Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 52
52. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 20. ágúst 2003 kl. 16.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Friðrik Ingvaldsson, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 51. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Leikskólinn Óli prik
Samkvæmt upplýsingum frá leikskólastjóra eru umsóknir um leikskólavist fyrir 9 –10 börn næsta skólaár. Þar af er sótt um vistun fyrir fjögur börn fyrir hádegi. Þegar flest var voru samtals 23 börn í leikskólanum.
Á 217. fundi bæjarráðs, þann 3. júlí sl. var eftirfarandi bókað: „Bæjarráð ræddi málefni Óla priks og óskar eftir afstöðu skólanefndar varðandi rekstur skólans.” Í ljósi umræðna á fundi skólanefndar, upplýsinga um vinnu við úttekt á leikskólum sveitarfélagsins og bókunar bæjarráðs samþykkir skólanefnd eftirfarandi bókun. Það er ein af ríkustu skyldum sveitarfélagsins að tryggja börnum vist í leikskóla þar sem fram fari gott og uppbyggilegt starf með faglegan metnað að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að starfinu sé stjórnað af fólki sem hlotið hefur til þess faglega menntun. Skólanefnd felur starfsmanni sínum að meta faglegt starf í leikskólanum og skila þeirri vinnu fyrir næsta fund nefndarinnar. Skólanefnd mun taka sína ákvörðun í framhaldi þeirrar vinnu.
3. Mötuneytismál Hafnar- og Heppuskóla
Gerð var grein fyrir stöðu málsins og viðræðum við eigendur veitingahúsa á Höfn. Þá var og kynnt svar ríkisskattstjóra um virðisaukaskatt á skólamáltíðum.
4. Kennararáðningar
Gerð grein fyrir nýráðningum kennara við skóla sveitarfélagsins.
5. Önnur mál
• Skipulag skólaaksturs 2003 – 2004 kynnt.
• Kynntar óskir skólastjórnenda um endurnýjun tölvubúnaðar og umræður um það mál í bæjarráði.
• Kynntar dagsetningar á samræmdum prófum í 10. bekk vorið 2004, 3. - 11. maí.
• Kynntar viðræður við stjórnendur KASK um leigu á húsnæði fyrir handmenntastofur í Vöruhúsi.
• Spurt um samstarf Heppuskóla og FAS. Ákveðið að kanna hvernig því er háttað og kynna á næsta fundi.
• Rætt um lengda viðveru sem verður starfrækt í Hafnarskóla næsta vetur. Stefán fullyrti að þetta úrræði hefði verið mjög vel kynnt sl. vor. Fram kom sú skoðun að auglýsa þurfi einu sinni enn.
Fundi slitið kl. 18:15


