Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
14. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 21. september 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Magnhildur Gísladóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Snæfríður Svavarsdóttir, Harpa Þorgeirsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 13. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Vetrarstarf Þrykkjunnar
Ásgerður bauð Árna Rúnar Þorvaldsson velkominn til starfa sem tómstundafulltrúi sveitarfélagsins. Fór hann yfir áætlanir um vetrarstarf félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar. Gerði hann grein fyrir vikulegri dagskrá sem hann afhenti á fundinum sem og helstu viðburðum. Opnunartímar félagsmiðstöðvarinnar eru þrettán, 2 – 2 ½ klst. í senn, fyrir nemendur frá 5. – 10. bekk. Hann greindi frá kosningu í Þrykkjuráð og fyrirkomulagi kosninga. Árni sagðist leggja mikla áherslu á að Þrykkjuráð beri sem mesta ábyrgð á fyrirkomulagi starfs félagsmiðstöðvarinnar. Einnig greindi hann frá að fimm hefðu sótt um starf aðstoðarmanns í félagsmiðstöð (30% starf) og að gengið yrði frá ráðningu í þessari viku. Þá greindi Árni frá lista yfir mætingar ungmenna í félagsmiðstöðina. Árni greindi frá góðu samstarfi við grunnskólann sem hann taldi mjög mikilvægt. Þá var farið yfir erindisbréf ungmennaráðs Hornafjarðar. Lagði Árni til að erindisbréfið verði tekið til endurskoðunar og yfirferðar og komi ungmennaráð að því verki. Árni greindi frá því að hann muni einnig starfa með Félagi eldri Hornfirðinga eins og það óskaði og muni mæta á fund þess þann 22. sept. nk. Hulda tók undir orð Árna um mikilvægi góðs samstarfs félagsmiðstöðvar og grunnskóla. (Árni vék af fundi.)
3. Þátttaka ungmenna í VII. Umhverfisþingi 14. október 2011
Tekið fyrir bréf umhverfisráðherra, dags. 30. júní 2011. Samþykkt að fela tómstundafulltrúa að fara með þetta mál í samstarfi við starfsmann nefndarinnar.
4. Reglur um leikskólabörn í skólabílum
Teknar fyrir þær athugasemdir sem bárust við drög að reglum, dags. 17. ágúst 2011, er sendar voru út til umsagnar, sem og bréf frá starfsmönnum Lönguhóla, dags. 19/9/2011.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir reglur um leikskólabörn í skólabílum. Jafnframt leggur nefndin til að greiðslur til þeirra foreldra í dreifbýli sem aka sjálfir með börn sín í leikskóla hækki og vísar því til bæjarráðs að taka það mál til umfjöllunar.
5. Endurskoðun á reglum um leikskóla
Framhaldsumræða frá síðasta fundi nefndarinnar. Einkum var rætt um opnunartíma leikskólanna. Lovísa velti upp þeirri spurningu hvers vegna illa gengi að manna leikskólatímann eftir kl. 16. Ekki væri að sjá að það væri svo í öðrum störfum. Þá lagði hún til að auglýst verði sérstaklega eftir fólki til að vinna eftir kl. 16.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að opnunartími leikskólanna verði óbreyttur, þ.e. frá 7:45 – 17:15. Einnig leggur nefndin til að 9. tími barns í leikskóla verði verðlagður tvöfalt dýrari en aðrir tímar dag hvern.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir fyrirliggjandi reglur um leikskóla. (Snæfríður vék fundi.)
6. Aðalnámskrá leikskóla og grunnskóla
Greint frá útgáfu námskráa beggja skólastiganna og hvar þær megi finna á síðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins: http://www.menntamalaraduneyti.is/log-og-reglugerdir/.
7. Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar
Hulda kynnti starfsáætlun og handbók fyrir Grunnskóla Hornafjarðar, sjá vefslóðina http://www2.hornafjordur.is/grunnskoli/efni/skolastarfid/.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar 2011 – 2012.
8. Skólanámskrá Grunnskóla Hornafjarðar
Hulda kynnti vinnu við skólanámskrá Grunnskóla Hornafjarðar, sjá vefslóðina
http://www2.hornafjordur.is/grunnskoli/efni/skolastarfid/namskra/.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir skólanámskrá Grunnskóla Hornafjarðar. Einnig er hún samþykk áframhaldandi vinnu við skólanámskrá.
9. Yfirlit yfir fjölda nemenda í skólum sveitarfélagsins
Rætt yfirlit yfir fjölda nemenda í skólum sveitarfélagsins. Greint frá ástæðum fækkunar nemenda í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
10. Skólavogin
Farið yfir útsend gögn og greint frá hugmyndum að baki Skólavoginni.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að sveitarfélagið gerist aðili að Skólavoginni.
11. Hvatning velferðarvaktarinnar í upphafi skólaárs
Velferðarvaktin vill „beina því til sveitarstjórna og skólanefnda að huga sérstaklega að líðan barna í upphafi skólaárs“, sbr. bréf, dags. 1. september 2011.
12. Ákvörðun um opinn fund skólanefndar um skólamál
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að opinn fundur nefndarinnar um skólamál verði haldinn miðvikudaginn 26. október. Formanni nefndarinnar og starfsmanni hennar falið að setja saman drög að dagskrá fundarins sem send verði á nefndarmenn.
13. Önnur mál
Engin fram borin.
Fundi slitið kl. 18:50


