Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
19. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 15. febrúar 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Magnhildur Gísladóttir, Þórhildur Kristjánsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hulda Laxdal Hauksdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 18. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Erindisbréf ungmennaráðs
(Fulltrúar ungmennaráðs, Arnar Freyr Valgeirsson, Helgi Björn Hjartarson, Anna Mekkín Reynisdóttir, sátu fundinn undir öðrum og þriðja dagskrárlið.)
Árni þakkaði fyrir að ungmennaráði hafi verið boðið að sitja fundinn og greindi frá aðkomu ráðsins að umfjöllun um erindisbréfið. Tillaga að breyttu erindisbréfi rædd. Töluverð umræða skapaðist um tímasetningu funda ungmennaráðs með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd sem og fundar með bæjarstjórn sem gert er ráð fyrir í erindisbréfinu.
Nýtt erindisbréf samþykkt og sent til afgreiðslu í bæjarráði.
3. Fundargerð ungmennaráðs, 3. fundur, 19. janúar 2012
Í fundargerð kom m.a. fram að bæjarstjóri hafi fundað með ungmennaráði. Þar var m.a. rædd hugmynd um bæjarstjórn unga fólksins. Á sama fundi lagði ráðið áherslu á að mæta á fund með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Á þessum fundi ráðsins var töluvert rætt um jaðaríþróttir, list- og verkgreinar, listahátíð unga fólksins og ýmis mál sem varða ungt fólk. Rætt um hvernig skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd geti nýtt sér krafta ungmennaráðs í sínum störfum.
4. Stefnumótun í æskulýðs- íþrótta- og tómstundamálum
Farið yfir tillögur forstöðumanns íþróttamannvirkja og tómstundafulltrúa að verkferli við mótun stefnu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir það verklag sem kynnt var fyrir nefndinni og leggur til að vinna að stefnumótuninni hefjist nú þegar.
(Gunnar Ingi vék af fundi.)
5. Styrkir til æskulýðs- og íþróttamála
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir eftirtalda styrki:
| Ungmennaf. Sindri - samningur | 14.240.000 | 14.240.000 | * |
| Ungmennaf. Máni | 350.000 | 350.000 | ** |
| Golfklúbbur Hornafjarðar - samningur | 2.000.000 | 2.000.000 | |
| Golfklúbbur H.- aukaframl. v. kaupa á sláttuvél | 2.000.000 | *** | |
| Óráðstafað | 150.000 | 150.000 | |
| Samtals | 16.740.000 | 18.740.000 |
|
||||||||||||||||||||||||||||
|
Matthildur minnti á að á árum áður hafi æskulýðs- og tómstundaráð ráðið yfir nokkru fjármagni til að úthluta til afreksmanna í íþróttum. Ásgerður benti á að þetta væri eitt af því sem taka mætti upp í stefnumótunarvinnu í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum. Úthlutun samþykkt. |
||||||||||||||||||||||||||||
|
(Árni Rúnar vék af fundi.)
|
||||||||||||||||||||||||||||
6. Stefna í sérkennslumálum grunnskóla
(Hulda Laxdal Hauksdóttir skólastjóri, Þórhildur Kristjánsdóttir deildarstjóri sérkennslu, Magnhildur Gísladóttir fulltrúi grunnskólakennara og Stefanía Lóa Þórðardóttir fulltrúi foreldra sátu fundinn undir þessum lið.)
Þórhildur fór yfir tillögur að stefnu Grunnskóla Hornafjarðar, stoðþjónusta – skipulag, markmið og leiðir. Auk umræðu um stoðþjónustuna var m.a. rætt um móttöku nýrra Íslendinga sem hefja nám í grunnskólanum. Töluverðar umræður spunnust um þennan samfélagshóp og hættuna á að hann sé einangraður. Það skapi m.a. erfiðleika fyrir börnin. Bent var á að til þyrfti að vera stefna hjá sveitarfélaginu um málefni nýrra Íslendinga.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að taka stefnuna til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar.
7. Erindisbréf skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar
Í samræmi við samþykkt skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um breytta fundarsetu áheyrnarfulltrúa er lögð til eftirfarandi breyting á erindisbréfi nefndarinnar, sbr. feitletraðar viðbætur:
„Auk kjörinna fulltrúa eiga bæjarstjóri og framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti. Sama rétt eiga fulltrúar eftirtalinna hópa“ og sitja þeir fundi nefndarinnar undir liðum sem varða þeirra skólastig/málaflokk : „Einn fulltrúi skólastjóra við grunnskóla sveitarfélagsins, einn fulltrúi skólastjóra við leikskóla sveitarfélagsins, skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu, einn fulltrúi kennara við grunnskóla sveitarfélagsins, einn fulltrúi starfsmanna við leikskóla sveitarfélagsins, einn fulltrúi foreldra barna í grunnskólum, einn fulltrúi foreldra barna í leikskólum,“ tómstundafulltrúi, forstöðumaður íþróttamannvirkja og ungmennaráð í samræmi við erindisbréf þess.
Nýtt erindisbréf skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar samþykkt og sent til afgreiðslu í bæjarráði.
8. Ábyrgð og eftirlit nefndarinnar
Farið yfir leiðbeiningar um innra mat leik- og grunnskóla sem og yfirlit um skyldur og ábyrgð nefnda sem fara með málefni leikskóla og grunnskóla.
Undir þessum lið var ákveðið að umbótaáætlun Grunnskóla Hornafjarðar verði tekin til umfjöllunar á næsta fundi nefndarinnar.
9. Önnur mál
Sigrún Kapitóla gerði að umtalsefni könnun á vegum Sambands ísl. sveitarf. um reiðhjólanotkun í sveitarfélögum og saknaði að engar upplýsingar hafi borist frá Sveitarfélaginu Hornafirði.
Fundi slitið kl. 19: 05


