Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 119
119. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 28. október 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Maríanna Jónsdóttir, Sigurður Páll Árnason, Steinarr Bjarni Guðmundsson, Haukur Þorvaldsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 118. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Rekstur sundlaugar sveitarfélagsins
Haukur fór yfir reksturinn. Greindi hann frá því að gestir í nýju lauginni séu um 44 þús. frá opnun í lok apríl og aðgangseyrir sé nú um 10,7 millj. en var allt árið í fyrra 3,7 millj. Á milli 5 – 6 þús. komu í gömlu laugina á fyrstu mánuðum ársins. Einnig var rætt um breytingar á miðaverði og breytingu á leigu íþróttamannvirkja til skóla og íþróttafélaga.
3. Fjöldi barna í leikskólum sveitarfélagsins og lengd skólatíma
Farið yfir útsend gögn. Fram kom að meðaldvalartími barna í Krakkakoti er 6,81 klst. á dag og 7,2 klst. á Lönguhólum. Samtals eru 100 börn í leikskólum sveitarfélagsins í byrjun október. Fram komu í máli formanns nefndarinnar efasemdir um leikskólagöngu fram yfir 9 klst.á dag en dæmi eru um að börn séu 9,5 klst. í leikskóla. Aðrir bentu á að að mikilvægt sé að bjóða upp á svo langan dvalartíma vegna mismunandi vinnutíma fólks.
4. Endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins
Farið yfir endurskoðaða skólastefnu sveitarfélagsins og hún samþykkt samhljóða.
5. Svör við könnun vegna aukaaksturs
Könnunin var gerði í september og send á 27 heimili utan Hafnar þar sem búa 43 börn. Samtals svöruðu 5 heimili könnuninni. Notkunin á bíl vegna aukaaksturs hefur verið með eftirfarandi hætti: Fimmtudagurinn 1. október, 3, þ.e. 2 í Hverfið og 1 á Mýrar. Enginn í Lón.
Fimmtudagurinn 8. október, 1, þ.e. á Mýrar.
Fimmtudagurinn 15. október, 3, þ.e. 2 í Hverfið og 1 á Mýrar.
Fimmtudagurinn 22. október, 4, þ.e. 3 í Hverfið og 1 á Mýrar.
Skólanefnd samþykkir með þremur atkvæðum, einn sat hjá, að frá og með annarri viku nóvembermánaðar verði þessum akstri hætt vegna lítillar nýtingar.
6. Skólanámskrá Grunnskólans í Hofgarði
Liðnum frestað til næsta fundar skólanefndar.
7. Forvarnamál, erindi frá bæjarráði
Töluverð umræða skapaðist um þennan málaflokk og voru menn á einu máli um að bæta þurfi forvarnastarfið. Einnig rætt um hlutverk skólans í þessum málum. Formaður leggur til að forvarnamál verði vistuð hjá menningar- og tómstundanefnd. Var það samþykkt. Eftir sem áður verði þessi málaflokkur samstarfsverkefni allra þeirra sem koma að málefnum barna.
8. Notendahugbúnaður í skólum frá leikskóla til háskóla, bréf menntamálaráðuneytisins, dags. 2. október 2009
Farið yfir bréf menntamálaráðuneytisins, dags. 2. október 2009 þar sem eftirfarandi kemur m.a. fram: „Samkvæmt nýsamþykktri íslenskri málstefnu skulu fræðsluyfirvöld setja sér það markmið að innan þriggja ára verði allt notendaviðmót í tölvum í íslenskum leik-, grunn- og framhaldsskólum á íslensku.“ Spurt var hver ætti að borga kostnað við slíkar breytingar.
9. Fjárhagsáætlun 2010
Farið yfir tillögur að fjárhagsáætlun á fræðslusviði 2010 og helstu forsendum áætlunarinnar.
10. Ákvörðun um borgarafund
Skólanefnd leggur til að borgarafundur um skólamál verði haldinn í janúar/febrúar.
11. Önnur mál
Engin fram borin.
12. Einstaklingsmál
Fært í trúnaðarbók. Þennan lið sat aðeins skólanefnd ásamt starfsmanni nefndarinnar og skólastjóra hluta tímans.
Fundi slitið kl. 19:00


