Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 116
116. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn12. júní 2009 kl. 11:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 115. fundar
Villa er í 3. lið fundargerðar þar sem standa á Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu í stað „Grunnskóla Hornafjarðar“.
2. Tillögur skólastjórnar um ávaxtabita og tillögur um verð á mat í skólamötuneyti Grunnskóla Hornafjarðar
Skólanefnd leggur til að boðið verði upp á ávaxtabita í Grunnskóla Hornafjarðar. Verð fyrir skammtinn verði kr. 50. Jafnframt er lagt til að hádegisverður í skólanum kosti kr. 250. Mjólk fyrir skólanemendur verði innifalin í matarverði.
3. Daglegur skólatími í Grunnskóla Hornafjarðar 2009 - 2010
Farið yfir útsend gögn frá Grunnskóla Hornafjarðar þar sem gerð er sú tillaga að 1. – 4. bekkur ljúki skóla 13:30 alla daga, 5.- 6. bekkur ljúki skóla 14:10 og 7. – 10. ljúki skóla 14:10 nema á þriðjudögum þá eru þau til 15:40.
4. Önnur mál
Fundi slitið kl. 12:05


