Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 125
125. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 5. maí 2010 kl. 11:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Gunnar Sigurjónsson formaður (í síma), Gísli Vilhjálmsson, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Ráðning skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar
Á 124. fundi skólanefndar var eftirfarandi bókað: „Tekin var ákvörðun af bæjarráði að ráðgjafarfyrirtækið Capacent Ráðningar sæi um auglýsingu stöðunnar, tæki á móti umsóknum, ynni úr þeim gögnum sem umsækjendur sendu inn og mæti hæfi umsækjenda til að gegna stöðunni.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna: Anna Kristjana Egilsdóttir, grunnskólakennari og MBA nemi við HÍ, Vatnsholti 9b, Keflavík; Hulda Laxdal Hauksdóttir, grunnskólakennari, verkefnastjóri og nemi við HÍ, Hafnarbraut 41, Höfn; Ingólfur Kjartansson, fyrrv. skólastjóri, nú nemi við HÍ, Brekkuhvammi 16, Hafnarfirði; Kári Garðarsson, íþróttakennari og MPA nemi við HÍ
Miklubraut 68, Reykjavík; Lind Völundardóttir, M. Ed. nemi við HÍ Bergstaðastræti 25b, Reykjavík; Ragnhildur Einarsdóttir, grunnskólakennari og MPA nemi við HÍ, Hlíðartúni 20, Höfn; Sesselja Konráðsdóttir, þróunarstjóri, Hálsaseli 20, Reykjavík.
Skólanefnd hefur móttekið umsögn Capacent og vinnur áfram að málinu.“
Snemma í umsagnarferlinu dró Anna Kristjana umsókn sína til baka. Að lokinni ítarlegri yfirferð Capacent yfir umsækjendur var niðurstaða fyrirtækisins sú að tveir umsækjendur, þau Hulda Laxdal Hauksdóttir og Kári Garðarsson væru hæfust umsækjenda til að gegna stöðu skólastjóra. Í samræmi við þá niðurstöðu voru þau tvö boðuð á fund skólanefndar. Hulda mætti á fund nefndarinnar mánudaginn 3. maí. Í tölvupósti sem Kári sendi framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs þriðjudaginn 4. maí segir: „Undirritaður hefur tekið þá ákvörðun að draga tilbaka umsókn sína um starf skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar. Ástæða þess eru breyttar aðstæður í fjölskyldunni og atvinnutilboð sem undirritaður hefur ákveðið að taka.“
Skólanefnd leggur til að Hulda Laxdal Hauksdóttir verði ráðin skólastjóri við Grunnskóla Hornafjarðar. Hulda hefur mjög langa reynslu sem skólamaður. Hún hefur kennt á öllum stigum grunnskóla, unnið í sérskóla fyrir fatlaða, kennt við framhaldsskóla og starfað sem aðstoðarskólastjóri í grunnskóla. Hún uppfyllir að öllu leyti þær menntunarkröfur sem taldar voru nauðsynlegar og æskilegar í auglýsingu um hina lausu skólastjórastöðu. Allar umsagnir þeirra sem Capacent leitaði til eru framúrskarandi. Þar kom m.a. fram að hún væri mjög hæf í samskiptum, byggi yfir ágætis stjórnunarhæfileikum, sýndi metnað, hugmyndaauðgi og skipulagshæfni og hefði einlægan áhuga á skólamálum.
Það er einróma niðurstaða skólanefndar að leggja það til að Hulda Laxdal Hauksdóttir verði ráðin skólastjóri við Grunnskóla Hornafjarðar.
Fundi slitið kl. 11:30


