Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
18. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 18. janúar 2012 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Herdís Tryggvadóttir, Fjóla Jóhannsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hulda Laxdal Hauksdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 17. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Starfsemi félagsmiðstöðvar, Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni fór yfir greinargerð sína um starfsemi félagsmiðstöðvar á haustönn 2011, aðsókn að henni, ferðalög á vegum hennar o.fl. Rætt var um framtíð félagsmiðstöðvar sem Árni taldi að mörgu leyti bjarta. Hann fór yfir mögulegar breytingar á húsnæði hennar og hugsanleg áhrif þeirra. Lagði Árni í því sambandi áherslu á framtíðarstaðsetningu félagsmiðstöðvar, stöðu hennar innan stjórnkerfis sveitarfélagsins og velti upp hugmynd um nánara samstarf hennar við grunnskóla. Rætt var um aðsókn einstakra bekkja að félagsmiðstöð og hvað væri þess valdandi að aðsókn væri misjöfn eftir aldri. Fram kom í umræðum að almennt væru ungmenni á þessum aldri mjög upptekin við aðra starfsemi, íþróttir, tónlist o.fl.
3. Fundargerð ungmennaráðs, 2. fundur, 15. desember 2011
Farið yfir fundargerð ungmennaráðs og skipan þess. Greint var frá því að að næsti fundur ráðsins verði fimmtudaginn 19. janúar. Árni fór yfir vinnu við erindisbréf ráðsins og greindi frá hugmyndum að breytingum á því. Spunnust nokkrar umræður um starfsemi ráðsins og með hvað hætti skipað er í það. (Árni vék af fundi)
4. Opnunartími leikskóla, erindi Vinnumarkaðsráðs Austurlands, vísað til nefndarinnar af bæjarráði
Í erindi Vinnumarkaðsráðs er óskað eftir að kannaður verði sá möguleiki að opna leikskóla kl. 7. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd sér ekki ástæðu til að breyta opnunartíma leikskóla. Hér opni leikskólar kl. 7:45 og ekki annað séð að það mæti þeirri eftirspurn sem til staðar er. Stefán gerði að umtalsefni hvort Vinnumarkaðsráð Austurlands hafi rætt á sínum vettvangi hvort það geti talist æskilegt að vekja börn rúmlega sex að morgni til að koma þeim í leikskóla klukkan 7. Var undir þetta sjónarmið tekið og bent á að það væri ekki í samræmi við fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.
5. Tillaga um að skoða aðild sveitarfélagsins að Skólaskrifstofu Suðurlands, svör skrifstofunnar
Farið yfir bréf starfsmanns nefndarinnar til Skólaskrifstofu Suðurlands þar sem spurt var hvort aðild Sveitarfélagsins Hornafjarðar að skrifstofunni kæmi til greina. Einnig var spurt um þjónustu skrifstofunnar við skóla á hennar starfssvæði. Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands tekur jákvætt í erindið. Þá svaraði framkvæmdastjóri Skólaskrifstofu Suðurlands öllum spurningum um þá þjónustu sem skrifstofan veitir.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að bætt þjónusta við skóla sveitarfélagsins og aðrar stofnanir þess verði tekin til skoðunar í tengslum við hugsanlegar breytingar á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Umræða um aðild að Skólaskrifstofu Suðurlands verði tekin með í þeirri skoðun.
Hulda lagði áherslu á að leita allra leiða til að efla þjónustu við skólana, svo sem að efla starfið hér heima og/eða horfa til samstarfs austur eða suður.
Undir þessum lið ræddi Ásgerður ráðstefnu um aðalnámskrá sem haldin var á vegum allra skólastiganna þriggja, leik-, grunn- og framhaldsskóla, í Nýheimum 13. janúar sl. Lýsti hún ánægju sinni með ráðstefnuna.
6. Ósk um breytingu á skóladagatali Grunnskóla Hornafjarðar
Óskað er eftir því að skipulagsdagur grunnskólans verði færður frá 26. mars til 20. apríl, m.a. til að vera með hann sama dag og leikskólarnir.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir beiðni grunnskólans um tilfærslu á skipulagsdegi.
Undir þessum lið var kynnt breytt fyrirkomulag „vorskóla“ fyrir lokaárgang leikskóla sem verður ekki aðeins í maí eins og áður var heldur mánaðarlega til vors. Var þessu fagnað.
7. Kynning á meistaraprófsritgerð, Tveir stjórar í brúnni, Hulda Laxdal Hauksdóttir
Hulda gerði grein fyrir helstu niðurstöðum meistaraprófsritgerðar sinnar sem fjallaði um fyrirkomulag tveggja skólastjóra í sama grunnskóla. Skoðaði hún í þessu sambandi skóla þar sem þetta fyrirkomulag er til staðar og annan skóla þar sem þetta fyrirkomulag var til staðar.
8. Önnur mál
a) Matthildur spurðist fyrir um framkvæmdir við skóla sveitarfélagsins. Ásgerður greindi frá stöðu þeirra mála og væntanlegum útboðum vegna leik- og grunnskóla.
b) Lovísa spurðist fyrir um starfsemi leikskólanna á milli 16 –17 og auglýsingum eftir starfsfólki til að vinna á þeim tíma. Stefán greindi frá að erfitt hafi verið að fá fólk til að starfa á þessum tíma.
c) Tilkynning mennta- og menningarmálaráðuneytisins um dagsetningu samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2012.
10. bekkur
Íslenska mánudagur 17. september
Enska þriðjudagur 18. september
Stærðfræði miðvikudagur 19. september
4. og 7. bekkur
Íslenska fimmtudagur 20. september
Stærðfræði föstudagur 21. september
d) Farið yfir útsend gögn sem taka til skipulags fundarsetu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til eftirfarandi skipulag á fundarsetu áheyrnarfulltrúa í nefndinni: Áheyrnarfulltrúar hvers skólastigs/málflokks sitji fundi eingöngu undir þeim málum sem þá varða. Þannig verði sem dæmi tekin fyrir mál sem varða leikskóla og að lokinni umfjöllun um þau ljúki fundarsetu viðkomandi áheyrnarfulltrúa. Boðað verði til fundanna með þetta fyrirkomulag í huga og dagskrárliðir tímasettir í fundarboði.
e) Stefán greindi frá ákvörðun sinni um lok starfs sem framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.
Fundi slitið kl. 18: 40


