Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 113
113. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 24. mars 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Anna María Ríkharðsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Sigurður Páll Árnason og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 112. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Endurskoðun á skólastefnu
Formaður skólanefndar lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun:
Í skólastefnu sveitarfélagsins, bls. 3, segir: „Skólastefna sveitarfélagsins nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla og skal vera í sífelldri endurskoðun.“
Stefnan var samþykkt í bæjarstjórn 3. janúar 2007 og er því liðlega tveggja ára gömul. Frá þeim tíma sem stefnan var samþykkt hafa verið sett ný lög um leik- og grunnskóla (maí 2008). Til viðbótar við breytt lög stendur yfir veruleg breyting á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar. Á þeim tveimur árum sem liðin eru frá samþykkt skólastefnunnar er og komin nokkur reynsla á hana og um leið bæði kostir og gallar.
Í ljósi framangreinds telur skólanefnd rétt að kalla eftir ábendingum og athugasemdum við skólastefnuna frá skólum sveitarfélagsins og foreldrasamfélaginu. Stefnt er að því að endurskoðun verði lokið fyrir byrjun nýs skólaárs 2009 - 2010.
Farið yfir stefnuna, bent á ýmis atriði sem mætti lagfæra og rædd sú vinna sem framundan er við stefnuna.
Tillaga Elínar að bókun um endurskoðun á skólastefnu borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
3. „Brúum bilið“ – samstarf leik- og grunnskóla á Hornafirði
Farið yfir greinargerð starfsmanna leik- og grunnskóla þar sem settar eru fram hugmyndir og tillögur að samstarfi skólastiganna og hvernig því skuli háttað. Í greinargerðinni segir m.a.:
„Í 6. grein laga um grunnskóla (2008) er ákvæði um að skólanefnd eigi að stuðla að tengslum og samstarfi leikskóla og grunnskóla.
Í Aðalnámskrá grunnskóla 1999, almennum hluta, er fjallað um tengsl leikskóla og grunnskóla. Þar stendur meðal annars: Tengsl og samstarf milli leikskólakennara, sem hafa umsjón með elstu börnum í leikskóla, og grunnskólakennara, sem taka við þeim í fyrsta bekk grunnskóla er mikilvægt.
Það er hagur barnanna að kennarar á báðum þessum skólastigum séu kunnugir viðfangsefnum, starfsháttum og vinnuskipulagi hverra annarra. Því betri samfella sem er á milli skólastiganna, því meiri líkur eru á farsælu upphafi grunnskólagöngunnar.“
Rætt um það samstarf sem er á milli skólastiganna. Starfsmenn sem sitja fundinn segja samstarfið ganga vel og voru bjartsýnir á að það muni aukast.
4. Tillögur að gjaldskrá sundlaugar og opnunartíma
Fullorðnir Börn
Almennt gjald, stakur miði 350 kr. 150 kr.
15 miða kort 3.300 kr. 1.500 kr.
Árskort 25.000. kr. 10.150 kr.
Sturtugjald 220 kr. 100
Sundföt og handklæði - leiga 260 kr. 260 kr.
Lagt er til að sundlaug verði opin frá kl. 06:45 – 21:00 virka daga og 10:00 – 18:30 um helgar. Tillaga að gjaldskrá sundlaugar frá og með opnun nýrrar laugar og tillaga að opnunartíma samþykkt samhljóða. (Sigurður Páll vék af fundi eftir þennan lið.)
5. Tilkynning um dagsetningu samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2009
10. bekkur
Íslenska mánudagur 14. september kl. 9:00 – 12:00
Enska þriðjudagur 15. september kl. 9:00 – 12:00
Stærðfræði miðvikudagur 16. september kl. 9:00 – 12:00
4. og 7. bekkur
Íslenska fimmtudagur 17. september kl. 9:00 – 12:00
Stærðfræði föstudagur 18. september kl. 9:00 – 12:00
6. Önnur mál
· Greint frá niðurstöðu útboðs á skólamáltíðum fyrir grunnskólanemendur og starfsfólk.
· Elín lagði til að tómstundakortin verði kynnt með áberandi hætti á heimasíða sveitarfélagsins þar sem kæmu fram helstu upplýsingar um kortin. Beint til starfsmanns að sjá um þetta mál.
· Elín leggur til að í upphafi hvers skólaárs kynni Sindri og önnur félög og stofnanir sem eru með barna- og unglingastarf í grunnskólanum framboð á íþróttum og tómstundum á þeirra vegum. Með þessu móti verði reynt að ná til allra grunnskólanema, bæði þeirra sem fæddir eru á Íslandi og þeirra sem hingað hafa flust. Beint til starfsmanna sviðsins og framkvstj. Sindra að fylgja þessu máli eftir
· Elín ræddi um sumarlokun leikskólanna og það hlutverk skólanefndar að taka málið upp aftur með það að leiðarljósi að fyrir jólafrí 2009 liggi fyrir tillaga um sumarlokun. Elín lagði áherslu á samráð við foreldra leikskólabarna, leikskólastjóra og annarra starfsmanna leikskólanna.
Fundi slitið kl. 18:30


