Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 110
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 7. janúar 2009 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir, Steinarr Bjarni Guðmundsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 109. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Fundargerðir starfshóps – breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Fram kom ánægja með vinnu starfshópsins frá þeim fundarmönnum sem ekki tóku þátt í vinnu hans.
3. Skýrsla starfshóps um skólamál
Undir þessum lið var greint frá kaupum sveitarfélagsins á Hafnarbraut 40 fyrir félagsmiðstöð barna og ungmenna. Kom fram mikil ánægja með þá ráðstöfun. Sigríður lagði áherslu á að sú hugmyndavinna sem fram hefur farið í skólamálum verði nýtt til áframhaldandi vinnu, ekki byrjað upp á nýtt. Torfi lýsti yfir ánægju með skýrsluna, sagði hana góða.
4. Úthlutun á styrkjum vegna foreldrastarfs
Samþykkt samhljóða að skipta þeim 300.000.- kr. sem eru á fjárhagsáætlun ársins 2008 og ætluð til foreldrastarfs með eftirfarandi hætti: Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar 188.220. og foreldrafélagið Krakkahólar kr. 61.780., skipt eftir fjölda nemenda. Til foreldrastarfs við Grunnskólann í Hofgarði kr. 25.000. og til foreldrastarfs við Tónskóla A-Skaft. kr. 25.000., ekki skipt eftir nemendafjölda. Skólanefnd kallar eftir upplýsingum frá félögunum hvernig styrkjum þessum er varið.
5. Menntamálaráðuneytið, bréf dagsett 1. desember 2008, úttekt á listfræðslu á Íslandi
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að gerð skuli heildarúttekt á listfræðslu á Íslandi. Úttektin nær til leik-, grunn- og framhaldsskóla auk listaskóla. Heimsóttir verða 35 skólar af öllum skólagerðum.
6. Vistakstursnámskeið, erindi til skólanefnda, dags. 5. desember 2008
Í bréfinu segir m.a. orðrétt: „Með bréfi þessu langar mig til að kanna áhuga fræðsluyfirvalda í sveitarfélögum á Austurlandi, á að bjóða starfsmönnum á sínum vegum á námskeið í vistakstri.” Skólanefnd sammála um að gera ekkert frekar með þetta bréf.
7. Önnur mál
- Guðrún gerði það að tillögu sinni að næsti fundur nefndarinnar verði 28. janúar nk. þannig að tveir fundir verði í janúar. Var það samþykkt.
- Þorvaldur gerði að umtalsefni leiguhúsnæði fyrir starfsmenn skólanna. Hafði hann einkum í huga húsnæði fyrir kennara sem hugsanlega sæktu hér um störf. Taldi hann að skortur væri á nógu stórum íbúðum. Einnig ræddi hann skort á viðhaldi innanhúss á íbúðum að Silfurbraut 2 – 4. Sigríður og Guðrún tóku undir orð Þorvaldar og sögðu að íbúðir fyrir starfsmenn þurfi að vera vistlegar. Torfi velti því upp hvort þessi umræða eigi ekki fremur heima í húsnæðisnefnd. Skólanefnd hvetur til þess að boðið verði upp á gott leiguhúsnæði fyrir starfsmenn skólanna.
- Greint frá því að iðnaðarráðuneytið hafi styrkt Legóhópinn myndarlega. Var því fagnað.
- Fram kom að verktaki í skólaakstri verði áfram með aksturinn eftir þær breytingar sem verða á Grunnskóla Hornafjarðar frá og með næsta skólaári.
Fundi slitið kl. 17:50


