Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17

17. fundur

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 14. desember 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Magnhildur Gísladóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir og Stefán Ólafsson.          

1.      Fundargerð 16. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 

2.      Niðurstöður samræmdra prófa í 4., 7. og 10. bekk

Farið yfir útsend gögn, yfirlit yfir niðurstöður í samræmdum (könnunar-)prófum í Grunnskóla Hornafjarðar og forverum hans 2003 – 2011. Fram kemur í yfirlitinu að á umræddu tímabili hafi skólarnir almennt verið undir landsmeðaltali í þessum prófum, þó ekki sé það án án undantekninga. Umræður urðu um þessar niðurstöður og ástæður fyrir þeim. Hulda benti á að niðurstöður samræmdra prófa og einstakra prófþátta nýtist kennurum vel sem vinnutæki. Magnhildur taldi að skólinn þyrfti að vera meira vakandi yfir þessum þætti skólastarfsins. Matthildur spurði hvort krafan um árangur væri nógu ákveðin.

Undir þessum lið var einnig fjallað um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar sem hann flutti á 174. fundi bæjarstjórnar þar sem lagt er til að skóla -, íþrótta – og tómstundanefnd .. meti hvort ástæða sé til að setja á fót starfshóp til þess að greina námsárangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar á samræmdum prófum. Bæjarstjórn vísaði tillögunni til umræðu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.  

Ásgerður greindi frá framangreindri tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarstjórn.  Hún lagði í framhaldinu áherslu á mikilvægi þess að tryggja góðan árangur í skólastarfinu.  Vísaði hún í nýja aðalnámskrá og að innleiðingarferli hennar ætti meðal annars að miðast út frá umræðunni um árangur í skólastarfi. 

Undir umræðu um samræmd próf og framangreinda tillögu greindi Hulda frá að hverjum skóla væri lögbundið að vera með innra mat þar sem niðurstöður samræmdra prófa væru skoðaðar ásamt öllum öðrum þáttum skólastarfsins. Í kjölfar mats væri komið með úrbótaáætlanir í þeim þáttum sem talið væri eðlilegt að bregðast þyrfti við. Allir þættir skólastarfsins væru mikilvægir, samræmdu prófin þar meðtalin en skólastjórnendur teldu ekki ástæðu til að taka einn þátt út og rannsaka sérstaklega þegar allt skólastarf væri undir í innra mati skólans. Þá fyndist skólastjórnendum ástæða til að benda á þær miklu breytingar sem átt hafa sér stað á undanförnum árum í starfi grunnskólans. Þær breytingar hafi skapað mikið álag á alla starfsmenn skólans og mikilvægt væri að þeir geti nú beint kröftum sínum í meira mæli að nemendum og námi þeirra. Einnig greindi Hulda frá fyrirhugaðri vinnu vegna innleiðingar nýrrar aðalnámskrár en samkvæmt henni muni verða veruleg breyting á flestum þáttum skólastarfsins. Þar biði skólans mikil vinna þar sem allir þættir skólastarfs væru undir, þar með talið námsmat og árangur í skólastarfi. Hulda sagði einnig að það væri ósk skólastjórnenda að skólanefnd standi við bakið á skólanum við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár.

Matthildur spurði  hvort ástæða væri til að skólarnir hér ættu að eiga sér stuðningsskóla og vitnaði í því sambandi m.a. í úttektarskýrslu vegna Grunnskóla Hornafjarðar.

Ásgerður bar upp eftirfarandi tillögu:

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur áherslu á þá ferla sem eru innan skólans í innra mati, bæði á námsárangri og öðrum þáttum  skólastarfs. Miklar breytingar eru framundan við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og vill skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggja áherslu á að styðja við bakið á skólunum í þeirri vinnu. Hvernig til tekst við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár mun væntanlega sjást í niðurstöðum samræmdra prófa næstu árin. Um leið er lögð áhersla á að námsárangur viðhaldist og helst styrkist alla skólagönguna.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkt bókunina samhljóða.  

 

3.      Tillaga um að skoða aðild sveitarfélagsins að Skólaskrifstofu Suðurlands

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar flutti á 174. fundi bæjarstjórnar eftirfarandi tillögu sem vísað var til skóla-, íþrótta og tómstundanefndar:  „Bæjarstjórn felur skóla - , íþrótta – og tómstundanefnd að kanna kosti þess að Sveitarfélagið Hornafjörður gerist aðili að Skólaskrifstofu Suðurlands.“

Hulda lagði áherslu á að leitað verði leiða til að efla stuðning við skólastarf.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur formanni og starfsmanni nefndarinnar að afla upplýsinga sem varða þetta mál og kynna á næsta fundi nefndarinnar.  

 

 

4.      Erindisbréf ungmennaráðs Hornafjarðar

Á 568. fundi bæjarráðs var  skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd falið að endurskoða erindisbréf ungmennaráðs. Nefndin samþykkir að vísa vinnu við endurskoðun á erindisbréfinu til starfsmanna og til umfjöllunar í ungmennaráði. Niðurstöður þeirrar vinnu verði kynntar á næsta fundi nefndarinnar.

Matthildur vakti athygli á ráðstefnu sem haldin verður í mars nk. – Ungt fólk og lýðræði, haldin á Hótel Örk í Hveragerði.

Undir þessum lið var einnig kynnt 1. fundargerð ungmennaráðs, dags. 17. nóvember 2011.

 

5.      Athugasemd mennta- og menningarmálaráðuneytis um fjölda skóladaga í grunnskólum 2010 – 2011

Fram kemur í bréfi ráðuneytisins að skóladagar í Grunnskóla Hornafjarðar hafi verið 178 en eigi að vera 180. Starfsmanni nefndarinnar og skólastjórnendum falið að svara bréfi ráðuneytisins.

 

6.      Önnur mál 

Greint frá kynningarfundi um aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla sem haldinn verður í Nýheimum 13. janúar nk.

Matthildur lýsti yfir ánægju með útieldstó á Lönguhólum, sem var vígð fyrir skömmu.

 

Fundi slitið kl. 17: 55


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica