Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12

12. fundur

 

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 15. júní 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Snæfríður Svavarsdóttir, Gunnhildur Gísladóttir og Stefán Ólafsson.           

1.      Fundargerð 11. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

2.      Starfsemi íþróttamiðstöðvar

Ásgerður bauð Gunnar Ingi Valgeirsson, forstöðumann íþróttamannvirkja, velkominn til starfa og velkominn á fundinn. Gerði hann grein fyrir sínu starfi, starfsemi íþróttamiðstöðvar, starfsmannamálum o.fl. þáttum. Sagði hann mesta vinnu vera við sundlaugina en þar hafi verið skortur á starfsfólki. 15891 gestur hafa komið í sundlaugina frá janúar til maí á þessu ári en 18941á sama tíma í fyrra. Gunnar Ingi gerði að umtalsefni nýjar reglur um sundstaði og áhrif þau sem reglurnar hafa.  Einnig ræddi Gunnar Ingi íþróttavellina, eftirlit og viðhald á þeim.  Miklar umræður voru um íþróttamannvirki og starfsemi þeirra. (Gunnar Ingi vék af fundi.)

3.      Stoðþjónusta og lög um leik- og grunnskóla

Farið yfir minnisblað bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviðsins, dags. júní 2011. Þórgunnur sagði það sína skoðun að miðað við minnisblaðið sé þetta of loðið, ekki sé ljóst hvert stefnt sé með þessari vinnu. Samþykkt að fela leikskólastjórum, skólastjórum grunnskólanna, skólastjóra tónskólans og framkvæmdastjóra sviðsins að móta tillögur um þau álitamál sem uppi eru í þessum málaflokki, sbr. minnisblaðið.  Framkvæmdastjóra sviðsins falið að kalla hópinn saman og skal hann hafa lokið störfum eigi síðar en 1. nóvember 2011.

4.      Skólatíminn 16 – 17 í lengdri viðveru

Fram kom að mjög fáir nemendur nýta þennan tíma, eru oft einn til tveir jafnvel ekkert nýttur. Skólanefnd samþykkir að stytta opnunartíma lengdrar viðveru í Grunnskóla Hornafjarðar þannig að hann verði til kl. 16:00 frá og með næsta skólaári.    

5.      Skólatíminn 16 – 17 í leikskólum

Eftir klukkan 16 eru fá börn í leikskólunum sveitarfélagsins. Erfitt hefur verið að manna þennan tíma en a.m.k. tveir starfsmenn þurfa að vera á vakt í hvorum skóla. Flest börn sem eru á þessum tíma í leikskóla hafa lokið 9 – 9 ½  klukkutíma skóladegi klukkan 17 (17:15). Í umræðum um þetta mál komu fram ábendingar um kröfur atvinnulífsins um að hafa fólk í vinnu á þessum tíma á meðan algeng skoðun sé að skóladagur leikskólabarna eigi ekki að vera umfram 8 klst. Fram kom að á Lönguhólum skorti nú þegar starfsfólk eftir kl. 16 og ekki líti vel út fyrir næsta skólaár. Matthildur velti upp hugmynd um að kannað verði meðal þeirra foreldra leikskólabarna sem eru að nýta þennan tíma hvernig þeir gætu brugðist við lokun leikskóla kl. 16:15. Einnig benti hún ásamt fleiri fundarmönnum á að hafa mætti 9. tímann dýrari.

6.      Reglur um akstur með leikskólabörn í skólabílum fyrir grunnskólanemendur

Skólanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að gera drög að reglum um akstur með leikskólabörn í skólabílum fyrir grunnskólanema. Þar verði m.a. horft til lágmarksaldurs leikskólabarnanna sem kunna að verða í þeim akstri. Fram kom það sjónarmið að miða skuli við að akstur með leikskólabörn verði eingöngu fyrir síðasta árgang leikskólabarna.

7.      Skóladagatal leikskólanna

Snæfríður fór yfir dagatalið og útskýrði það. Einnig greindi Snæfríður frá hugmynd um námsferð starfsmanna beggja leikskólanna í apríl 2012. Skólanefnd samþykkir dagatal leikskólanna fyrir skólaárið 2011 - 2012.

8.      6. leikskóladeildin, viðbygging við Krakkakot

Farið yfir tillögu meirihluta bæjarstjórnar sem samþykkt var  á 169. fundi um „viðbyggingu við Krakkakot þannig að frá og með haustinu 2012 verði tveir þriggja deilda leikskólar á Höfn.“  Einnig farið yfir bókanir Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins um leikskólamál á sama fundi. Lovísa sagðist taka undir bókun Sjálfstæðisflokksins á bæjarstjórnarfundi um að stefnt verði að einum 6 deilda leikskóla í framtíðinni. Matthildur tók undir orð Lovísu sem og sambærilega bókun fulltrúa Samfylkingar í bæjarstjórn.

9.      Forvarnir

Ásgerður fór yfir málið. Greindi hún frá þeirri vinnu sem í gangi er hjá grasrótarhópi um forvarnir. Meðal annars sé stefnt að forvarnarþingi í haust. Rætt var um forvarnir í víðum skilningi, nauðsynlegan áróður o.fl. og að ákveðinn starfsmaður þurfi að sjá um málaflokkinn.  Beint til starfsmanns nefndarinnar að koma því á framfæri til þeirra sem sjá um Humarhátíð að í prentuðu efni sem út verður gefið í sambandi við hátíðina verði ábendingar um forvarnir. Rætt var um nauðsyn þess að fara í endurskoðun á forvarnastefnu sveitarfélagsins.

10.  Samkomulag um tónlistarfræðslu

Farið yfir samkomulag mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga „um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.“ Á grundvelli þessa samkomulagsins á nemandi að geta skráð sig í framhaldsnám í tónlistarskóla hvar sem er á landinu. Sama á við um miðnám í söng. Þeir fjármunir sem koma frá ríkinu skv. samkomulaginu eiga síðan að tryggja að kennslukostnaður verði greiddur að fullu án þess að sveitarfélögin þurfi að semja um það sín á milli.

 11.  Önnur mál

·         Snæfríður greindi frá því að sum börn megi ekki borða ýmsa fæðu vegna óþols. Lagði hún til að bætt verði inn í reglur um leikskóla ákvæði um að ef barn greinist með óþol, ofnæmi, astma eða annað sem krefst sérstakrar meðhöndlunar í leikskóla, skuli skila læknisvottorði því til staðfestingar.  Skólanefnd sammála um að taka reglur um leikskóla til skoðunar í ágúst nk. 

·         Bent á að „stubbahús“ fyrir vindlinga á sundlaug megi ekki vera þar samkvæmt lögum.

 Fundi slitið kl. 18:50


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótt- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica