarðar um meiri stuðning við ferðir nemenda

Grunnskóli Hornafjarðar óskar eftir því að sveitarfélagið hækki framlag sitt til aksturs vegna nemendaferða. Óskin er sett fram til að hægt verði að greiða rútukostnað vegna  ferða nemenda í 7. og 9. bekk í skólabúðir og skíðaferðalaga 6. og 8. bekkjar.  Mikil umræða spannst um um hinar ýmsu ferðir á vegum skólans, gildi þeirra og kostnað fyrir foreldra.  

Samþykkt að kannað verði á meðal sambærilegra sveitarfélaga hvað þau leggi skólum til af fjármagi vegna ferða á vegum grunnskóla og í hvaða ferðir verið er að fara.  

 

6.      List- og verkgreinar í Vöruhúsi – skýrsla starfshóps

Skýrsla starfshóps um sameiginlegt húsnæði fyrir kennslu í list- og verkgreinum í grunnskóla og framhaldsskóla og aðstöðu fyrir listamenn og hönnuði sem og félagsmiðstöð ungmenna. Niðurstöður starfshóps: „Í samræmi við það sem að framan greinir er niðurstaða starfshópsins sú að á næsta skólaári fari fram kennsla í list- og verkgreinum umfram það sem nú er kennt í Vöruhúsi. Hönnuðum og listamönnum verði gert kleift að nýta húsið fyrir sína starfsemi. Næstu tvö ár verði reynslutími sem nýttur verði til að byggja á ákvarðanir til lengri framtíðar. Þá liggi fyrir ákvörðun um hvort list- og verkgreinar verði áfram í húsinu eða nýtt hús byggt. Verði Vöruhús nýtt áfram er rétt að huga að því að kaupa húsið fremur en leigja.“

Undir þessum lið var rætt um staðsetningu félagsmiðstöðvar og mikilvægi þess að hún hafi varanlegan samanstað sem auðveldlega geti farið saman með verk- og listgreinum.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd er sammála því að unnið verði í samræmi við skýrsluna með ákveðna framtíðarsýn í huga.  (Stefanía Lóa, Hulda og Magnhildur viku af fundi.)

 

7.      Staða talmeinafræðings

Greint frá því að talmeinafræðingur sem nú sinnir þjónustu fyrir leikskóla og grunnskóla sem verktaki hyggist ekki endurnýja samning sinn við sveitarfálagið en hann rennur út í lok yfirstandandi skólaárs. Einnig greint frá því að sálfræðingur sem sinnir þjónustu við sömu skólastig sem verktaki sé með lausan samning eftir skólaárið.

 

8.      Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum                   Kl. 18:15

(Gunnar Ingi sat fundinn undir 8., 9. og fyrsta hluta 12. liðar og Árni Rúnar undir 8. lið og fyrsta hluta 12. liðar.)

Árni Rúnar, Gunnar Ingi og Stefán gerðu grein fyrir stöðu á vinnu við stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum í sveitarfélaginu og skipulagi á opnum fundi sem verður í Nýheimum laugardaginn 24. mars nk. frá kl. 10 – 14. Fyrirkomulag vinnunnar var rætt og var nefndin sammála því plani sem kynnt var.

 

9.      Aðsent bréf vegna sundlaugar

Tekið fyrir bréf Ragnheiðar Rafnsdóttur til „Skólanefndar Hornafjarðar“, dags. 1. mars 2012, þar sem hún vekur athygli nefndarinnar á ýmsum atriðum er varða sundlaugina, svo sem lög, reglur, umgengni, gæslu starfsmanna o.fl. þætti.

Undir þessum lið var einnig rætt um yfirbreiðslu yfir sundlaugina og notkun hennar.  

 

10.  Niðurstöður heilsuþings

Teknar til umræðu niðurstöður heilsuþings sem haldið var 5. október 2011. Meginþemu þingsins voru hreyfing, hugarfar/geðrækt, forvarnir/fræðsla, mataræði, samvera. Vísað til vinnu að stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum 

 

11.  Viðmiðunarreglur Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna leikskóladvalar barna utan lögheimilissveitarfélags

Til kynningar.

 

12.  Önnur mál

·         Lögð fram fundargerð 4. fundar ungmennaráðs, dags. 15. mars 2012. Umræður urðu um ráðstefnuna „Ungt fólk og lýðræði“. Hluti ungmennaráðs og tómstundafulltrúi munu sækja ráðstefnuna.

·         Tekið fyrir bréf félagsmálastjóra, fært í trúnaðarbók. Þennan lið sátu einungis kjörnir fulltrúar og starfsmaður nefndarinnar.

 

Fundi slitið kl. 19:50  


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica