Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 123
123. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 7. apríl 2010 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Gunnar Sigurjónsson formaður, Gísli Vilhjálmsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Inga Rún Guðjónsdóttir, Íris H. Jóhannsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 122. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði 2010 – 2011
Farið yfir skýringar skólastjóra sem fylgdu skóladagatalinu. Fram kemur að dagatalið er með hefðbundnum hætti.
Skólanefnd samþykkir skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði.
3. Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2010 – 2011
Þórgunnur fór yfir dagatalið og svaraði fyrirspurnum.
Skólanefnd samþykkir skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar.
4. Skóladagatal leikskólanna, Krakkakots og Lönguhóla, 2010 – 2011
Margrét fór yfir dagatalið og svaraði þeim spurningum sem fram voru bornar.
Skólanefnd samþykkir skóladagatal leikskólanna.
5. Samstarf Grunnskóla Hornafjarðar og framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, breytingar vegna nýrra laga
Samkvæmt upplýsingum frá grunnskólanum eru samtals 17 nemendur af 29 í 10. bekk sem taka einhverja framhaldsskólaáfanga á yfirstandandi skólaári. Samanlagður fjöldi áfanga er 36. Reiknað er með að samstarf grunnskólans og framhaldsskólans verði á svipuðum nótum á næsta skólaári en draga muni úr kennslu í framhaldsskólanum. Þetta stafar af því að fjórir áfangar munu færast niður í grunnskólann úr framhaldsskólanum í samræmi við lög um grunnskóla og framhaldsskóla. Fram kom hjá Þórgunni að nemendur þurfi að fá 8,5 í meðaleinkunn í 9. bekk til að fá að taka framhaldsskólaáfanga. Ekki verður boðið upp á logsuðu og rafsuðu eins og gert var á yfirstandandi skólaári enda um kostnaðarsama áfanga að ræða.
6. Opinn fundur skólanefndar um skólamál
Farið yfir kynningargögn vegna fundar sem haldinn verður á Hótel Höfn, fimmtudagskvöldið 8. apríl. (Gísli vék af fundi)
7. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:10


