Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 114
114. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 22. mars 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Eyrún Axelsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 113. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Endurskoðun á skólastefnu
Þorvaldur gerði grein fyrir athugasemdum skólastjórnenda grunnskólans sem telja að ef fara eigi í gagngera endurskoðun á skólastefnunni gangi það ekki samfara öllum þeim breytingum sem eiga sér stað á grunnskólanum. Því leggi þeir til að heildarendurskoðun eigi sér stað ekki fyrr en að ári liðnu. Undir þetta tók Sædís, fulltrúi kennara. Sigríður sagði það sinn skilning að fremur hafi þetta átt að vera uppfærsla vegna breytinga sem hafa orðið á skólum og lögum fremur en heildarendurskoðun. Sagði Elín það hafa verið sína skoðun þegar lagt var af stað í endurskoðunina að þetta eigi fremur að vera nauðsynleg uppfærsla en heildarendurskoðun.
Fram kom í máli Elínar að óskir um athugasemdir og ábendingar vegna endurskoðunar á skólastefnu voru sendar til leikskólanna, grunnskólanna, foreldra- og skólaráða og foreldrafélaga. Til þessa hafa borist athugasemdir frá tveimur stofnunum. Skólanefnd samþykkir að halda vinnufund kjörinna nefndarmanna fyrir næsta fund skólanefndar þar sem farið verður yfir skólastefnuna og gera tillögur að nauðsynlegri uppfærslu á skólastefnu í ljósi þess sem fram hefur komið en fresta heildarendurskoðun um eitt ár.
3. Skólaakstur og tómstundir barna í dreifbýli
Elín gerði grein fyrir hugmyndum um sérstakan aukaakstur í dreifbýlið eftir hefðbundinn skóladag til að auðvelda börnum sem þar eru búsett að stunda íþróttir og aðrar tómstundir. Var undir þessa hugmynd tekið. Skólanefnd samþykkir að fela starfsmanni sínum að vinna áætlun um slíkan akstur þar sem fram komi bæði skipulag og væntanlegur kostnaður vegna þessa.
4. Tillögur að skóladagatali
Lögð fram tillaga að skóladagatali Grunnskóla Hornafjarðar. Fram koma að skólaráð hefur samþykkt þessa tillögu að skóladagatali. Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar
Lögð fram tillaga að skóladagatali Grunnskólans í Hofgarði. Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði.
5. Tilkynning menntamálaráðuneytis um að samræmd könnunarpróf í 10. bekk vorið 2009 verði ekki haldið.
Í tilkynningunni kemur fram að Alþingi hafi gert breytingar á lögum nr. 91/2008 um grunnskóla. Breytingin felur í sér að ákvæði til bráðabirgða við lögin um samræmd könnunarpróf vorið 2009 falli brott.
6. Önnur mál
· Elín greindi frá vígslu og opnun sundlaugar sumardaginn fyrsta, 23. apríl 2009.
· Sigríður spurði um framkvæmdir við Grunnskóla Hornafjarðar og Sindrabæ. Stefán greindi frá stöðu mála. Samþykkt að heimsækja skólana á næsta skólanefndarfundi.
Fundi slitið kl. 18:20


