Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 53
53. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 17. september 2003 kl. 16.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Friðrik Ingvaldsson, Valdís Kjartansdóttir, Sævar Þór Gylfason, Birna Skarphéðinsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 52. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Kennaraskrá
Eftirfarandi skrá er unnin upp úr fyrirliggjandi gögnum um starfsmenn grunnskólanna:
| Hlutfall | ||
| Fjöldi | af heild í % | |
| Réttindakennarar | 28 | 61 |
| Leiðbeinendur | 18 | 39 |
| Samtals | 46 | 100 |
| Hlutfall | ||
| Fjöldi | af heild í % | |
| Leiðbeinendur í réttindanámi | 7 | 15 |
| Leiðbeinendur með háskólanám | 6 | 13 |
| Leiðb. ekki með háskólanám | 12 | 26 |
| Hlutfall | ||
| Fjöldi | af heild í % | |
| Réttk. og leiðb. í réttindanámi | 35 | 76 |
| Réttk. og leiðb. með háskólan. | 34 | 74 |
Töluverðar umræður urðu um þessa stöðu og velt upp spurningunni hvers vegna hluttfall leiðbeinenda er svo hátt. Menn sammála um það að gera þurfi átak til að bæta þetta hlutfall.
3. Mötuneytismál Hafnar- og Heppuskóla
Gerð grein fyrir niðurstöðum úr þátttökukönnun meðal nemenda í Hafnarskóla og Heppuskóla. Fram kom að 10 nemendur í Hafnarskóla óskuðu eftir mat með þeim skilmálum sem kynntir voru og 14 í Heppuskóla. Kaffi Hornið er ekki tilbúið til að hefja sölu á skólamáltíðum með svo fáa viðskiptavini. Fram kom gagnrýni á tilhögun kynningar og kröfu um það að greiða þyrfti hálft á fyrirfram. Samþykkt að kannað verði hvort ekki megi bjóða mat frá mötuneyti Nesjaskóla eða mötuneyti Krakkakots fyrir nemendur í Hafnarskóla og Heppuskóla. Stefán greindi frá viðræðum við Erlu, yfirmann mötuneytis í Nesjaskóla, um að taka þetta verk að sér. Taldi hún því ekkert til fyrirstöðu.
4. Úttekt á leikskólastarfi 2003
Til umræðu var skýrsla framkvstj. fræðslu- og félagssviðs, dagsett 12. september 2003. Stefán fór yfir vinnu við úttektina og skýrði ýmislegt í texta og töflum. Elín sagði að ekkert kæmi á óvart í niðurstöðum skýrslunnar. Birna greindi frá tilhögun starfs í Óla priki og taldi hún starfið sambærilegt við starf hinna leikskólanna tveggja. Gerði hún og að umtalsefni kosti lítilla skóla. Mikill fjöldi vistunartíma í leikskólunum var ræddur og áhrif þessa fjölda á leikskólastarfið. Margrét gerði faglega úttekt að umtalsefni og lagði áherslu á að hún fari fram. Friðrik sagði fjölda vistunartíma góðan fyrir foreldra. Nefndarmenn þökkuðu almennt fyrir þessa skýrslu. Margrét lagði áherslu á að gera þurfi átak til að fá hingað fleiri menntaða leikskólakennara.
Skólanefnd tekur undir meginniðurstöður skýrslunnar. Lögð er áhersla á að fram fari fagleg úttekt (ytra mat) á starfsemi leikskólanna. Nefndin sammála um að leikskólinn Óli prik verði rekinn með óbreyttu sniði þetta skólaár, þ.e. frá 13 - 17.
5. Önnur mál
• Gerð grein fyrir endurnýjun tölvubúnaðar í Hafnarskóla og Heppuskóla og umræðum um það mál í bæjarráði. Eftirfarandi var bókað á 221. fundi bæjarráðs: „Samþykkt að teknar verði á rekstrarleigu 18 borðtölvur og ein fartölva fyrir Heppuskóla. Samtals verði í skólanum 29 nemenda- og kennaratölvur (29 útstöðvar samtals). Fyrir Hafnarskóla verði teknar á rekstarleigu 20 borðtölvur og 1 fartölva. Samtals verði í skólanum 25 kennara- og nemendatölvur (25 útstöðvar samtals).”
• Samstarf Heppuskóla og FAS. Farið yfir samstarfssamning skólanna sem gerður var vorið 2000. Samstarf skólanna byggist fyrst og fremst á þessum samningi. Nemendur Heppuskóla fara á einn kynningarfund í FAS á vorönn.
• Gerð gein fyrir námskeiðinu „Samskipti í skólum”, haldið 5. og 6. sept. sl., sem 58 starfsmenn grunnskólanna sóttu.
• Farið yfir skrá (töflu) um fjölda nemenda í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla. Í grunnskólum sveitarfélagsins eru samtals 434 nemendur, í leikskólum 128 og í Tónskóla A-Skaft. eru 114 nemendur auk 75 nemenda í 2. og 3. bekk Nesjaskóla sem stunda þar sitt forskólanám.
• Kynnt bréf frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands þar sem greint er frá mati eftirlitsins á tveimur kennslustofum í Heppuskóla. Fram komu ýmsar athugasemdir við þetta mat.
• Greint frá því að í lengdri viðveru í Hafnarskóla eru nú 10 nemendur.
• Skólanefndarmönnum afhent fundarboð vegna „fundar um um uppbyggingu Sindrabæjar miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 20:00 í Sindrabæ.”
• Afhent bréf menntamálaráðuneytisins vegna úttektar á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla sveitarfélagsins á haustönn 2003.
• Afhent bréf menntamálaráðuneytisins þar sem greint er frá könnun á tónmenntakennslu í grunnskólum landsins skólaárið 2002 – 2003.
• Elín ræddi um endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins. Lagði til að þetta mál verði tekið til umræðu á fundi skólanefndar fljótlega.
• Bryndís gerði að umtalsefni skort á reiðhjólgrindum við grunnskóla sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 18:40


