Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10

10. fundur

 

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 27. apríl 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ottó Marvin Gunnarsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Stefanía Lóa Þórðardóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Harpa Þorgeirsdóttir og Stefán Ólafsson.           

1.      Fundargerð 9. fundar

Margrét Ingólfsdóttir sendi inn eftirfarandi athugasemd:  Varðar 5. lið í fundargerð þar sem haft er eftir mér að „ Lönguhólar hafa ákveðið að fara í vinnu með málörvun en munu þó ekki senda inn umsókn til ráðuneytisins.“  Á fundi skólanefndar sagði ég að okkur hafi borist  pósturinn of seint svo við höfðum ekki tök á að senda inn umsókn til ráðuneytisins.

Lönguhólar ætla þrátt fyrir það að fara yfir þá málörvunar vinnu sem er í gangi í leikskólanum og meta hvað mætti betur fara.

2.      Skóladagatal grunnskólanna

Lögð fram skóladagatöl Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólans í Hofgarði og þau samþykkt.

3.      Bréf skólastjórnenda leik-, grunn- og tónskóla, dags. 6. apríl 2011, vísað til nefndarinnar af bæjarráði

Í öðru bréfinu er lögð áhersla á mikilvægi þess að hafa tengingu við „öfluga skólaskrifstofu þar sem starfsmenn geta leitað faglegrar ráðgjafar.“  Í hinu bréfinu er lögð áhersla á „að á vegum sveitarfélaga sé hægt að fá leiðbeiningar um hvernig eigi að vinna ákveðnar skýrslur, stefnur eða áætlanir sem kveðið er á um í lögum að eigi að vera til í hverjum skóla.“ Bréfin eru undirrituð af stjórnendum leikskóla, grunnskóla og tónskóla. Fram kom í máli framkvæmdastjóra sviðsins að hann hafi ekki setið þennan fund og ekki vitað um samþykktir skólastjórnenda. Hulda greindi frá tilurð bréfanna og sameiginlegum fundum skólastjórnenda sem hafa verið þrír á þessu skólaári. Sagði skólana fást við marga sameiginlega hluti sem þeir vilja ræða saman. Einnig fjallaði Hulda um áhrif úttektar þeirrar sem unnin var á Grunnskóla Hornafjarðar.  Þá ræddi hún stórar skólaskrifstofur sem hafa mikinn mannafla og marga sérfræðinga. Til þeirra gæti verið gott að leita með ýmis mál. Ásgerður sagði að skoða þurfi málið í heild sinni, sagði í bréfunum koma fram marga góða punkta.  Einnig ræddi hún fyrirhugað námskeið fyrir skólanefndir og að þar muni væntanlega bera á góma mörg mál sem varpað er fram í bréfum skólastjórnenda.  

4.      Niðurstöður íbúaþings - leiðarljós og starfsmarkmið, mál sem snúa að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Greint frá erindi bæjarstjóra og farið yfir þá þætti í niðurstöðum íbúaþings sem snúa að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Nokkrar breytingatillögur og viðbætur voru gerðar við fyrirliggjandi starfsmarkmið og þær skráðar niður. Samþykkt að senda breytingartillögur í tölvupósti á fundarmenn.

5.      Fundargerðir rýnihóps um leikskólamál

Farið yfir 1. og 2. fundargerð rýnihóps um leikskólamál. Á fundum rýnihópsins hefur m.a. verið farið yfir skýrslu um leikskólamál, stjórnskipulag leikskóla, biðlista í leikskóla, reglur um leikskóla, fjallað um húsnæði leikskólanna, kynntar viðmiðunarreglur 14 sveitarfélaga um fjölda barna í leikskólum, samvinnu á milli leikskólanna o.fl. sem varðar leikskóla og starfsemi þeirra.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að við ákvörðun um fjölda barna samtímis í leikskóla verði hafðar til hliðsjónar viðmiðanir eldri reglugerðar um leikskóla (nr. 225/1995) ásamt gildandi reglugerð og lögum líkt og fjölmörg sveitarfélög gera í dag. Með því móti megi fjölga börnum í báðum leikskólum frá því sem nú er og minnka til muna biðlista sem til staðar eru.

Harpa lagði áherslu á að einnig þurfi að horfa til mismunandi einstaklinga, sbr. ný lög um leikskóla. Snæfríður lagði einnig áherslu á að við ákvörðun um fjölda barna í leikskóla þurfi að horfa til hinna nýju laga sem samþykkt hafa verið.

6.      Akstur með leikskólabörn í skólabílum

Greint frá fyrirkomulagi við akstur leikskólabarna í skólabílum, þ.e. þeirra sem búa í dreifbýli. Urðu verulegar umræður um akstur með leiksskólabörn í skólabílum. Rædd var nauðsyn á gæslu í skólabílum sem flytja svo ung börn. Fundarmenn almennt sammála um að setja þurfi reglur um akstur með leikskólabörn í skólabílum. Einnig lögð áhersla á að samræmi sé á milli leikskólanna um þjónustu við leikskólabörn sem eru í þessum akstri. Fram kom hjá Hörpu að það er eins í báðum skólum. Vísað til starfsmanns nefndarinnar að vinna drög að reglum um þennan akstur.  

7.      Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins, endurskoðuð drög að aðalnámskrá, dags. 13. apríl 2011.

Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur birt endurskoðuð drög að almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla á vefsvæði sínu, http://www.menntamalaraduneyti.is/.

8.      Tölvupóstur umboðsmanns barna, dags. 5. apríl 2011, vísað til nefndarinnar af bæjarráði

Bréfið fjallar um niðurskurð í skólum og áhyggjum umboðsmanns barna „yfir þeim niðurskurði sem átt hefur sér stað og er fyrirhugaður í sveitarfélögum landsins.“  Ásgerður sagði að í Sveitarfélaginu Hornafirði hafi ekki verið um niðurskurð að ræða og ekki áætlanir um hann.

 9.      Önnur mál

·         Ásgerður spurði um aðsókn að sundlaug um páska. Miðvikudaginn  20.apríl komu 157 gestir, á skírdag komu 195 gestir, laugardaginn 23. apríl komu 378 gestir og á annan í páskum 150 gestir.

·         Svar við fyrirspurn Lovísu á 9. fundi um fundi í ungmennaráði: Tveir fundir hafa verið haldnir í ungmennaráði eftir áramót.

·         Lovísa ræddi fjölda barna í leikskólum sveitarfélagsins. Sagði að t.d. virðist hafa fækkað um þrjú börn á Lönguhólum frá því í haust. Hafi orðið fækkun sé rétt að taka inn börn í þeirra stað. Harpa kannast ekki við fækkun barna á Lönguhólum. 

·         Lovísa spurðist fyrir um störf forvarnahóps. Fram kom að lítið hafi verið gert á hans vegum.

·         Lovísa spurðist fyrir um vinnu við sjálfsmat Grunnskóla Hornafjarðar. Hulda greindi frá þeirri vinnu sem lokið er, því sem er í gangi og þeim upplýsingum sem eru á vef skólans um sjálfsmatið.

 

Fundi slitið kl. 19:10


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica