Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 111
111. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar fimmtudaginn 29. janúar 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson, Styrgerður Jóhannsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Maríanna Jónsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Guðrún Jónsdóttir, fráfarandi formaður mætti á fundinn. Þakkaði hún fyrir samstarfið þann tíma sem hún hefur starfað í skólanefnd. Var Guðrúnu einnig þakkað fyrir samstarfið.
Elín bauð fundarmenn velkomna og sagðist vonast eftir góðu samstarfi.
1. Fundargerð 110. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Sumarlokun leikskóla – erindi frá Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Tekið fyrir bréf, undirritað af þremur stjórnendum HSSA, þar sem fram kemur að skipulag sumarlokunar leikskólanna hafi töluverð áhrif á starfsemi stofnunarinnar sem og starfsfólk sem á börn í leikskóla.
Guðrún greindi frá samtali við einn bréfritara vegna þessa máls. Í því samtali kom fram að ástæða væri til að gera könnun meðal foreldra leikskólabarna um sumarlokun. Einnig var ræddur möguleikinn á mismunandi upphafi og endi á sumarlokun leikskólanna, þ.e. að sumarlokun yrði ekki á nákvæmlega sama tíma í báðum skólum. Var undir bæði þessi sjónarmið tekið af fundarmönnum.
Skólanefnd samþykkir að áður en endanleg ákvörðun verður tekin í málinu verði gerð könnun á meðal foreldra leikskólabarna um sumarlokun leikskólanna. Starfsmanni nefndarinnar ásamt formanni falið að framkvæma þessa könnun. Stefnt að því að málið verði afgreitt á næsta fundi.
3. Úthlutun styrkja sveitarfélagsins fyrir árið 2009
Farið yfir styrkumsóknir til íþrótta- og æskulýðsmála. Samþykkt að styrkupphæðir verði með eftirfarandi hætti fyrir árið 2009:
Sindri, til almenns rekstrar: 2.400.000.-
Sindri, framlag til þróunar íþrótta og æskulýðsstarfs: 5.000.000.-
Sindri, reiknuð húsaleiga í íþróttahúsi á Höfn: 3.540.000.-
Sindri, leikjanámskeið: 750.000.-
Sunddeild Sindra: 150.000.-
Umf. Máni, íþróttastarfsemi: 200.000.-
Umf. Máni, reiknuð leiga í Mánagarði: 150.000.-
Golfklúbbur Hornafjarðar, framkvæmdasamningur: 3.040.000.-
Golfklúbbur Hornafjarðar, barna- og unglingastarf: 260.000.-
Hestamannafélagið Hornfirðingur, framkvæmdasamningur: 3.050.000.-
Hestamannafélagið Hornfirðingur, barna- og unglingastarf: 260.000.-
Samtals: 18.800.000.-
Fimleikadeild Sindra sækir um 1.000.000.- til áhaldakaupa. Umsókn hafnað.
4. Athugasemdir vegna nýs aðalskipulags
Farið yfir útsend gögn og samþykkt að starfsmaður nefndarinnar komi samþykktum tillögum að breytingum á texta vegna aðalskipulags til starfshóps sem fer með það mál.
5. Önnur mál
Sigríður spurði um framkvæmdir við grunnskólann. Stefán greindi frá því að hönnun sé á lokastigi en það verk sé orðið á eftir áætlun.
Sigríður spurði um útboð á skólamáltíðum og benti á að verð á skólamaáltíðum sé hér hátt miðað við það sem almennt gerist á landinu.
Samþykkt að færa mánaðarlegan fundartíma frá kl. 16:10 til kl. 17:00, en eftir sem áður á 4. miðvikudegi mánaðarins.
Fundi slitið kl. 18:35


