Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
5. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 17. nóvember 2010 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Torfi Friðfinnsson, Pálína Þorsteinsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Íris H. Jóhannsdóttir, Styrgerður Jóhannsdóttir, Haukur Þorvaldsson, Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 4. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Grunnskólinn í Hofgarði
Pálína gerði grein fyrir starfsemi skólans, skipulagi hans í yngri og eldri deild og einnig greindi hún frá útliti með fjölda nemenda næstu árin. Einnig var rætt um hvar þeir nemendur sem nú eru í 7. bekk verði í 8. bekk á næsta skólaári. Pálína sagði skólann leggjast af eftir 5 ár ef ekki komi yngri nemendur í skólann á því tímabili. Þá greindi Pálína frá því að nemendur skólans hafi verið í Grunnskóla Hornafjarðar í dag. (Pálína vék af fundi.)
3. Fjárhagsáætlun 2011
Farið yfir minnisblað, dagsett 29. október 2010, drög að forsendum fyrir fjárhagsáætlun 2011. Stefán sagði að ef tekjur sveitarfélagsins lækki í samræmi við það sem fram kemur á minnisblaðinu þurfi að gæta aðhalds og hagræðingar í rekstri stofnana.
4. Málefni Sindra, bréf formanns
Farið yfir bréf formanns Sindra. Fram kemur að núverandi samningur rennur út um áramót og er þess óskað að gerður verði nýr samningur sem gildi næstu fjögur ár. Jafnframt er farið fram á að styrkur sveitarfélagsins til Sindra hækki frá því sem nú er, byggt m.a. á breytingum á vísitölu. Ásgerður sagði ekki spurningu um að gerður verði nýr samningur við Sindra en nefndi enga upphæð í því sambandi. Lagði hún áherslu á að sveitarfélagið standi við bakið á starfsemi fyrir börn og unglinga. Var undir það tekið af öðrum fundarmönnum. Einnig var rætt um ungan aldur þeirra sem keppa í meistaraflokkum, einkum í kvennaknattspyrnu. Voru skiptar skoðanir um ágæti þess.
5. Reglur um sundstaði
Haukur fór yfir nýja reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út og öðlast gildi 1. janúar 2011. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram: „14. gr. Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna.“ Haukur greindi og frá rökum sem færð hafa verið fyrir þessari breytingu. Sagði hann ekkert annað en að kyngja þessari ákvörðun um aldursmörk, reglugerðin hafi verið gefin út. Undir þessum lið spannst töluverð umræða um Sundlaug Hafnar, öryggi við hana o.fl.
(Haukur sat fundinn undir þessum lið.)
6. Starfsemi leikskóla sveitarfélagsins
Margrét fór yfir stafsemi skólanna sem hún sagði ganga mjög vel. Hún ræddi hugmyndir leikskólastjóra um að leggja niður skólatímann frá 13 – 17. Sá tími er í reynd á skjön við allt starf í skólanum og nýtist börnunum illa í námi. Aðeins tvö börn af 107 sem nú eru í leikskóla nýta þann tíma í dag. Margrét ræddi lengd skóladags leikskólabarna og spurði hvort hann ætti að fara fram yfir 8 klst. á dag. Hún lagði áherslu á að 9,5 klst. væri langur dagur fyrir ung börn. Var undir það sjónarmið tekið. Þá sagði Margrét að enginn leikskóli á Austurlandi byði upp á 9,5 klst. skóladag, flestir hafi lokað 16:30, sumir 16:15. Afhent var yfirlit yfir fjölda leikskólabarna í nóvember 2010 og dreifingu þeirra eftir skólatímum. Einnig var rætt um biðlista sem er til staðar í báðum skólunum. Spurt um ferða- og skemmtisjóð barna í leikskólum og hvort rætt hafi verið um að hann fari í leikskólagjöldin. Margrét sagði það ekki hafa verið rætt. Samþykkt að reglur um leikskóla verði teknar til endurskoðunar.
7. Styrkir til foreldrafélaga leik-, grunn- og tónlistarskóla
Samþykkt samhljóða að skipta þeim 300.000.- kr. sem eru á fjárhagsáætlun ársins 2010 og ætluð til foreldrastarfs með eftirfarandi hætti: Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar 183.790.- og foreldrafélagið Krakkahólar kr. 66.210.-, skipt eftir fjölda nemenda. Til foreldrastarfs við Grunnskólann í Hofgarði kr. 25.000.- og til foreldrastarfs við Tónskóla A-Skaft. kr. 25.000.-, ekki skipt eftir nemendafjölda.
8. Leikskólaganga barna og vanskil foreldra. Vísað til nefndarinnar af bæjarráði
Farið yfir tölvupóst frá umboðsmanni barna en þar segir m.a.: „Umboðsmaður barna vill hvetja sveitarfélög til þess að koma til móts við fjölskyldur í fjárhagsvanda og tryggja öllum börnum tækifæri til að ganga í leikskóla óháð efnahag foreldra, sbr. 2. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.“ Ásgerður sagði fulla ástæðu til að taka vel á móti þessu bréfi en grípa þurfi inn í þegar vanskil koma fram. Var undir það tekið. Fram kom það sjónarmið að innheimtudeild sveitarfélagsins eigi að sjá um innheimtu vanskilagjalda, aðvörun eigi ekki að koma frá skólunum. Meðferð á vanskilum leikskólagjalda vísað til endurskoðunar á reglum um leikskóla. Þessum tölvupósti var einnig vísað til félagsmálaráðs af bæjarráði.
9. Heilsa og lífskjör skólanema á Suðursvæði 2006 – 2010
Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri stendur að rannsókninni Heilsa og lífskjör skólanema. Rannsóknin nær til nemenda í 6., 8. og 10. bekk. Farið yfir rannsóknina og helstu niðurstöður ræddar með sérstaka áherslu á svör nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar. Rannsóknin tekur meðal annars á mataræði, hreyfingu, líðan í skóla, einelti, sjónvarpsáhorfi, netnotkunar, reykinga, áfengisneyslu og lífsánægju. Lovísa benti á að ekki væri bannað að fara með sælgæti í félagsmiðstöðina, spurði hvort ekki megi setja skorður við það og kallaði eftir reglum þar að lútandi. Urðu um þetta mál töluverðar umræður.
10. Hagræðing í starfsemi grunnskólanna, skýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga
Farið yfir tillögur sem unnar hafa verið af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þar hafa meðal annars verið ræddar hugmyndir um styttingu vikulegs kennslutíma, fækkun skóladaga, að draga úr hlutfalli valgreina á unglingastigi o.fl. Fram kemur í skýrslunni að rekstrarkostnaður við grunnskóla landsins hafi hækkað um 33% á föstu verðlagi frá 2005 – 2008.
11. Skýrsla OECD um menntamál
Rædd skýrsla OECD um menntamál, þ.e. leikskólastig og grunnskólastig. Fram kemur í skýrslunni að heildarkostnaður við leikskólastigið á Íslandi árið 2007 sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hafi verið 103% hærri en meðaltal OECD landa og við grunnskólastigið 54% hærri. Í báðum tilfellum er Ísland í efsta sæti. Kostnaður við hvern grunnskólanemanda á grunn- og miðstigi var 43% hærri en meðaltal OECD landa (Ísl. í fjórða efsta sæti) og á hvert leikskólabarn 3ja ára og eldra 63% hærri (Ísl. í öðru efsta sæti). Einnig kemur fram að meðalfjöldi leikskólabarna á hvern starfsmanna er mun lægri á Íslandi en meðaltal OECD og það sama á við um meðalfjölda grunnskólanema á hvern kennara. (Íris, Hera og Margrét viku af fundi.)
12. Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar – Heppuskóla
Farið yfir teikningar ASK, nóvember 2010 og athugsemdir starfsmanna Grunnskóla Hornafjarðar við þær teikningar. Ábendingar verða sendar til arkitekta.
13. Dagsetningar samræmdra könnunarprófa haustið 2011
10. bekkur
Íslenska mánudagur 19. september
Enska þriðjudagur 20. september
Stærðfræði miðvikudagur 21. september
4. og 7. bekkur
Íslenska fimmtudagur 22. september
Stærðfræði föstudagur 23. september
Þórgunnur sagði að niðurstöður úr samræmdum prófum kæmu of seint í skólann. 10. bekkur væri kominn í hús en ekki 4. og 7. bekkur.
14. Önnur mál
Engin fram borin.
Fundi slitið kl. 19:30


