Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 50
50. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 21. maí 2003 kl. 16.15
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Christine Savard, Brynja Baldursdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 49. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skóladagatal 2003 - 2004
Skólanefnd samþykkir að skólaárið 2003 - 2004 verði kennsludagar og skóladagar samtals 180. Jafnframt er skólunum heimilt að "stafla" allt að fjórum skóladögum.
(Hulda vék af fundi)
3. Leikskólinn í Öræfum
Skólanefnd samþykkir eftirfarandi bókun:
Í könnun á meðal foreldra leikskólabarna í Öræfum koma fram mjög skiptar skoðanir á hvaða vistunartími henti best næsta skólaár. Í ljósi þess sem fram kemur í svörum foreldra er lagt til að leikskólinn verði starfræktur í þrjá daga í viku hverri, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, frá klukkan 11 – 15. Skólinn hefji starf sitt 1. september og skólalok verði um miðjan maí. Einnig er lagt til að opnunartími leikskólans falli að skóladagatali að öðru leyti.
4. Önnur mál
Stefán gerði grein fyrir aukinni þörf fyrir stuðningsfulltrúa í Nesjaskóla skólaárið 2003 – 2004. Skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að tekið verði tillit til röksemda starfsmanna skólanna og sérfræðiþjónustu sveitarfélagsins þegar ákvörðun er tekin í svo mikilvægu máli sem þessu.
Kynnt bréf leikskólastjóranna Margrétar Ingólfsdóttur og Snæfríðar Svavarsdóttur en þar sem farið er fram á að heimilt verði að verja einum degi til símenntunar í leikskólunum sem störfuðu ekki að örðu leyti þann dag.
Skólanefnd tekur ekki afstöðu í þessu máli á þessum fundi.
Kynnt bréf 7. deildar Félags íslenskra leikskólakennara þar sem kveðið er á notkun tölva í leikskólastarfi.
Fundi slitið kl. 17:55


