Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 17. ágúst 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Magnhildur Gísladóttir, Ellý María Guðmundsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Formaður bauð fundarmenn velkomna til starfa eftir sumarleyfi.
1. Fundargerð 12. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skólaakstur 2011 - 2012
Farið yfir skipulag skólaaksturs 2011 – 2012. Samtals eru 36 nemendur í skólaakstri á þessu skólaári. Nokkrar breytingar hafa orðið á skipulagi akstursins á milli ára og var gerð grein fyrir þeim breytingum. Nú verður einnig ekið úr Öræfum sem ekki var sl. skólaár. Upplýst að nýr verktaki kemur að skólaakstri og að gerður hefur verið við hann samningur til næstu fimm skólaára.
3. Framkvæmdir við skóla sveitarfélagsins
Farið yfir helstu framkvæmdir sem eru endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar (Heppuskóla), endurbætur á eldhúsi m.m. á Lönguhólum og breytingar á sal í Krakkakoti sem á þessu skólaári verður 3ja leikskóladeild skólans og framkvæmdum utan húss við Tónskóla. Einnig fjallað um fyrirhugaða viðbyggingu við Krakkakot og áframhaldandi endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar. Ásgerður benti á að hefjast þurfi handa við að skoða og yfirfara teikningar af grunnskólanum þannig að þær verði tilbúnar um áramót og að útboð geti orðið í byrjun árs 2012. Undir þessum lið voru afhentar tillöguteikningar frá KRark að þriðju deildinni við Krakkakot og hugmyndir að áframhaldandi stækkun.
4. Unglingalandsmót 2013
Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að unglingalandsmót verði á Hornafirði árið 2013. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fagnar þessari ákvörðun.
5. Bréf foreldra leikskólabarna, búsett á Mýrum
Farið yfir bréf foreldra leikskólabarna á Mýrum. Í bréfinu kemur m.a. fram að foreldrar séu því sammála að settar verði reglur um akstur með leikskólabörn í skólabílum. Þá leggja þeir áherslu á kostnað og mikinn tíma vegna aksturs með sín börn í leikskóla geti þeir ekki nýtt skólabíla. Þá er spurt um aðrar lausnir ef ekki verður hægt að nýta skólabílana fyrir leikskólabörn. Bréfið einnig rætt undir 6. lið í fundargerð.
6. Reglur um leikskólabörn í skólabílum
Farið yfir drög að reglum og gerðar við þær ýmsar athugasemdir. Skólanefnd samþykkir að vísa reglunum til umsagnar hjá starfsmönnum leikskólanna, foreldrum leikskólabarna í dreifbýli og verktaka í skólaakstri. Undir þessum lið var afhent bréf tveggja deildarstjóra og eins leikskólakennara í Krakkakoti, dagsett 30. júní 2011. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að akstursstyrkur til foreldra í dreifbýli vegna aksturs þeirra með börn sín í leikskóla verði endurskoðaður.
7. Endurskoðun á reglum um leikskóla samkvæmt samþykkt á 12. fundi
Töluverðar umræður sköpuðust um tímann frá kl. 16:15 – 17:15. Samþykkt að kanna meðal foreldra sem eru að nýta þennan tíma fyrir sín börn hver staða þeirra yrði ef þessi skólatími félli niður. Fram kom að annar leikskólinn getur ekki mannað tímann frá 16:15 til 17:15. Endurskoðun á reglum vísað til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar.
8. Önnur mál
· Lovísa spurðist fyrir um ráðningar starfsfólk í Grunnskóla Hornafjarðar. Hulda svaraði að ráðið hafi verið í allar stöður við skólann. Einnig kom fram að fullmannað er í báða leikskólana (Hulda og Magnhildur viku af fundi.)
· Rætt boðað verkfall Félags leikskólakennara. Samtals eru 8 starfsmenn leikskólanna í Félagi leikskólakennara. Afhentar viðmiðunarreglur í verkfalli frá Félag leikskólakennara sem og bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna sama máls. Fram kom að bæjarráð mun koma saman fimmtudaginn 18. ágúst til að fjalla um boðað verkfall.
· Greint frá fyrirhuguðu þingi um forvarnamál þann 5. október nk.. Nafnið á þinginu verður Hornafjörður heilsueflandi bær – hreyfing, næring, forvarnir og lífstíll.
Fundi slitið kl. 18:20


