Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 107
107. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 24. september 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Steinarr Bjarni Guðmundsson, Margrét Ingólfsdóttir, Sædís Ósk Guðmundsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 106. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Leik- og grunnskólar í ljósi nýrra laga
Farið yfir lögin, einstaka greinar ræddar. Bent var sérstaklega á grein í lögum um leikskóla sem fjallar um skólahúsnæði og aðstöðu í leikskóla. Ljóst sé samkvæmt þeim ákvæðum (12. gr.) að lagfæra þurfi skólahúsnæði Lönguhóla á ýmsan hátt.
3. Starfsmannamál í leikskólum
Margrét gerð grein fyrir starfsmannamálum á Lönguhólum. Fram kom að ekki er gott ástand í ráðningum á Lönguhólum. Það vanti starfsmenn í 2,5 stöðugildi við skólann. Taldi Margrét að laun ófaglærðra starfsmanna ráði miklu um þetta ástand. Þá mæddi mikið á þeim leikskólamenntuðu starfsmönnum sem við skólann vinna. Þá kæmi þessi starfsmannskortur niður á sérkennslu. Sköpuðust á fundinum miklar umræður um launakjör ófaglærðra leikskólastarfsmanna. Guðrún sagðist hafa áhyggjur af þessari stöðu og var undir það tekið.
(Leikskólastjóri Krakkakots gat ekki sótt fundinn vegna veikinda.)
4. Fjöldi barna í leikskólum sveitarfélagsins
Gerð grein fyrir fjölda barna og skiptingu þeirra niður á skólatíma í Krakkakoti og á Lönguhólum. Í dag eru samtals 102 börn í leikskólunum tveimur. Í Krakkakoti eru um 47% barna í 7 klst. eða lengur í skóla daglega en um 58% á Lönguhólum. Skólatímar eru að breytast á þann hátt að dagleg leikskóladvöl er að lengjast.
5. Samstarf Grunnskóla Hornafjarðar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu
Farið yfir samstarfssamning Grunnskóla Hornafjarðar og FAS. Einnig farið yfir yfirlit sem sýnir fjölda nemenda grunnskólans sem stunda nám í einni eða eða fleiri greinum á framhaldsskólastigi. Í FAS eru 4 nemendur í bókfærslu, 10 nemendur í grunnteikningu og 17 í þýsku. Þá eru kenndir 3 framhaldsáfangar í grunnskólanum samkvæmt samningi við FAS, þ.e. 16 nemendur í náttúrufræði, 17 í samfélagsfræði og 10 í stærðfræði.
6. Tilkynning um breytt fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa
Um er að ræða kynningu á breyttu fyrirkomulagi, einkum í 10. bekk og reglum um undanþágur frá próftöku.
7. Náum betri árangri – málstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga um skólamál
Farið yfir kynningu og dagskrá málstofunnar.
8. Önnur mál
- Anna María spurði um heimavist. Fram kom að 4 nemendur eru á heimavistinni, 1 nemandi úr grunnskóla og 3 úr framhaldsskóla.
- Rædd vinna við reglur um endurmenntun starfsmanna sveitarfélagsins.
- Torfi óskar eftir að fundargerðir starfshóps vegna hugsanlegs flutnings yngstu bekkja grunnskólans verði sendar til skólanefndar.
Fundi slitið kl. 18:35


