Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
15. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 19. október 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Torfi Friðfinnsson, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Herdís Tryggvadóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 14. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Stundatafla Þrykkjunnar 2011 - 2012
|
|
|||||
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | |
| Opið hús í hádeginu fyrir Heppuskóla | Opið hús í hádeginu fyrir Heppuskóla | Opið hús í hádeginu fyrir Heppuskóla | Opið hús í hádeginu fyrir Heppuskóla | Opið hús í hádeginu fyrir Heppuskóla | |
| Opið hús f/ 6. og 7. bekk Kl: 14:10-16:00 | Opið hús f/ 7. - 10. bekk kl.14:30-17:00 | Opið hús f/ 6. og 7. bekk Kl: 14:10-16:00 | Opið hús f/ 5. bekk kl.14:30-17:00 | Opið hús f/ 6. og 7. bekk Kl: 14:10-16:00 | |
| Opið hús f/ 8.-10. bekk kl.20:00-22:00 | Opið hús f/ 8.-10. bekk kl.20:00-22:00 | Opið hús f/ 8.-10. bekk kl.20:00-22:00 | |||
|
Í tímanum frá kl. 14:10 eða 14:30 verður boðið upp á aðstoð við heimanám.
Stundtaflan var samþykkt með breytingum í Þrykkjuráði eftir yfirferð þess. Gert er ráð fyrir að hún gæti breyst um áramót. Fundarmönnum afhent erindisbréf Þrykkjunnar. |
|||||
Undir þessum lið var einnig greint frá skipan ungmennaráðs:
Helgi Björn Hjartarson, formaður Þrykkjuráðs,
Arnar Ingi Valgeirsson, formaður nemendaráðs Grunnskóla Hornafjarðar,
Sigfinnur Björnsson, forseti nemendafélags FAS,
Anna Mekkín Reynisdóttir, fulltrúi Sindra,
Inga Ingvadóttir, utan félagasamtaka og skóla.
3. Tillögur að gjaldskrám stofnana sem falla undir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkti að gjaldskrár 2012 verði með eftirfarandi hætti:
Gjaldskrá fyrir leikskóla, skólagjöld og fæði breytist ekki að öðru leyti en því að 9 tími leikskólabarns verði tvöfalt hærri en fyrstu 8 tímar þess.
Gjaldskrá fyrir lengda viðveru, skólagjöld og fæði breytist ekki.
Gjaldskrá fyrir skólamötuneyti í grunnskóla breytist ekki.
Gjaldskrá fyrir nám í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu breytist ekki.
Gjaldskrá fyrir Sundlaug Hafnar:
| Stakir tímar - fullorðnir | 500 | kr. |
| Stakir tímar - börn | 200 | kr. |
| 15 miða kort - fullorðnir | 3.850 | kr. |
| 15 miða kort - börn | 1.500 | kr. |
| Árskort - fullorðnir | 27.500 | kr. |
| Árskort - börn | 10.150 | kr. |
| Leiga á handklæðum | 400 | kr. |
| Leiga á sundfötum | 400 | kr. |
| Sturtugjald - fullorðnir | 350 | kr. |
| Sturtugjald - börn | 150 | kr. |
Lovísa sat hjá við afgreiðslu á gjaldskrá sundlaugar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að tómstundakort, styrkur til foreldra, verði 20.000 kr. ári fyrir hvert barn.
4. Erindi frá Umf. Sindra
Í erindi frá stjórn sunddeildar Sindra er farið fram á „.... að þeir einstaklingar, 18 ára og yngri, sem æfa sund með deildinni fái frítt í Sundlaug Hafnar. Í dag eru þau 16 einstaklingar sem eru á aldrinum 10-18 ára.“
(Lovísa vék af fundi undir afgreiðslu þessa erindis.)
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að veita 50% afslátt af árskorti í Sundlaug Hafnar fyrir þá sem æfa sund hjá sunddeildinni æfingaárið 2011 - 2012.
5. Úthlutun styrkja vegna foreldrastarfs í skólum
Samþykkt samhljóða að skipta þeim 300.000.- kr. sem eru á fjárhagsáætlun ársins 2011, ætluð til foreldrastarfs í skólum, með eftirfarandi hætti: Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar 181.000.- og foreldrafélagið Krakkahólar kr. 69.000.-, skipt eftir fjölda nemenda. Til foreldrastarfs við Grunnskólann í Hofgarði kr. 25.000.- og til foreldrastarfs við Tónskóla A-Skaft. kr. 25.000.-, ekki skipt eftir nemendafjölda.
6. Önnur mál
Greint frá bréfi Gunnhildar Lilju Gísladóttur / foreldri nemenda á yngsta og elsta stigi í Grunnskóla Hornafjarðar. Bréfritari fagnar fyrirhuguðum endurbótum á Heppuskóla en gerir um leið athugasemdir við að ekki sé gert ráð fyrir að aðstaða nemenda á unglingastigi til að matast verði gerð betri en hún er í dag.
Undir umræðum kom fram að nefndarmenn töldu að vegalengd yfir í mötuneytisaðstöðu nemenda ætti ekki að skipta máli, hún væri ekki svo löng. Einnig bent á að nemendur eru að fara sömu vegalengd til að fara í hinar ýmsu námsgreinar.
Í athugasemdum skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar við bréfi Gunnhildar segir m.a.: „Af gefnu tilefni vil ég því taka fram að við stöndum ekki í vegi fyrir því að fá matsal hingað en teljum hins vegar að þær breytingar sem verið er að vinna að í skólanum núna gefi ekki færi á að koma fyrir mataraðstöðu nema þá mesta lagi aðstöðu sem gengi verulega á aðra aðstöðu sem nemendur þurfa á að halda.“
Undir þessum lið var einnig rætt um húsnæði grunnskólans, fjölda nemenda og nýtingu húsnæðis. Fram kom hjá skólastjóra að allt húsnæði skólans sé nýtt í dag.
Lovísa spurðist fyrir um akstur með leikskólabörn og var því svarað.
Fundi slitið kl. 18:35


