Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9

9. fundur

 

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 23. mars 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Íris Heiður Jóhannsdóttir, Linda Hermannsdóttir og Stefán Ólafsson.           

1.      Heimsókn skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar í leikskólana

Nefndin heimsótti leikskólana Krakkakot og Lönguhóla á þriðjudeginum, fundaði með leikskólastjórum og skoðaði húsakynni.

 

2.      Fundargerð 8. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 

3.      Niðurstöður úttektar á Grunnskóla Hornafjarðar, bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis dags. 24. febrúar 2011

Í bréfi ráðuneytisins er „þeim tilmælum beint til stjórnenda skólans og skólanefndar að þau atriði sem talin eru þarfnast úrbóta verði tekin til athugunar og að ráðuneytinu verði send tímasett umbótaáætlun fyrir 1. apríl nk.“ Stjórnendur skólans og skólaskrifstofu kynntu fyrirliggjandi drög að umbótaáætlun og gerðu grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið.

Nefndarmenn sammála um að félagslífi grunnskólanema verði  hagað með sama hætti og verði hefur með félagsmiðstöð sem meginstoð. Einnig rætt um nauðsyn þess að lagt verði til fjármagn þannig að hægt verði að bregðast við ýmsum ábendingum úttektaraðila og ráðuneytis.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að fela starfsmönnum að ljúka vinnu við umbótaáætlun og senda hana ráðuneyti mennta- og menningarmála fyrir 1. apríl nk. Áður verði áætlunin sendi nefndarmönnum í tölvupósti til yfirlestrar.

 

4.      Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar, val á útveggjaklæðningu

Greint frá því að bæjarráð, sem fer með framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins, hafi ákveðið á fundi sínum þann 21. mars að meginefni í klæðningu skólans verði upplímdar flísar. Undir þessum lið var rætt um hugsanlegar nafnabreytingar á skólahúsunum, Hafnarskóli og Heppuskóli.

 

5.      Tölvupóstur mennta- og menningarmálaráðuneytis, dags. 8. mars 2011, upplýsingaöflun um málumhverfi leikskólabarna

Ósk um upplýsingar frá sveitarfélögum þar sem unnið er skipulega að málörvun og þróun lestrarnáms í leikskólum. Lönguhólar hafa ákveðið að fara í vinnu með málörvun en munu ekki senda inn umsókn til ráðuneytisins. Krakkakot mun ekki senda inn umsókn.

 

 

 

 

6.      Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði

Farið yfir eldri reglur og tillögur um breytingar á þeim. Þær breytingar snúa m.a. því að eldri börn hafi forgang að leikskólavist fram yfir þau sem yngri eru, að umsóknir um leikskólavist berist til skólaskrifstofu sem vísi þeim til viðkomandi leikskóla. Einnig rætt um lögheimili,  umsókn um leikskólavist o.fl.

Undir umræðum um reglurnar var töluvert rætt um lengd daglegs leikskólatíma, t.d. hvort hann eigi almennt að fara fram yfir 8 klst. á dag, fjölskyldustefnu sveitarfélagsins og samveru fjölskyldunnar.

Nýjar reglur bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða.

 

7.      Skýrsla um leikskólamál, viðhorf og þróun

Farið yfir skýrsluna LEIKSKÓLAMÁL – VIÐHORF OG ÞRÓUN sem unnin var af starfsmönnum fræðslu- og félagssviðs og bæjarstjóra. Í inngangi skýrslunnar segir: „Markmið greinargerðarinnar er að gera grein fyrir viðhorfskönnunum sem gerðar voru meðal foreldra og starfsfólks í leikskólum, sjónarmiðum leikskjólastjóra sem komu fram í viðtölum sem framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs tók við þær, greina þróun í leikskólamálum á síðustu árum, s.s varðandi mannauð í leikskólum, fjölda barna í árgöngum, breytingar á  dvalartímum, rekstur skólanna og reglugerðir um leikskóla. Þá verður gerð grein fyrir biðlistum í leikskólana, húsnæði þeirra tekið fyrir og reglur um inntöku í leikskólana.  Að endingu eru settar fram hugmyndir um hvernig bregðast megi við biðlistum í leikskólana og hvernig taka eigi ákvörðun um skipulag leikskólamála í framtíðinni. Þessi úttekt tekur ekki á innra starfi leikskólanna. Í umræðunni sem í hönd fer er mikilvægt að hafa þetta í huga.“

Í umræðum um skýrsluna kom fram hjá Matthildi að óánægja væri með skipan leikskólamála og benti m.a. á svör starfsmanna í Krakkakoti. Einnig ræddi hún aukinn biðlista. Margrét benti á að alltaf hafi verið til staðar biðlistar. Það væri hins vegar nýtt að eldri börn væru á biðlista sem skýrðist sennilega af flutningi fólks í sveitarfélagið.

Leikskólastjórar bentu á að það vanti í skýrsluna ákvæði nýju reglugerðarinnar um hvað eigi að ákvarða fjölda barna í leikskóla. Stefán tók undir að í þennan kafla reglnanna væri ekki vitnað og benti á að á bls. 7 væri vitnað í nýja reglugerð (nr. 655/2009) um inntöku barna í leikskóla sem byggð er á lögum nr. 90/2008 og einnig bent á þætti sem taka þurfi tillit til við ákvörðun um fjölda barna í leikskóla. Sagði hann að á bls. 6 væri vitnað í eldri reglugerðir sem eru byggðar á eldri lögum. Þannig að vitnað væri bæði í það sem úr gildi er fallið og það sem nú gildir. Fullyrti jafnfram að ýmis sveitarfélög horfðu enn til eldri reglugerða, svo sem um fjölda barngilda á starfsmann.

Töluverð umræða var um biðlista og hvernig bregðast mætti við honum. Meðal annars voru ræddar hugmyndir sem settar eru fram á bls. 40 í skýrslunni um hvernig bregðast megi við biðlistum. Þá var skipting árganga, einkum þeirra elstu, á milli leikskóla töluvert rædd. Íris sagðist ekki mæla með aldursskiptingu eftir leikskólum en sagðist vilja sjá meiri samvinnu á milli skólanna með eldri árganga.

Lovísa spurði hvort pláss væri fyrir börn frá kl. 13 – 17. Fram kom að lítil eftirspurn væri eftir þeim tíma og hann í reynd ekki verið í boði á þessu skólaári. Ekki var útilokað að því yrði breytt en jafnframt bent á að oft væri erfitt að manna þann tíma með starfsfólki. Margrét lagði áherslu á að ekki væri hægt að halda upp hópastarfi fyrir fámennan hóp barna á þessum tíma.

Rætt var um misjafna skiptingu kynjanna í elstu árgöngum á milli leikskólanna og velti Matthildur upp hugmyndum um hvernig bregðast mætti við því.

Margrét benti á að fæstir foreldrar væru að velja leikskóla, fyrst og fremst að taka laus pláss.

 

 

Í niðurlagi skýrslunnar eru settar fram eftirfarandi tillögur:

„Tillaga 1.

Að þegar verði gerðar breytingar á reglum sveitarfélagsins um leikskóla sem tryggi eldri börnum forgang með þeim fyrirvörum sem gert er grein fyrir í skýrslunni.

Tillaga 2

Í ljósi þess sem fram kemur í könnunum, viðtölum og öðrum gögnum sem birtast í þessari skýrslu er lagt til að skólanefnd eða sérstakur rýnihópur á vegum nefndarinnar fari yfir greinargerðina og greini betur þá þætti sem foreldrar og starfsfólk vill að skoðaðir verði í starfi leikskólanna. Þessi vinna verði unnin í samráði við stjórnendur og starfsfólk í leikskólum og foreldra  leikskólabarna.“

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hefur á þessum fundi brugðist við tillögu 1 með breytingum á reglum um leikskóla. Þá leggur nefndin til að farið verði eftir tillögu 2 að skipaður verði rýnihópur sem í sitji tveir fulltrúar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, þ.e. einn frá minnihluta og einn frá meirihluta, einn leikskólastjóri, einn starfsmaður frá hvorum leikskóla og tveir fulltrúar foreldra, einn frá hvorum skóla. Leikskólastjórar, fulltrúi starfsmanna og fulltrúi foreldra á fundinum halda utan um val á fulltrúum á sínum í rýnihópinn.  Starfsmaður nefndarinnar verði framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.  (Þórgunnur og Linda viku af fundi undir þessum lið). (Að loknum þessum lið viku af fundi Hera, Snæfríður, Margrét og Íris.)

 

8.      Bréf þátttakenda í Evrópu unga fólksins

Kynnt bréf sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar.  Nefndin þakkar fyrir jákvæð og skemmtileg bréf.

 

9.      Tilboð um dansnámskeið næsta sumar

Greint frá tilboði Lilju Bjarkar Haraldsdóttur um að vera með skapandi sumarstarf  eða dansnámskeið barna og unglinga á Hornafirði næsta sumar.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd  fagnar frumkvæði Lilju og vísar tilboðinu til sumarstarfs Umf. Sindra en leggur jafnframt til að veitt verði í þetta námskeið sérstakt fjármagn, ekki tekið af leikjanámskeiðum.

 

10.  Tillaga til þingsályktunar um aukna fræðslu í skólum um skaðsemi áfengis

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd tekur undir þessa þingsályktunartillögu.

 

11.  Bréf Félags tónlistarskólakennara o.fl. – ályktun mótmælafundar „Samstaða um framhald tónlistarskólanna“

Til kynningar.

 

12.  Bréf Ungmennafélags Íslands, dags. 28. janúar 2011, auglýsing eftir umsóknum um að halda Unglingalandsmót UMFÍ 2013 og 2014

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að sótt verði um Unglingalandsmót 2013 og 2014.

 

 

13.  Önnur mál 

Ásgerður greindi frá fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar til bæjarráðs um 7. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar og ákvörðun um hvar hann eigi að vera til húsa.  Bæjarráð mun svara fyrirspurninni.

Skólanefnd óskar eftir kynningu á könnunum sem lagðar hafa verið fyrir foreldra og nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar.

Rætt um námskeið fyrir skólanefndir sem verður haldið 18. apríl nk. Nefndarmenn sammála um að varamönnum í nefndinni verði einnig boðið að sitja námskeiðið.

Samþykkt að næsti fundur skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar verði 27. apríl nk.   

 

Fundi slitið kl. 20:00


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica