Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
2. fundur
Fundur haldinn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 18. ágúst 2010 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ottó Marvin Gunnarsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Inga Rún Guðjónsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 1. fundar
Lovísa spurðist fyrir um skýrslu um félagsmiðstöð ungmenna frá janúar 2008. Verður send út rafrænt.
2. Undirritun þagnarskyldu
Allir viðstaddir, kjörnir fulltrúar í skólanefnd, fulltrúar foreldra og fulltrúar starfsmanna og stofnana, undirrituðu yfirlýsingu um þagnarskyldu um þau mál sem leynt skulu fara samkvæmt lögum og eðli málsins.
3. Erindisbréf skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar
Erindisbréfið var tekið fyrir á fyrsta fundi nefndarinnar. Þá komu fram nokkrar ábendingar sem komnar eru inn í fyrirliggjandi drög. Erindisbréf samþykkt samhljóða.
4. Aðalnámskrá grunnskóla, almennur hluti
Um er að ræða drög að aðalnámskrá grunnskóla sem eru í vinnslu. Fram kemur í meðfylgjandi bréfi að menntamálaráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð hagsmunaaðila við drögunum áður en gengið verður frá þeim til útgáfu. Drögin er að finna á vefsæði ráðuneytisins http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/nr/306 . Töluverðar umræður urðu um aðalnámskrá en engar efnislegar athugasemdir gerðar. Undir þessum lið var einnig rætt um innra mat skóla sem er hluti af aðalnámskrá. Gerði Ásgerður m.a. grein fyrir yfirliti mennta- og menningarmálaráðuneytisins um úttekt á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla. Þórgunnur gerði grein fyrir stöðu Grunnskóla Hornafjarðar hvað þetta mál varðar. Sagðist hún hafa verið ósátt við mismunandi áherslur matsaðila á því hvernig matið er framkvæmt hverju sinni, hvað væri verið að skoða o.fl. Það gæti því verið erfitt að átta sig á hvort/hvenær skólar væru á réttri leið.
5. Skipulag skólaaksturs 2010 – 2011
Farið yfir fyrirliggjandi gögn um skipulag skólaaksturs skólaárið 2010 – 2011. Lovísa spurðist fyrir um möguleika á að nýta skólabíla fyrir nemendur í FAS. Stefán benti á að sumir bílarnir væru fullsetnir af grunnskólanemendum á meðan pláss kunni að vera í öðrum. Að öðru leyti gæti þetta gengið ef framhaldsskólinn gerði ekki athugasemd við að þeir nemendur skólans kunni að verða eitthvað seinir fyrir. Fundarmenn voru almennt á því að nýta ætti þennan möguleika fyrir framhaldsskólanemendur ef tækifæri væri til þess.
6. Félagsmiðstöð ungmenna, staða og verkefni
Rædd drög, dags. 5. ágúst 2010, félagsmiðstöð ungmenna, staða og verkefni. Þar segir m.a.: „Félagsmiðstöð verður rekin sem sjálfstæð eining með eigin fjárhag. Tómstundafulltrúi er yfirmaður hennar og næsti yfirmaður tómstundafulltrúa er framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.“ Lovísa ræddi um síðasta lið draganna, þar sem segir byggt verði á samstarfi við framhaldsskólann vegna nemenda eldri en grunnskólanema. Matthildur spurði hvort þetta ætti ekki að vera í höndum forstöðumanns félagsmiðstöðvar án nokkurra tengsla við framhaldsskólann. Var samþykkt að breyta niðurlagsgreininni með það í huga að halda þeim möguleika opnum að ungmenni 16 ára og eldri gefist tækifæri að nýta sér þessa aðstöðu ef áhugi er fyrir hendi. Matthildur spurðist fyrir um ungmennaráð sem samkvæmt starfslýsingu hafi verið á höndum tómstundafulltrúa. Var lögð áhersla á að starf ungmennaráðs falli ekki niður. Drögin samþykkt með áorðnum breytingum.
7. Samningur milli Grunnskóla Hornafjarðar og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Þórgunnur kynnti samninginn sem m.a. er ætlað að styrkja íþrótta-, list- og verkgreinakennslu á grunnskólastigi og gefa nemendum í 9. og 10. bekk möguleika á fjölbreyttara vali.
8. Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar – Heppuskóla
Ásgerður fór yfir málið og sagði þetta vera framhald þeirrar umræðu sem hófst á fyrsta fundi nefndarinnar. Velti hún upp hugmyndum, setti fram spurningar um áherslur og áfangaskiptingu verksins. Lagði hún áherslu á að sem víðtækast samráð við alla þá sem hagsmuna eiga að gæta og kallað verði eftir hugmyndum frá sem flestum aðilum. Þá lagði hún áherslu á að setja þurfi þessa vinnu í farveg og kynnti þá tillögu að skóla-‚ íþrótta- og tómstundanefnd haldi utan um vinnuna. Þórgunnur benti á kynningarfundi með foreldrum í byrjun september, þá mætti nota til að kynna þau verkefni sem hér um ræðir. Inga Rún sagðist treysta fagfólki best til að að halda utan um þetta verk. Þórgunnur benti á að ánægja með breytingar á Hafnarskóla stöfuðu ekki síst af því að um þær var mikið samráð við alla sem hagsmuna áttu að gæta.
9. Önnur mál
· Ásgerður gerði grein fyrir umhirðu leiksvæða í sveitarfélaginu. Vitnaði hún m.a. til greinargerðar yfirverkstjóra vinnuskólans um það mál.
· Ásgerður greindi frá tillögu Árna Rúnars Þorvaldssonar, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar sem hann flutti á fundi bæjarstjórnar um að gerð verði úttekt á kostnaði nemenda og fjölskyldna þeirra við innkaup á skólavörum áður en kennsla hefst í Grunnskóla Hornarfjarðar í haust. Stefán greindi frá þeirri vinnu sem þegar er hafin við þetta verk. Spunnust um þetta mál töluverðar umræður.
· Rædd umhirða og viðhald á íþróttavöllum og nálægum svæðum. Bent á að girða þurfi af nýjan körfuboltavöll, m.a. til að koma í veg fyrir skemmdir.
· Þórgunnur benti á „stubbahús“ utan á sundlaugarbyggingu. Samkvæmt lögum ætti það að fara.
Fundi slitið kl. 18: 45


