Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 118
118. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 23. september 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gísli Vilhjálmsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Maríanna Jónsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir, Haukur Þorvaldsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 117. fundar
Engar athugasemdir gerðar. Undir þessum lið afhenti formaður skólanefndar skólastjórnendum gjöf frá Jafnréttisstofu, bækur til kennslu í jafnréttismálum.
2. Nýting íþróttahúss í Mánagarði
Haukur fór yfir málið og afhenti minnisblað sitt með hugmyndum um nýtingu Mánagarðs. Eins og fram hefur komið flutti Umf. Sindri fimleika í íþróttahús í Mánagarði. Var ákveðið að gera þetta sem tilraun fram að áramótum og meta stöðuna að þeim tíma liðnum. Haukur upplýsti að fimleikadeildin væri sátt við að vera með sína starfsemi í Mánagarði og ekki annað að heyra en að foreldrar barnanna væru það einnig. Þá kom fram að blak og badminton sem áður voru í Mánagarði væru nú íþróttahúsinu á Höfn.
Auk þessa nýtir Umf. Máni íþróttahúsið í Mánagarði fyrir sína starfsemi. Auk þessa var rædd nýting annarra á húsnæði Mánagarðs, svo sem leiklistarstarfsemi o.fl. og hugsanlega árekstra sem gætu orðið. Sigríður spurðist fyrir um akstur, útleigu á húsinu og hver bæri ábyrgð á húsinu. Haukur sagði að Mánagarður væri undir hans stjórn. Hann sagði Mánagarð henta til margvíslegrar starfsemi og samkomuhalds. Aðspurður sagðist Haukur ekki vita annað en að akstur á vegum Sindra á milli Hafnar og Mánagarðs gangi vel sem og önnur starfsemi og tók Elín undir þau orð. (Haukur vék af fundi.)
3. Fjöldi barna í skólum sveitarfélagsins
Við upphaf skólaárs voru nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar 308 og í Grunnskólanum í Hofgarði 11 nemendur. Þann 7. sept. sl. voru nemendur leikskólanna samtals 99. Heildarfjöldi nemenda við Tónskóla A-Skaft. er 169 þar af eru 52 í forskólanámi. Í ljósi þessara talna spurði Sigríður hvort það væri ákveðið að 7. bekkur verði til frambúðar í húsnæði Heppuskóla.
4. Tillögur starfsmanna á Lönguhólum um húsnæðismál skólans – svar við ósk skólanefndar á 115. fundi nefndarinnar
Farið yfir tillögurnar og þær ræddar. Einnig gerð grein fyrir undirbúningsvinnu leikskólastjóra og tveggja starfsmanna á fræðslusviði og tæknisviði vegna málsins og hugmyndum sem fram hafa komið við þá vinnu. Einnig gerð grein fyrir fundi með arkitekti leikskólans um þetta mál. Elín lýsti yfir ánægju með fram komnar hugmyndir og taldi þær í anda þeirra umræðna sem átt hafa sér stað um málið. Sigríður lagði áherslu á að menn eigi ekki að spara um of þegar kemur að byggingu skólahúsnæðis, þar þurfi að vera til staðar metnaður. Skólanefnd sammála um að haldið verði áfram með þetta verkefni.
5. Kynning á reglugerðum menntamálaráðuneytisins:
· Reglugerð um mat og eftirlit í grunnskólum og upplýsingaskyldu sveitarstjórna um skólahald
· Reglugerð um starfsumhverfi leikskóla
· Reglur um skólaakstur í grunnskóla
· Reglugerð um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða
· Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla
· Reglugerð um breytingu á reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla
· Reglugerð um heimakennslu á grunnskólastigi
Undir þessum lið var rætt um eftirlitshlutverk skólanefndar og eftirlit menntamálaráðuneytisins með starfsemi leik- og grunnskóla. Einnig rætt um reglur um leikskóla og hvort ástæða sé til að endurskoða þær.
6. Skólanámskrá og námsáætlanir Grunnskóla Hornafjarðar (send í tölvupósti)
Skólanefnd samþykkir skólanámskrá Grunnskóla Hornafjarðar.
7. Göngum í skólann
Fram kom að Grunnskóla Hornafjarðar er þátttakandi í verkefninu „Göngum í skólann“. Upplýst að það eru fyrst og fremst nemendur skólans sem eru þátttakendur í verkefninu en jafnframt að meirihluti starfsmanna gangi/hjóli í skólann.
8. Menntun kennara við grunnskólana
Farið yfir útsend gögn þar sem m.a. kemur fram að hlutfall réttindakennara við skólana er 67.5%. Flestir leiðbeinendur eru með háskólapróf eða langt komnir með kennaranám.
Undir þessum lið var einnig upplýst að nemendur með annað móðurmál en íslensku eru 16 í grunnskóla. Þá kom fram að sá nemandi sem lengstum tíma ver í skólabíl er um 2 x 50 mínútur á dag og fer hann í skólabílinn kl. 7:10 frá heimili sínu á Mýrum.
9. Skólastefna sveitarfélagsins – tillögur að breytingum (send í tölvupósti)
(Þessi liður var tekinn síðastur á dagskránni, á eftir liðnum önnur mál.) Undir þessum lið sátu einungis aðalmenn í skólanefnd. Að lokinni yfirferð var samþykkt að taka endurskoðaða skólastefnu til endanlegrar afgreiðslu á næsta fundi skólanefndar.
10. Önnur mál
· Stefán greindi frá gögnum og könnun sem send hefur verið á heimili grunnskólabarna í póstnúmerinu 781 vegna fyrirhugaðs aukaaksturs með nemendur í frístunda- og tómstundastarfi. Skólanefnd leggur til að aukaakstur verði á fimmtudögum.
· Upplýst að Evrópski tungumáladagurinn verði 26. september 2009.
· Þorvaldur upplýsti að opið hús verði í Hafnarskóla 15 – 18 miðvikudaginn 30. september.
· Torfi spurðist fyrir um samstarf grunnskóla og framhaldsskóla. Stefán sagði engar breytingar fyrirsjáanlegar á námi nemenda Grunnskóla Hornafjarðar sem taka námseiningar við FAS, a.m.k. ekki fram til áramóta.
· Þorvaldur upplýsti að skólaráð komi saman til fyrsta fundar í næstu viku.
· Gísli spurðist fyrir um gistingu íþróttahópa í skólum sveitarfélagsins og hugsanlega ábyrgð ef eitthvað kemur upp á, svo sem bruni eða annað.
· Margrét vakti athygli á skýli sem reist hefur verið í Hrossabithaga. Það muni nýtast útileikskólanum og öðrum sem áhuga hafa.
· Anna María spurðist fyrir um þjónustu deildarstjóra sérkennslu við leikskólana. Margrét sagði þá þjónustu ekki næga, sagðist vilja meira.
· Elín hvetur skólastjórnendur til að sett verði upp listaverk/myndir í matsal Grunnskóla Hornafjarðar og minnti á að sveitarfélagið ætti mikið safn verka. Tók skólanefnd undir þessa hugmynd. (Margrét, Maríanna, Guðrún, Sædís, Gísli og Þorvaldur viku af fundi eftir þennan lið.)
Fundi slitið kl. 19:45


