Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 117
117 fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 12. ágúst 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Maríanna Jónsdóttir, Pálína Þorsteinsdóttir, Jóhann Morávek og Stefán Ólafsson.
Elín bauð fundarmenn velkomna á fyrsta fund eftir skólafrí.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Fundargerð 116. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
- Skólaárið 2009 – 2010, kynning skólastjórnenda
Þorvaldur fór yfir starf og skipulag Grunnskóla Hornafjarðar. Hann sagði nemendur skólans verða 309 á næsta skólaári, 172, í 1. – 6. bekk og í 7. – 10. bekk 137. Hann greindi frá fyrirkomulagi í mötuneyti o.fl. Þá greindi hann frá nýjum kennurum við skólann og kennurum sem koma aftur til starfa við skólann eftir nokkurt hlé. Hann sagði góðan anda vera í starfsliðinu og ánægju vera með breytingar og endurbætur á skólanum sem nú eru að klárast. Pálína fór yfir væntanlega starfsemi Grunnskólans í Hofgarði. Sagði nemendur verða 11 frá 1. – 6. bekk. Hún sagði nemendum gróflega verða skipt í eldri deild og yngri þó alltaf sé skörun á milli aldurshópa eftir aðstæðum. Hún sagði ekkert barn verða á leikskólaaldri í Öræfum, taldi það vera tímamót og sagðist ekki vita til að það hafi gerst áður. Sama starfsfólk verður við skólann og undanfarin ár. Þá greindi hún frá því að kennarar skólans sætu námskeið þessa viku með öðrum kennurum í sveitarfélaginu.
Jóhann fór yfir starfsemi Tónskólans næsta skólaár. Hann sagði kennara við skólann verða 11 – 12, einhverjir í minni stöðugildum en verið hefur. Sagði hann að m.a. 2 – 3 nemendur sem langt eru komnir í tónlistarnámi muni koma eitthvað að kennslu við skólann sem m.a. byggist að nokkru leyti á góðri reynslu af því fyrirkomulagi á síðasta skólaári.
Margrét fór yfir starfsemi Lönguhóla næsta skólaár. Greindi hún frá væntanlegri starfsemi útileikskólans sem og starfi innan veggja skólans. Hún sagði að áhersla verði lögð á að sinna nemendum með sérþarfir. Þá sagði hún að haldið verði upp á 30 ára afmæli leikskólans þann 29. ágúst nk.
Nokkrar spurningar komu frá skólanefndarmönnum til skólastjórnenda að lokinni yfirferð stjórnenda. (Margrét, Maríanna, Pálína og Jóhann viku af fundi)
- Skólaakstur 2009 – 2010
Farið yfir útsend gögn, skipulag skólaaksturs 2009 – 2010. Engar athugasemdir voru gerðar en fram bornar nokkrar spurningar.
- Svar Sambands ísl. sveitarf. við erindi Myndstefs v. samninga við grunnskóla
Skólanefnd felur starfsmanni nefndarinnar og skólastjórnendum að fylgjast með framgangi málsins
- Staða framkvæmda við Grunnskóla Hornafjarðar og Sindrabæ
Í dag, 12. ágúst, er efri hæðin tilbúin, lítils háttar eftir á neðri hæð, mötuneyti langt komið sem og skólalóðin (Hafnarskóli). Á eldra stiginu á eftir að mála gömlu tölvustofuna. Verið er að vinna í einu herbergi á neðri hæð Sindrabæjar sem verður sérstaklega hljóðeinangrað fyrir ásláttarhljóðfæri. Elín óskað starfsmönnum og börnum sérstaklega til hamingju með nýendurbætt skólahúsnæði og skólalóð.
- Skipulag aukaaksturs vegna félagsstarfa grunnskólanema
Farið yfir málið og ýmsar hugmyndir ræddar. Engin niðurstaða varð í fyrirkomulagi og vali á degi. Tekið fyrir aftur á næsta fundi.
- Önnur mál
- Elín minnti menn á opinn dag í Grunnskóla Hornafjarðar 25. ágúst þar sem skólinn verður m.a. opinn almenningi frá 16 – 18.
- Elín tilkynnti að endurskoðun á skólastefnu verði tekin fyrir á næsta fundi nefndarinnar og bað nefndarmenn að skoða vel skólastefnuna fyrir þann fund.
- Næsti fundur skólanefndar verður 23. september.
- Sigríður minnti á fyrri samþykkt um opinn fund skólanefndar, tvisvar á kjörtímabili, sá seinni sé eftir.
Fundi slitið kl. 18:40


