Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8

8. fundur

 

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 16. febrúar 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Magnhildur Gísladóttir og Stefán Ólafsson.           

1.      Fundargerð 7. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

2.      Reglur um sundstaði, svar umhverfisráðuneytisins

Greint frá svari umhverfisráðuneytis við bréfi starfsmanns nefndarinnar þar sem óskað var túlkunar á 14. gr. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, þ.e. því ákvæði reglugerðarinnar um að börnum yngri en 10 ára sé óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára og eldri. Túlkun ráðuneytisins „er sú að börn þurfa að hafa náð tíu ára aldri til að fara ein í sund.“  

3.      Grunnskólinn í Hofgarði, ákvörðun um 8. bekk

Farið yfir fund sem skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hélt 2. febrúar síðastliðinn um kennslu á unglingastigi í Grunnskólanum í Hofgarði. Fram kom vilji bæði starfsmanna og foreldra að 8. bekkur verði starfræktur í skólanum á næsta skólaári. Rætt var um kennslu eldri bekkja (9. – 10.) í Öræfum. Einnig var rætt um samstarf við Grunnskóla Hornafjarðar og lýsti skólastjóri þess skóla starfsmenn reiðubúna til samstarfs vegna þessarar kennslu. Fram kom á fundinum í Öræfum hjá skólastjóra Grunnskólans í Hofgarði að þetta samstarf verði eftir föstum farvegi. Taldi Þórgunnur þetta einnig mikilvægt.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að kennt verði í 8. bekk í Grunnskólanum í Hofgarði skólaárið 2011 – 2012. 

4.      Akstursstyrkur vegna tómstundaiðkunar barna í dreifbýli

Farið yfir tvær mismunandi tillögur að reglum um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili.

Skólanefnd leggur til að akstursstyrkur vegna tómstundaiðkunar barna í dreifbýli verði í samræmi við tillögu, merkt. drög, feb11 með áorðnum breytingum og vísar málinu til bæjarráðs.

5.      Úttekt á Grunnskóla Hornafjarðar

 Eftirfarandi var fært til bókar á 3. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 15. september 2010: „Mennta- og menningarmálaráðuneytið hyggst láta gera stofnanaúttekt á þremur leikskólum og þremur grunnskólum á haustmisseri 2010. Ráðuneytið auglýsir eftir sveitarfélögum sem áhuga hafa á því að slík úttekt fari fram. Á 511. fundi bæjarráðs var eftirfarandi  bókað: „Bæjarráð leggur til að Sveitarfélagið Hornafjörður  taki þátt í verkefninu.  Starfsmönnum falið að ræða við ráðuneytið um samstarf.“

Skólanefnd tekur undir bókun bæjarráðs og leggur til að sótt verði um að úttekt verði gerð á leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Vísað til starfsmanns nefndarinnar að ganga frá umsókn.“  Niðurstaða mennta- og menningarmálaráðuneytis var sú að gerð yrði úttekt á Grunnskóla Hornafjarðar. Niðurstöður úttektarinnar, sem unnin var af fyrirtækinu Hitt og þetta, liggja fyrir og er það mat starfsmanns nefndarinnar  að úttektin sé gagnleg þó ekki sé hún án galla. Þar komi fram margar ábendingar um þætti sem lagfæra þurfi bæði í starfi skólans og skólanefndar sveitarfélagsins. Þeim ábendingum þurfi að fylgja eftir. Fór hann yfir úttektina og gerði grein fyrir sínum athugasemdum við hana. Þórgunnur fór einnig yfir ákveðna þætti úttektarinnar og greindi frá sínum viðhorfum til hennar. Greindi hún einnig frá ýmsum þáttum í starfi skólans sem unnið er að, atriði sem um er fjallað í úttektinni. Þá lagði Þórgunnur áherslu á að það taki tíma að sameina skóla, slíkt gerist ekki á stuttum tíma. Hún sagði skólann vilja draga lærdóm af ýmsu sem fram kemur í skýrslunni en ekki vilja eyða tíma í að gagnrýna þætti þar sem skólafólk er ekki sammála úttektaraðilum. Lovísa óskaði eftir að tekinn verði saman listi yfir lög og reglugerðir sem nefndin á að vinna eftir. Ásgerður benti á efni sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér um þessi mál, þ.e. lög og reglugerðir, og afhent hafa verið í skólanefnd. Lovísa óskaði eftir að fá skipurit skólans og um leið verkaskiptingu skólastjóranna tveggja. Þórgunnur benti á upplýsingar á vef skólans um þá þætti. Magnhildur sagðist sammála mörgu sem fram kemur í skýrslunni en margt mætti einnig gagnrýna. Sagði hún að Grunnskóli Hornafjarðar hafi verið í breytingum sl. 15 ár og það setti mark sitt á hann. Þá gerði hún námsárangur að umtalsefni, leggja þurfi meiri áherslu á hann.  Lovísa sagði gott að fá þessa skýrslu, ekki eigi að setja hana niður í skúffu. Fara eftir ábendingum sem fram koma, bæta það sem bæta þarf. Var undir þetta tekið.

6.      Stjórnfyrirkomulag Grunnskóla Hornafjarðar

Framhaldsumræða frá 7. fundi nefndarinnar. Farið yfir málið og greint frá útreikningum á kostnaði vegna óska skólans um breytingu á fyrirkomulagi deildarstjóra, tveir í stað eins og einnig um kostnað vegna verkefnastjóra.

Skólanefnd leggur til að til viðbótar við núverandi stöðu deildarstjóra verði verkefnastjóri. Þórgunnur sagði að verði þessi leið valin verði staðan verkefnastjóri 2.

7.      Staðsetning 7. bekkjar

Málið er á dagskrá vegna fyrirspurnar sem barst um málið. Í skýrslu starfshóps um flutning kennslu úr Nesjum á Höfn, des. 2008, segir: „Starfshópurinn leggur til að í núverandi húsnæði Hafnarskóla verði 1. – 6. bekkur og 7. – 10. bekkur í Heppuskóla.“ Eftir þessari tillögu starfshópsins hefur verið unnið.  Skólanefnd telur ekki ástæðu til að breyta frá þessari samþykkt en felur stjórn grunnskólans að ákveða staðsetningu 7. bekkjar hverju sinni sem getur farið eftir aðstæðum í skólanum.  

8.      Fjöldi nemenda eftir árgöngum

Samkvæmt yfirlit í febrúar 2011 eru nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar 304 (voru 295 í ágúst sl.), nemendur í Grunnskólanum í Hofgarði eru 11 (voru 12 í ágúst sl.), nemendur í leikskólum eru samtals 105 (voru 104 í ágúst sl.) og nemendur í Tónskóla A.-Skaft. eru 164 (voru 165 í ágúst sl.).

9.      Niðurstöður PISA-könnunar

Eftirfarandi er birt á vef Námsmatsstofnunar:Niðurstöður OECD-PISA 2009 rannsóknarinnar á lesskilningi og læsi á stærðfræði og náttúrufræði á meðal 15 ára nemenda, eru nú tilbúnar. Ísland tók þátt í rannsókninni í fjórða sinn árið 2009, ásamt 68 öðrum löndum innan og utan OECD.“

„Undanfarinn áratug hefur lesskilningi íslenskra nemenda hrakað í hvert sinn sem mælingin hefur verið gerð, þ.e. árin 2000, 2003 og 2006. Nú hefur þróunin hins vegar snúist við og hafa íslenskir nemendur endurheimt sína fyrri stöðu. Einungis 10 af 68 löndum sem tóku þátt í rannsókninni sýna betri frammistöðu en Ísland og einungis 8 af 33 OECD löndum. Þessi breyting er ákaflega mikilvæg og bendir til þess að grunnskólakerfið standi sig afar vel. Frammistaðan í stærðfræði og í náttúrufræði hefur hins vegar ekki breyst marktækt frá fyrri rannsóknum og er þörf á átaki í þeim greinum, sérstaklega í náttúrufræði þar sem frammistaða Íslands er talsvert undir meðaltali OECD landanna.“

Niðurstöður PISA könnunar  fyrir Grunnskóla Hornafjarðar eru sem hér segir:

Lesskilningur 508 stig, meðaltal skóla á Íslandi 500 stig.

Læsi á stærðfræði 488 stig, meðaltal skóla á Íslandi 507 stig.

Læsi á náttúrufræði 515 stig, meðaltal skóla á Íslandi 501 stig.

10.  Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar

Farið yfir nýjustu tillöguteikningar arkitekta. Teknar niður athugasemdir.

11.  Námskeið fyrir skólanefndir

Námskeiðin eru á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að námskeið fyrir suðursvæðið verði haldið 18. apríl kl. 13:00 – 17:30. Fjarkennt verði til Hornafjarðar og Vestmannaeyja.

(Þórgunnur vék af fundi)

12.  Úthlutun styrkja til íþrótta- og æskulýðsstarfs

Tillaga um styrki er eftirfarandi:

Ungmennafélagið Sindri, framlög og reiknuð húsaleiga                  13.840.000.-

Ungmennafélagið Máni, framlög og reiknuð húsaleiga                        350.000.-

Golfklúbbur Hornafjarðar                                                               2.000.000.-

Hestamannafélagið Hornfirðingur                                                   2.000.000.-

Óráðstafað                                                                                     610.000.-

Samtals                                                                                     18.800.000.-

 

Tillagan samþykkt.

 

13.  Önnur mál  

Ásgerður greindi frá ósk Saman hópsins um fjárstuðning. Vísað því til starfsmanna.

Ásgerður greindi frá bréfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins  um æskulýðs-rannsóknirnar  Ungt fólk á Íslandi. Óskað eftir áframhaldandi samstarfi um að spurningalistar verði lagðir fyrir nemendur.

Ásgerður greindi frá hugmyndum sem ræddar hafa verið um færanlegt húsnæði sem sett yrði niður við Krakkakot til að bregðast við biðlista eftir leikskólaplássum. Matthildur lagði áherslu á að leikskólamál verði tekin fyrir í nefndinni í heild sinni áður en byggingar verða ákveðnar.

 

Fundi slitið kl. 20:00


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica