Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 1
1. fundur
Fundur haldinní skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 23. júní 2010 kl. 16:15 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Ottó Marvin Gunnarsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Torfi Friðfinnsson, Þórgunnur Torfadóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Íris H. Jóhannsdóttir, Styrgerður Jóhannsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Í upphafi fundar var farið í skoðunarferð í Heppuskóla, íþróttahús og á íþróttasvæði utan húss. Eftir skoðunarferðina hvatti formaður nefndarinnar til þess að menn hugleiði vel það sem menn upplifðu í skoðunarferðinni. Málefni skólans verði tekin upp á næsta fundi.
1. Erindisbréf nefndarinnar og stefnur
Farið yfir erindisbréf nefndarinnar. Lagt til að nefndarmenn komi með ábendingar um breytingar á erindisbréfinu á næsta fundi nefndarinnar. Einnig farið yfir skólastefnu sveitarfélagsins, fjölskyldustefnu og stefnu í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum. Torfi gerði að umtalsefni árekstra sem orðið hafa á milli stundatöflu Sindra og Tónskólans. Þetta hafi einkum átt sér stað þegar stundatöflu Sindra var breytt. Einnig benti hann á að stundataflan þurfi að birtast fyrr. Þórgunnur benti á að þetta stafaði m.a. af því að ekki væri búið að ráða þjálfara tíamanlega.
2. Næstu verkefni á vegum skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar
Ásgerður Gylfadóttir lagði fram eftirfarandi um helstu verkefni skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Ásgerður upplýsti að listinn væri síður en svo tæmandi þar sem nefndarmenn, starfsfólk og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta geti komið með tillögur að verkefnum sem nefndin ynni að og bætti starfsemi sveitarfélagsins. Óskaði Ásgerður eftir umræðum um framlagðan texta:
· Skóla-, íþrótta –og tómstundanefnd mun hafa að leiðarljósi að tryggja vellíðan starfsfólks, nemenda skóla og iðkenda í tómstundastarfi og jákvæð samskipti á milli allra. Allir þurfa að einbeita sér að því að ná árangri í starfi. Í skólamálum verði lögð áhersla á sveigjanlega þjónustu, meðal annars með því að kanna hvort lengd viðvera hefjist fyrr á haustin fyrir börn sem eru að hefja skólagöngu. Tryggja þarf að sérfræðiþjónusta við börn verði bæði aðgengileg og öflug.
· Nefndin þarf að fylgja eftir breytingum sem gerðar hafa verið á grunnskólanum, meðal annars með að leggja áherslu á námsárangur og vellíðan nemenda og starfsfólks. Í leikskólamálum verður farið í vinnu í samráði við starfsfólk og foreldra að greina rekstrarumhverfi skólanna, viðhorf foreldra og starfsfólks til skipulagsins og ákvarðanir teknar á grundvelli þeirrar skoðunar. Efla þarf list- og verkgreinar og sett verður á fót skoðun strax í upphafi kjörtímabilsins hvernig best sé að standa að því, til dæmis með byggingu sérstaks list- og verkgreinahús fyrir skólana og aðra hópa í samfélaginu sem kynnu að nýta sér slíka aðstöðu og uppbyggingu hönnunarsmiðju. Ljúka verður við endurbætur á Sindrabæ með þarfir tónskólans að leiðarljósi.
· Haustið 2010 verður hrundið af stað stefnumótun í æskulýðs- og íþróttamálum þar sem almenningsíþróttir og jaðaríþróttir verða sérstakt áherslumál ásamt því að viðhalda og efla það góða starf sem unnið hefur verið í íþróttamálum á síðustu árum. Það verður gert til dæmis með því að lengja göngustíg meðfram strandlengjunni, ljúka frágangi á miðbæjarsvæði með gróðursetningu og uppsetningu bekkja og leiktækja, fá kynningu á ýmsum íþróttagreinum og tómstundastarfi sem ekki hefur enn þá skotið rótum á Hornafirði, s.s. bardagaíþróttum, dansíþróttum og fleira.
· Strax verði hafist handa við að móta hugmyndir um endurbætur á Heppuskóla, íþróttahúsi og millibyggingu á milli sundlaugar og íþróttahúss og ráðast síðan í þær framkvæmdir í áföngum. Þessar hugmyndir verði unnar í góðu samráði við starfsmenn skóla og foreldra.
· Forvarnarstarf í öllum skilningi er mikilvægt, hvort sem rætt er um vímuvarnir, öryggi í umferð eða líkamlegt og andlegt heilbrigði. Í skólum og skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi gefst gott tækifæri að vinna markvisst að þessu. Hlutverk nefndarinnar verður að vera í fararbroddi um að efla forvarnarstarf með þátttöku íbúa og starfsmanna á þessum vettvangi. Samstarf á milli félagsmiðstöðvar, skóla, félagasamtaka og foreldra er forsenda þess að vel takist til. Nefndin mun hefja markvissa vinnu við eflingu forvarna haustið 2010 með ofangreint að leiðarljósi.
· Félagsmiðstöð verði færð undir Grunnskóla Hornafjarðar, samráð við foreldra um rekstur hennar eflt og forvarnarstarf verði undirliggjandi í öllum rekstri hennar.
· Nefndin mun jafnframt stuðla að samfellu í skipulagi skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs og að áfram verði stutt við tómstundaiðkun eð tómstundakorti.
· Á hverjum tíma þarf nefndin líka að fylgja eftir fyrri stefnumörkun sveitarfélagsins, s.s. skólastefnu og fjölskyldustefnu, auk þess að fylgja eftir ákvæðum laga og reglna sem Alþingi hefur samþykkt.
Ásgerður ítrekaði að þetta væri ekki tæmandi listi. Hlustað verði á aðrar hugmyndir. Torfi spurði hvar menn hygðust hýsa forvarnamálin. Ásgerður lagði áherslu á samvinnu þeirra sem koma eiga að þessum málum, skóla, félagsmiðstöð, áhugafólk o.fl. Hulda velti upp hugmynd að því að Sindri verði „fyrirmyndarfélag“. Einnig spurði hún hvort vinna ætti einnig eftir „uppeldi til ábyrgðar“ utan skólans. Stefán sagði skólanefndina bera meginábyrgð á þessum málaflokki.
3. Félagsmiðstöð
Samkvæmt nýrri samþykkt um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar falla æskulýðsmál undir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Í ljósi breytts skipulags hefur verið lagt hefur til að félagsmiðstöð muni starfa undir Grunnskóla Hornafjarðar. Með þeirri skipan verði samvinna skóla og félagsmiðstöðvar tryggð og samráð verði um félagslíf ungmenna hvort sem það er á vegum skóla eða félagsmiðstöðvar. Um leið er lögð áhersla á sjálfstæði félagsmiðstöðvarinnar sem einingar og að það verði skrifað inn í greinargerð að starfsemi hennar. Matthildur benti á að á síðasta kjörtímabili hafi verið lögð áhersla á aðskilnað skóla og félagsmiðstöðvar. Benti hún m.a. á skýrslu sem unnin var um þessi mál. Lovísa spurðist fyrir um aldurinn eftir grunnskóla. Ottó sagði að sá hópur ætti að tilheyra nemendaráði FAS. Hins vegar væri ætlunin að auka samstarf nemendaráðs við félagsmiðstöð.
4. Sérfræðiþjónusta við börn og fjölskyldur þeirra
Farið yfir yfirlit starfsmanna um þá sérfræðiþjónustu sem er til staðar í sveitarfélaginu sem og hugmyndir um hvar helst þyrfti að bæta úr í þeirri þjónustu. Fram kemur í þessu yfirliti að samfélagið býr yfir miklum mannauði og fjölbreyttum á þessu svið. Mikilvægt sé hins vegar að tryggja gott samstarf þessara starfsmann, svo sem með samráðsfundum og fundum um einstök mál þegar fleiri en einn sérfræðingur kemur að máli einstaklinga.
Fram kemur í þessu yfirliti að grunnskólinn óskar eftir því að deildarstjóri sérkennslu verði í 100% starfi í skólanum. Nefndin tekur undir þá hugmynd en leggur áherslu á að ekki verði breyting á fyrr en ráðinn hefur verið starfsmaður með sérstaka menntun að leikskólanum.
Undir þessum lið var einnig tekið fyrir bréf skólastjóra leikskólanna þar sem farið er fram á heimild til þess að ráða að skólunum starfsmann „í 100% starf leikskólasérkennara eða þroskaþjálfa,“ eins og segir í bréfinu. Þessum starfsmanni verði falið það verkefni að vinna með börnum sem þurfa sérstaka aðstoð og þjálfun, sbr. 22. grein laga um leikskóla.
Þórgunnur benti á að oft vantaði menntaða starfsmenn í þær stöður sem eru í skólum sveitarfélagsins. Með menntuðum starfsmönnum í þeim stöðum væri margt einfaldara.
Matthildur benti á að oft sé teymisvinna nauðsynleg vegna einstakra mála.
Ásgerður lagði til að nefndin mæli með því að tekið verði undir erindi leikskólanna. Var það samþykkt.
5. Önnur mál
· Ásgerður gerði það að tillögu sinni að á Humarhátíð 2010 fái öll börn yngri en 18 ára frítt í sund þá daga sem hátíðin stendur. Nefndin tekur undir þessa hugmynd. Sigrún Kapitóla benti á að þetta gæti kallað á þörf fyrir fleiri starfsmenn þessa daga.
· Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að fundartími nefndarinnar verði kl. 16:30 þriðja miðvikudag hvers mánaðar.
· Ottó hvatti til að nefndin, eftir aukin verkefni, gæti að öllum málaflokkum sem undir hana falla.
Fundi slitið kl. 18: 40


